Íslenskir „Olíuvinir“ í keðju umdeilds fyrirtækis

Yfir 800 manns eru í sölu­keðju Young Living ilm­kjarna­olíu á Íslandi. Fyr­ir­tækið sætir hóp­mál­sókn í Banda­ríkj­unum fyrir pýramídasvindl og sögðu sölu­menn vör­urnar geta læknað Ebóla-smit. Íslenskar konur sem dreifa vör­unum segja tengsla­mark­aðs­setn­ingu nauð­syn­lega til að kenna fólki um virkni ilm­kjarna­olíu.

Íslenskir „Olíuvinir“ í keðju umdeilds fyrirtækis
Young Living olí­urnar Olíurnar eru seldar með umdeildri aðferð sem byggir á tengsla­mark­aðs­setn­ingu.

Yfir 800 manns, mest­megnis konur, eru í hópnum „Olíu­vinir“ á Facebook, fyrir sölu­að­ila á vörum frá Young Living á Íslandi. Fyr­ir­tækið stundar svo­kall­aða tengsla­mark­aðs­setn­ingu (e. multi-level mar­ket­ing) og sætir hóp­mál­sókn í Banda­ríkj­unum fyrir að vera millj­arða doll­ara píramídasvindl sem nær allir þátt­tak­endur tapi pen­ing á.

Tengsla­mark­aðs­setn­ing hefur þekkst á Íslandi í nokkurn tíma og er fræg­asta varan sem seld er með slíkum hætti lík­lega Her­balife bæti­efnin. Önnur fyr­ir­tæki með sam­bæri­legt við­skipta­módel eru Zinzino heilsu­vör­urnar, Tupperware ílátin og Forever Living snyrti­vör­urnar. Mark­aðs­setn­ing af þessum toga er oft per­sónu­legri en önnur, bein­ist að vinum sölu­að­il­ans og fjöl­skyldu og fer gjarnan fram með heima­kynn­ingum eða á sam­fé­lags­miðlum. Ólíkt hefð­bund­inni smá­sölu, þar sem hagn­aður fæst með álagn­ingu á heild­sölu­verð vöru, kemur þorri tekna þeirra sem stunda tengsla­mark­aðs­setn­ingu frá því að fá nýja aðila til að ger­ast heildsalar.

Young Living var stofnað árið 1993 í Utah í Banda­ríkj­unum af hinum umdeilda Gary Young. Fyr­ir­tækið sætir …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Lýðheilsa

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár