Heuermann játar á sig morðin

Rex Heu­er­mann hefur játað að hafa myrt og sund­ur­limað sjö konur og dreift lík­ams­leifum þeirra um strand­svæði í Banda­ríkj­unum. Hann var kvæntur íslenskri konu í 27 ár.

Heuermann játar á sig morðin
Játar sök Morðin á Gilgo-strönd­inni voru með þekkt­ustu óleystu morð­mál­unum á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna. Mynd: Fógetinn í Suffolk-sýslu

Rex Heu­er­mann, sem sak­aður er um að hafa myrt og sund­ur­limað sjö konur og dreift lík­ams­leifum þeirra um auð strand­svæði í Banda­ríkj­unum ját­aði sig sekan á mið­viku­dag, að því er stað­ar­miðlar greina frá. Hann var kvæntur íslenskri konu, Ásu Guð­björgu Ell­erup, í 27 ár.

Heu­er­mann, 62 ára, ját­aði sig sekan fyrir dóm­stóli í Suffolk-sýslu um mann­rán, pynt­ingar og morð á sjö konum víðs­vegar um Long Island á árunum 1993 til 2010 og á nú yfir höfði sér lífs­tíð­ar­fang­elsi ef dóm­ar­inn sam­þykkir játn­ingu hans, að því er PIX11 greindi frá.

Arki­tekt­inn Heu­er­mann, sem var fyrst hand­tek­inn í júlí 2023 fyrir utan skrif­stofu sína á Man­hattan, hafði upp­haf­lega neitað sök, sem gaf til kynna að löng rétt­ar­höld biðu fjöl­skyldna fórn­ar­lamba hans.

Lík­ams­leifar ell­efu morð­fórn­ar­lamba – níu kvenna, eins manns og ungrar stúlku – fund­ust árin 2010 og 2011 í kjarri með­fram hrað­braut­inni nálægt Gilgo Beach, strand­lengju við suð­ur­strönd Long Island.

Gilgo Beach-málið hafði vaf­ist fyrir rann­sak­endum í mörg ár, en lík fórn­ar­lambanna, flest þeirra kyn­lífs­verka­fólk, fund­ust á sama afskekkta strand­kafl­anum án þess að nokkur grun­aður væri nafn­greindur.

Árið 2022 beindu rann­sak­endur hins vegar sjónum sínum að Heu­er­mann eftir að í ljós kom að hann var skráður eig­andi öku­tækis sem eitt fórn­ar­lambanna hafði sést í.

Síðan þá hefur málið gegn Heu­er­mann – sem var kvæntur tveggja barna faðir þegar morðin voru framin – byggst á DNA-sönn­un­ar­gögnum úr pizzukassa sem hent hafði verið og far­síma­gögnum sem tengja hann við fórn­ar­lömbin.

Sum þess­ara sönn­un­ar­gagna fund­ust á heim­ili fjöl­skyldu hans í Massapequa Park.

Heu­er­mann fram­kvæmdi einnig hund­ruð leita á net­inu um rann­sókn­ina á morð­unum og spurði spurn­inga á borð við: „Af hverju hefur raðmorð­ing­inn á Long Island ekki náðst?“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár