„Rex Heuermann er djöfull sem gengur á meðal vor“ – Saksóknari segir þetta rétt að byrja

Rex Heu­er­mann hefur verið ákærður fyrir að myrða þrjár kyn­lífs­verka­konur og er sterk­lega grun­aður um morð á þeirri fjórðu. Líkin af þeim voru þau fyrstu sem fund­ust á strönd í Long Island fyrir þrettán árum en alls hafa fimmtán lík fund­ist þar og eng­inn veit hver kom þeim þar fyrir. Málið hefur vakið mikla athygli hér­lendis þar sem eig­in­kona Heu­er­mann er íslensk. Hér er sagan öll.

„Rex Heuermann er djöfull sem gengur á meðal vor“ – Saksóknari segir þetta rétt að byrja
Hand­tek­inn Handtaka Heu­er­mann hefur vakið gríð­ar­lega athygli í Banda­ríkj­unum enda morðin á Gilgo-strönd­inni með þekkt­ustu óleystu fjöldamorð­unum á aust­ur­strönd Banda­ríkj­anna. Mynd: Fógetinn í Suffolk-sýslu

„Það var á vor­kvöldi árið 2010 sem Shannan Gilbert hvarf eftir að hafa sést hlaupa í gegn um Oak-strandar hverfið, öskr­andi á hjálp. Enginn sem heyrði af hvarfi hennar velti mikið fyrir sér hvað varð um þessa 24 ára konu. Hún seldi sig á Craigslist og var á flótta, en eng­inn vissi undan hverjum. Lög­reglan í Suffolk-sýslu sýndi hvarfi hennar líka lít­inn áhuga – þar til sjö mán­uðum seinna þegar fjögur lík fund­ust við hrað­braut í nágrenn­inu. Jafnt bil var á milli lík­anna og þau voru öll vafin inn í efni úr striga­pokum. En engin af þeim var Shannan.“

Þessi lýs­ing er aftan á met­sölu­bók­inni Lost Girls – An Unsolved American Mystery sem kom út árið 2013 og byggir á rann­sókn­ar­vinnu verð­launa­blaða­manns­ins Robert Kolker. Fyrir þremur árum gerði Netflix þátta­seríu byggða á bók­inni.

Ljóst er að sím­tal Shannan í neyð­ar­lín­una leiddi til þess að líkin fund­ust, en í sím­tal­inu sagði hún: „Það er eitt­hvað að fara að koma fyrir mig … Það er ein­hver á eftir mér …“  Enn er ekki vitað hvað kom fyrir Shannan en lík hennar fannst á Gilgo-strönd­inni ári seinna en þessi fjögur fyrstu.

Aldrei fengið raunverulegt nafn - fyrr en nú

Líkin fjögur voru af ungum kyn­lífs­verka­konum sem seldu sig í gegn um Inter­netið. Málið vakti gríð­ar­lega athygli og hefur morð­ingi þeirra í gegn um árin verið kall­aður Gilgo-strandar fjöldamorð­ing­inn. Raunar eru nöfnin fleiri. Hann hefur verið kall­aður Long Island-morð­ing­inn, Craigslist Ripper og Manor­ville slátr­ar­inn.

Það var ekki fyrr en á föstu­dag sem raun­veru­legt nafn hans var ljóst, en þá var gefin út ákæra gegn Rex Heu­er­mann vegna morða á þremur af þessum fjórum konum. Heu­er­mann er 59 ára arki­tekt með eigin stofu í Man­hatt­an­hverfi New York-borgar. Hann er einnig sterk­lega grun­aður um að hafa myrt þá fjórðu.

„Dömur mínar og herrar. Rex Heu­er­mann er djöf­ull sem gengur á meðal vor – rán­dýr sem hefur rústað fjöl­skyldum“
Lög­reglu­maður í Suffolk-sýslu

Allar kon­urnar fjórar voru kyrktar. Gjarnan hefur verið fjallað sér­stak­lega um mál þeirra sem mál „Gilgo-strandar fjór­menn­ing­anna“ eða „The Gilgo-beach Four.“ Á blaða­manna­fundi lög­regl­unnar í Suffolk-sýslu á föstu­dag sagði lög­reglu­mað­ur­inn Rodney Harrison: „Dömur mínar og herrar. Rex Heu­er­mann er djöf­ull sem gengur á meðal vor – rán­dýr sem hefur rústað fjöl­skyldum“.

Alls hafa ell­efu lík fund­ist í nágrenn­inu á um sextán ára tíma­bili sem tengd hafa verið við Gilgo-strandar morðin en flest málin eru enn óleyst. Níu þess­ara líka voru af ungum konum, eitt af karl­manni og eitt af tveggja ára stúlku. Ekki hefur enn verið borið kennsl á þau öll.

Hér sést hvar fleiri lík fund­ust við strand­veg­inn.

„Allir hættu að fara á strönd­ina á kvöldin. Fólk var sann­fært um að það væri raðmorð­ingi á ferð­inni,“ sagði Alex­andra Calabro í sam­tali við The Guardian, nágranni Heu­er­mann, eftir að hann var hand­tek­inn.

Melissa, Megan, Amber og Maureen

Þær þrjár konur sem hann er ákærður fyrir að hafa myrt hétu Melissa Barthel­emy, Megan Waterman og Amber Costello.

Melissa Barthel­emy var 24 ára þegar hún hvarf sum­arið 2009. Hún bjó í Bronx-hverfi New York og hafði selt þjón­ustu sína sem fylgd­ar­kona í gegn um Craigslist sem er aug­lýs­inga­síða á net­inu þar sem hægt er að finna allt milli him­ins og jarðar. Kvöldið sem hún hvarf átti hún fund með við­skipta­vini og lagði 900 doll­ara inn á banka­reikn­ing­inn sinn. Viku seinna byrj­aði systir hennar sem var á tán­ings­aldri að fá ógeð­felld skila­boð úr síma Melissu þar sem hún var meðal ann­ars spurð hvort hún „væri hóra eins og systir sín.“ Símtölin urðu sífellt meira trufl­andi þar til sá sem hringdi sagði að Melissa væri dáin og að hann ætl­aði að „horfa á hana rotna“.

Megan Waterman var 22ja ára þegar hún hvarf sum­arið 2010 eftir að hafa sett aug­lýs­ingu á Craigslist þar sem sagð­ist bjóða upp á þjón­ustu sem fylgd­ar­kona. Megan var þol­andi mansals. Daginn áður en hún hvarf sagði hún við kærast­ann sinn að hún ætl­aði út og myndi hringja í hann síðar. Hún sást síð­ast á móteli í nágrenni við Gilgo-strönd­ina.

Amber Lynn Costello var 27 ára þegar hún hvarf haustið 2010. Hún var kyn­lífs­verka­kona og heróín­fík­ill. Þegar hún var aðeins sex ára gömul beitti nágranni hana kyn­ferð­is­of­beldi. Hún ánetj­að­ist fíkni­efnum á tán­ings­aldri. Kvöldið sem hún hvarf fór hún að hitta ókunn­ugan mann sem bauð 1500 doll­ara fyrir þjón­ustu hennar. Hún bjó þá í smá­bænum West Babylon í nágrenni Gilgo-strandar. Fjöl­skylda hennar til­kynnti ekki strax um manns­hvarf þegar hún hætti að svara í síma því þau héldu að hún væri í fíkni­efna­með­ferð.

Fjórða konan sem Heu­er­mann er sterk­lega grun­aður um að hafa myrt, en hefur ekki verið ákærður vegna, er Maureen Brainard-Barnes. Hún var 25 ára þegar hún hvarf sum­arið 2007. Maureen var tveggja barna móðir og starf­aði við fylgd­ar­þjón­ustu til að geta borgað af hús­næð­is­lán­inu sínu. Hún hafði hætt að starfa sem kyn­lífs­verka­kona í sjö mán­uði en tók aftur upp þráð­inn þegar selja átti húsið hennar á nauð­ung­ar­sölu. Stuttu eftir að hún hvarf fékk vin­kona hennar sím­tal úr ókunn­ugu núm­eri frá manni sem sagði Maureen vera lif­andi og hann hefði séð hana „á hóru­húsi í Queens.“

Hér sést hvar lík kvenn­anna fjög­urra fund­ust. Þetta voru fyrstu líkin sem fund­ust á strönd­inni.

Lík Melissu, Megan, Amber og Maureen fund­ust fyrir til­viljun þegar leitað var að Shannan Gilbert, sem sagt var frá hér í byrjun, en ekki er talið að Heu­er­mann hafi myrt hana.

Íslensk eiginkona

Handtaka Heu­er­mann hefur vakið gríð­ar­lega athygli í Banda­ríkj­unum og fjallað um hana í öllum helstu fjöl­miðlum.

Einn hinna heims­frægu Baldwin-bræðra, leik­ar­inn William Baldwin, skrif­aði til að mynda tvít þar sem hann sagði að hinn grun­aði í Gilgo-strandar morð­unum hefði verið með honum í bekk.

Vísir.is greindi fyrstur íslenskra fjöl­miðla frá mál­inu og sagði jafn­framt frá því að eig­in­kona Heu­er­mann væri íslensk, Ása Guðbjörg Ellerup. Þau hjónin eru búsett í Massapeque Park á Long Island, rétt norðan við Gilgo-strönd. Greint hefur verið frá því að á heim­ili þeirra hafi búið dóttir hans og sonur, en upp­lýs­ingar um hvort hann á þau með Ásu hafa verið mis­vísandi. Hún er önnur eig­in­kona hans. Dóttirin heitir Victoria, er 26 ára gömul og vann með föður sínum á arki­tekta­stof­unni. Sonurinn er á þrí­tugs­aldri og með fötlun.

Ása Guðbjörg Ellerup

Ása bland­aðst þannig inn í rann­sókn­ina að hár úr henni fannst hjá þremur af líkum kvenn­anna. Hún var hins vegar stödd utan New York-ríkis með börn­unum þegar þær hurfu og liggur hún ekki undir grun.  Þegar Melissa hvarf 2009 var Ása til að mynda á Íslandi. Samkvæmt lög­reglu er talið lík­legt að hárin hafi ein­fald­lega borist með Heu­er­mann, lík­lega á fatn­aði hans, af þeirra sam­eig­in­lega heim­ili.

New York Post fjallar sér­stak­lega um gamlan Twitter-reikn­ing Ásu og leggur þar út af með að hún elski mynda­sögu­há­tíðir á borð við Comic con þar sem fólk klæðir sig upp eins og upp­á­halds mynda­sögu­fígúran sín, hún njóti þess að skipu­leggja ferða­lög en finn­ist óþægi­legt að versla í marg­menni og sé ekki hrifin af kulda.

Rannsóknin endurvakin í fyrra

Rannsókn á Gilgo-strandar morð­unum hafði verið hætt en hún var end­ur­vakin í fyrra, og fljótt bár­ust böndin að Heu­er­mann. Hann var hand­tek­inn fyrir utan skrif­stofu sína á Man­hattan skömmu eftir að lög­reglan fann DNA-sýni úr honum á skorpu af pítsu sem var í pít­su­kassa sem hann hafði hent í almenn­ings­rusla­tunnu. DNA-sýnið pass­aði við hár sem fannst á einu lík­inu.

Skorpan sem gerði úts­lagiðKassinn utan um pít­s­una og rusla­fatan þar sem lög­regla fann hann.

Bent hefur verið á að þetta sé gott ár fyrir pít­sa­kassa þegar kemur að glæpa­málum en í árs­byrjun var Andrew Tate hand­tek­inn í Rúmeníu grun­aður um man­sal, nauðgun og skipu­lagða glæp­a­starf­semi eftir að hann tal­aði til umhverf­is­vernd­ar­sinn­ans Gretu Thunberg á mynd­bandi þar sem sáust tveir pít­sa­kassar sem munu hafa komið lög­regl­unni á sporið hvar hann væri staddur.

DNA-sýnið var loka­hnykk­ur­inn. Heu­er­mann var fyrst tengdur við málið vegna bíls­ins sem hann ók árin 2009-2010, Chevrolet Avalanche, sem sást við heim­ili einnar kon­unnar áður en hún hvarf.  Lýsing vitnis á manni sem hafði séð hann með Amber kvöldið áður en hún hvarf pass­aði við Heu­er­mann sem er stór og þrek­inn. Hann er sagður hafa fengið sér nýjan einnota síma sem hann hafi notað í tengslum við hvert morð en á sím­ana hafi hann líka tekið myndir af sér og sent kon­unum. Hann tók líka sjálfur og setti á Tind­er­prófíl með fölsku nafni. Þá hafi hann verið með fjölda net­fanga sem hann not­aði.

Myndir sem Heu­er­mann birti á Tinder

Var lagður í einelti í skóla

Maður sem útskrif­að­ist úr Alfred Berner High School ásamt Heu­er­mann árið 1981 segir í sam­tali við New York Post að hann hafi haldið sig til hlés. „Rex var þög­ull, passívur og feim­inn,“ segir hann. „Ég finn til með kon­unni hans og börn­unum,“ segir skóla­fé­lag­inn fyrr­ver­andi enn­fremur.

Maureen Holpit, sem var með Heu­er­mann í Alfred Berner skól­anum, segir í sam­tali við U.S. Sun að hann hafi verið lagður í ein­elti og hún fundið til með honum. Henni brá mjög þegar hún heyrði af hand­tök­unni. „Mér finnst það mjög krípí því hann var alltaf svo rólegur, yfir­læt­is­laus og svo­lítið nörd,“ segir hún. Holpit seg­ist hafa reynt að vera góð við hann út af ein­elt­inu en hann mis­skilið það og hafi haldið hana vera skotna í sér. Hann hafi skilið eftir handa henni alls konar miða, til dæmis þar sem stóð „Ég er hrif­inn af þér. Ert þú hrifin af mér?“ og síðan voru tvö box þar sem hægt var að haka við já eða nei. Hún segir hann hins vegar hafa sýnt því skiln­ing þegar hún sagð­ist bara vilja vera vin­kona hans.

Tímaspursmál um næsta morð

Lög­reglan seg­ist hafa hand­tekið Heurmann núna af ótta við að hann myndi myrða fleiri. Hann hafi áfram verið virkur sam­skiptum við kyn­lífs­verka­konur þar sem hann nið­ur­lægði þær, og leit lög­regla nán­ast á það sem tíma­spurs­mál hvenær hann myndi drepa aftur. Þá var lög­regla líka mjög með­vituð um að hann fylgd­ist náið með rann­sókn­inni og var því passað vel upp á að ekk­ert myndi leka út.

Sak­sókn­ari í mál­inu segir að á fjórtán mán­aða tíma­bili hafi Heu­er­mann leitað yfir 200 sinnum að efni tengdu rann­sókn­inni á Gilgo-strandar morð­unum.  Meðal þess sem mátti finna í leit­ar­sögu hans var „Af hverju gat lög­regla ekki rakið sím­töl Long Island morð­ingj­ans“, „Kort­lagn­ing á fórn­ar­lömbum Long Island morð­ingj­ans“, „Lögregla hefur nýja rann­sókn á morð­unum á Gilgo-strönd­inni“ og  „Ný sím­tækni getur verið lyk­ill­inn að rann­sókn­inni á Long Island-morð­ingj­anum“.

Leit­ar­sagan hans sýndi enn­fremur að hann leit­aði mikið að myndum af kon­unum sem hurfu sem og að upp­lýs­ingum um fjöl­skyldur þeirra, svo sem hvar fjöl­skyldu­með­limir þeirra ættu heima.

Í ákæru­skjal­inu er einnig fjallað um að hann hafi leitað á net­inu að pynt­inga­klámi og staf­rænu kyn­ferð­is­of­beldi gegn börnum en afar trufl­andi dæmi sem nefnd eru til að mynda „girl begg­ing for rape porn“, „Crying girl pain­ful anal“, „pretty girl with bru­ised face porn“ og „Old Janitors gang­bang little school girl“.

Þegar hann var leiddur fyrir dóm­ara á föstu­dag neit­aði Heu­er­mann sök. Ása, eig­in­kona hans, var greini­lega í upp­námi þegar blaða­menn Newday sáu hana við dóm­sal­inn, og þegar hún var spurð um stöðu eig­in­manns­ins sagði hún ein­fald­lega: „Vin­sam­leg­ast látið mig í friði. Ég ætla ekki að tjá mig neitt“. Heu­er­mann var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald án mögu­leika á að vera lát­inn laus gegn trygg­ingu.

Sak­sókn­ari sagði fyrir helgi við blaða­menn að enn ætti eftir óska eftir fleiri leit­ar­heim­ildum og að rann­sóknin myndi halda áfram. „Þetta mál er ekki búið. Þetta er rétt að byrja,“ sagði hann.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár