Ása sækir um skilnað frá Heuermann - „Þær fundu fyrir viðbjóði og upplifðu skömm“

Ása Guðbjörg Ellerup hefur sótt um skilnað frá eig­in­manni sínum, Rex Heu­er­mann, sem er grun­aður um hræði­leg morð á Gilgo-strönd­inni á Long Island. Lög­reglan telur að fjöl­skyldan hafi ekki vitað um ódæð­is­verk heim­il­is­föð­ur­ins. Enginn hefur heim­sótt hann í fang­elsið.

Ása sækir um skilnað frá Heuermann - „Þær fundu fyrir viðbjóði og upplifðu skömm“
Í gæslu­varð­haldi Rex Heu­er­mann kemur næst fyrir dóm­ara 1. ágúst. Mynd: Rex Heuermann Consultants & Associates

Ása Guðbjörg Ellerup hefur sótt um skilnað frá eig­in­manni sínum, Rex Heu­er­mann sem grun­aður er um að hafa myrt fjórar ungar konur. Þau voru gift í 27 ár. CNN greinir frá þessu. Ákærur hafa verið gefnar út gegn Heu­er­mann vegna þriggja af kon­unum fjórum en reiknað er með að hann verði einnig ákærður fyrir að myrða þá fjórðu. Málið hefur vakið gríð­ar­lega athygli þar sem ára­tugur er síðan lík þeirra fund­ust og morð­ingi þeirra ein­fald­lega kall­aður Gilgo-strandar morð­ing­inn. 

Samkvæmt lög­regl­unni í Suffolk-sýslu vissi Ása að lík­indum ekk­ert um að eig­in­maður hennar lifði tvö­földu lífi, ann­ars vegar sem arki­tekt og heim­il­is­faðir, en hins vegar sem grun­aður raðmorð­ingi. 

„Ef þú spyrð mig, þá trúi ég ekki að þau hafi vitað um þetta tvö­falda líf sem hann lifði,“ segir Rodney Harrison, lög­reglu­maður í Suffolk-sýslu. 

Á blaða­manna­fundi lög­regl­unnar á föstu­dag sagði Harrison: „Dömur mínar og herrar. Rex Heu­er­mann er djöf­ull sem gengur á meðal vor – rán­dýr sem hefur rústað fjöl­skyldum“.

Lög­reglu­yf­ir­völd hafa þó ekki úti­lokað neitt og rann­sókn stendur enn yfir á því „hvort fjöl­skyldan hafi vitað af því sem Heu­er­mann var að gera,“ segir Harrison í sam­tali við CNN.

Ása Guðbjörg Hellerup

Ása sótti um skilnað í gær, mið­viku­dag, viku eftir hand­töku Heu­er­mann. Lögmaður hennar, Robert Macedonio, segir henni hafa brugðið mjög við að heyra af því sem eig­in­maður hennar er sak­aður um. Óaf­vit­andi hafi hún hjálpað til við rann­sókn­ina því það voru hár úr henni sem fund­ust á líkum kvenn­anna sem lög­reglan gat þá tengt við Heu­er­mann.

Ása og Heu­er­mann giftu sig í apríl 1996. Síðan þá hafa þau búið á æsku­heim­ili hans í úthverfi Massapequa Park á Long Island ásamt syni Ásu og dóttur sem þau eiga saman. 

Fjölskyldan hélt sig út af fyrir sig

Samkvæmt Long Island Press segja nágrannar heim­ilið vera „krípí“ og engu við­haldi þar sinnt. Þá hafi fjöl­skyldan verið fjar­ræn. „Þau héldu sig út af fyrir sig. Við sáum aldrei neitt grun­sam­legt,“ segir Frankie Musto, nágranni þeirra, við mið­il­inn.

Harrison lög­reglu­maður sagði við CNN á mánu­dag að hann hafi fengið þær upp­lýs­ingar að þegar Ásu og dóttur þeirra hafi verið sagt frá glæp­unum sem Heu­er­mann er sak­aður um hafi þeim „verið mjög brugðið, þær fundu fyrir við­bjóði og upp­lifðu skömm“. Vegna þess­ara við­bragða telur hann að þær hafi ekk­ert vitað. 

Heu­er­mann var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald án mögu­leika á reynslu­lausn. Þegar hann var leiddur fyrir dóm­ara lýsti hann sig sak­lausan. Hann kemur næst fyrir dóm þann 1. ágúst. 

Heu­er­mann hefur ekki fengið neina gesti í fang­elsið. Hann má hringja tvö sím­töl á dag en óljóst er hvort hann hefur nýtt sér það.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár