Aðdá­endur for­set­ans Donald Trump Banda­ríkja­for­seti ræðir við gesti við Hvíta húsið á leið sinni um borð í þot­una Marine One í dag, sem mun flytja hann til Kentucky og Ohio. Mynd: BRENDAN SMIALOWSKI / AFP

Íranar segjast geta „eyðilagt“ hagkerfi heimsins í löngu stríði

Olíuverð smit­ast út í verð­lag með slæmum afleið­ingum fyrir allt heims­hag­kerfið.

Íranar sögð­ust í dag vera reiðu­búnir í langt stríð sem myndi „eyði­leggja“ efna­hag heims­ins, eftir að hafa skotið á tvö flutn­inga­skip og hótað öllum skipum frá Banda­ríkj­unum eða banda­mönnum þeirra.

Þegar stjórnin í Teheran lok­aði Hor­mússundi, mik­il­vægri sigl­inga­leið fyrir alþjóð­lega olíu­verslun, sagði Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, að stríð­inu myndi ljúka „bráð­lega“ þar sem lítið væri eftir fyrir banda­ríska her­inn að ráð­ast á í Íran.

Olíuverð hefur hækkað mikið síðan 28. febr­úar, þegar Banda­ríkin og Ísrael réð­ust á Íran, drápu æðsta leið­toga lands­ins og steyptu Mið-Aust­ur­löndum út í stríð.

Hér á Íslandi geta afleið­ing­arnar orðið þær til skemmri tíma að verð­bólga eykst með hækkun elds­neyt­is­verðs. Það gerir lík­legra en ella að Seðla­bank­inn hækki stýri­vexti í fyrsta skiptið í tvö og hálft ár á vaxta­á­kvörð­un­ar­degi á mið­viku­dag­inn í næstu viku. Grein­ing­ar­deild Íslands­banka spáði í dag að vext­irnir yrðu hækk­aðir um 0,25 pró­sentu­stig. Þar með myndu óverð­tryggðir vextir hús­næð­is­lána hækka. Þess utan hækkar verð­bólgan höf­uð­stól verð­tryggðra fast­eigna­lána, en 65% íslenskra lán­tak­enda  hafa slík lán. Til lengri tíma hefur olíu­verð áhrif á flest alla fram­leiðslu, allt frá áburði og þar með land­bún­að­ar­af­urðum yfir í flutn­ings­kostnað, sem getur hækkað enn meira inn­flutta verð­bólgu á Íslandi og um allan heim.

Losa birgðir

Í til­raun til að stjórna verð­hækk­unum sagði Alþjóða­orku­mála­stofn­unin að aðild­ar­lönd hennar myndu losa 400 millj­ónir tunna af olíu úr birgðum sínum – stærsta slíka losun frá upp­hafi vega.

Nú þegar átökin hafa staðið í 12 daga hét bylt­ing­ar­vörður Írans því að ráð­ast á „efna­hags­mið­stöðvar og banka“ sem hann telur tengj­ast hags­munum Banda­ríkj­anna og Ísraels, sem varð til þess að fleiri alþjóð­leg fyr­ir­tæki fluttu starfs­menn sína frá Dúbaí.

En allra augu beindust að Hor­mússundi, en þar fara 20 pró­sent af hrá­olíu og fljót­andi jarð­gasi heims­ins um.

Banda­ríkin og Ísrael „verða að íhuga þann mögu­leika að þau muni taka þátt í löngu stríði sem mun eyði­leggja allt banda­ríska hag­kerfið og hag­kerfi heims­ins,“ sagði Ali Fadavi, ráð­gjafi yfir­hers­höfð­ingja bylt­ing­ar­varð­ar­ins, í sam­tali við rík­is­sjón­varpið þar.

Íranar sögð­ust hafa ráð­ist á gáma­skipið Express Rome, sem siglir undir fána Líberíu, og taí­lenska lausa­farms­skipið Mayuree Naree vegna þess að þau hefðu farið inn í sundið „eftir að hafa hunsað við­var­anir sjó­hers bylt­ing­ar­varð­ar­ins“.

Sjóher Ómans bjarg­aði 20 áhafn­ar­með­limum en leit stóð yfir að þremur til við­bótar. Myndir sem taí­lenski sjó­her­inn deildi sýndu svartan reyk stíga upp af skip­inu.

Árásir á flugvöll og eldsneytistanka við Persaflóa

Sér­fræð­ingar segja að langvar­andi lokun sunds­ins, sem einnig flytur þriðj­ung af áburði fyrir mat­væla­fram­leiðslu heims­ins, myndi hafa hrika­leg áhrif á efna­hag heims­ins, sér­stak­lega í Asíu og Evrópu.

Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, hvatti leið­toga G7-ríkj­anna til að grípa til aðgerða til að koma á sigl­ingum í sund­inu „eins fljótt og auðið er“, á meðan Sam­ein­uðu þjóð­irnar báðu alla aðila um að leyfa flutn­ing á mann­úð­ar­farmi.

Íran hefur aukið á efna­hags­legar afleið­ingar með því að ráð­ast á banda­menn Banda­ríkj­anna við Persaflóa.

Í dag féllu drónar nálægt flug­vell­inum í Dúbaí og særðu fjóra, að sögn borg­ar­yf­ir­valda.

Banda­ríska fjár­mála­þjón­ustu­sam­steypan Citi og breska ráð­gjaf­ar­fyr­ir­tækið Deloitte hafa beðið starfs­menn um að yfir­gefa skrif­stofur sínar í Dúbaí, að því er AFP frétta­stofan hefur eftir heim­ild­ar­mönnum sínum.

Drónar réð­ust einnig á elds­neytistanka í Salalah-höfn í Óman, að því er frétta­stofa Ómans greindi frá.

Einka­rekna sjó­ör­ygg­is­fyr­ir­tækið Vanguard Tech til­kynnti um stöðvun á starf­semi hafn­ar­innar eftir árás­ina á suð­ur­hluta hennar.

Efna­hags­legu áhrifin auka þrýst­ing­inn á Trump, sem stendur frammi fyrir ásök­unum um að Hvíta húsið hafi hafið stríðið án þess að und­ir­búa afleið­ing­arnar.

„Hvenær sem ég vil að því ljúki, þá lýkur því,“ er haft eftir Trump í við­tali við Axios. Íranar segja hins vegar stríðið ekki enda án þess að þeir ákveði það.

Eldhnöttur í Beirút

Í Ísrael sagði Israel Katz varn­ar­mála­ráð­herra: „Þessi aðgerð mun halda áfram án nokk­urra tíma­marka, eins lengi og nauð­syn­legt er.“

Ísraelar sögð­ust hafa hafið nýja „víð­tæka árás­ar­hr­inu“ víðs vegar um Íran og gegn skot­mörkum Hezbollah í Beirút, höf­uð­borg Líbanons.

Ísra­elskar árásir hæfðu íbúða­bygg­ingu í mið­borg Beirút í annarri árás á mið­borg­ina frá því stríðið í Mið-Aust­ur­löndum hófst.

Bein útsend­ing AFPTV náði hljóði loft­árásar og í kjöl­farið sprakk eld­hnettur í íbúð í fjöl­býl­is­húsi í Beirút.

Frétta­rit­ari AFP sá eyði­lagða veggi á sjö­undu og átt­undu hæð bygg­ing­ar­innar, með skemmdum bílum í nágrenn­inu og örygg­is­sveitir á staðnum.

Þegar árásin var gerð, „hljóp ég úr her­bergi í her­bergi, dró konu mína og dóttur út úr her­bergj­unum og faldi þær á bak við vegg, svo kom seinni árásin,“ sagði Fawzi Asmar, eig­andi bak­arís við göt­una þar sem árásin átti sér stað.

Yfirvöld í Líbanon segja 634 hafa dáið í árásum Ísraels og að 800 þús­und manns séu á ver­gangi.

„Fólk rólegt“

Árásir Ísraela og Banda­ríkja­manna hófust nokkrum vikum eftir að írönsk yfir­völd brutu niður fjölda­mót­mæli með fjöldamorðum á íbúum lands­ins, þótt Banda­ríkin og Ísrael segi að þau séu ekki endi­lega að reyna að steypa íslamska lýð­veld­inu af stóli. Um leið hvatti Banda­ríkja­for­seti Írana til þess að taka lögin í eigin hendur, eins og hann hafði gert þegar mót­mælin hófust.

Írönsk yfir­völd vör­uðu við and­ófi heima fyrir og lög­reglu­stjóri lands­ins sagði að litið yrði á mót­mæl­endur sem „óvini“ og tekið á þeim sem slíkum.

„Allar sveitir okkar eru einnig til­búnar, með fingur á gikknum, reiðu­búnar til að verja bylt­ing­una,“ sagði Ahmad-Reza Radan, yfir­maður rík­is­lög­regl­unnar, í ummælum sem IRIB sendi út.

Í Íran gerði almenn­ingur sitt besta til að aðlag­ast líf­inu undir tíðum árásum Banda­ríkj­anna og Ísraels.

„Við treystum á Guð. Í bili er til matur í búð­unum,“ sagði Mahvash, sjö­tugur íbúi í Teheran, við blaða­menn AFP í París.

„Fólk er rólegt,“ sagði annar íbúi. „Það er að venj­ast því að lifa þrátt fyrir allt og aðlag­ast – eins vel og það getur – þessum aðstæðum.“

Banda­ríkin og Ísrael hófu stríðið með árás sem varð æðstaklerki Írans, Aya­tollah Ali Khamenei, að bana.

Sonur hans, Mojtaba Khamenei, hefur verið útnefndur arf­taki hans, þótt hann hafi enn ekki komið fram opin­ber­lega, innan um fregnir af því að hann hafi særst.

Nýr leið­togiKona heldur á mynd af látna æðstaklerknum Ali Khamenei og syni hans og arf­taka, Mojtaba Khamenei, í jarð­ar­för hátt­settra aðila úr íranska bylt­ing­ar­varð­liðiðnu. Myndin er tekin með leyfi íranska menn­ing­ar­ráðu­eyt­is­ins. Frelsi fjöl­miðla er veru­lega skert í Íran.

„Ég heyrði fréttir af því að herra Mojtaba Khamenei hefði særst. Ég hef spurt nokkra vini sem höfðu teng­ingar,“ skrif­aði Yousef Pezeshkian, sonur Írans­for­seta, í færslu á Telegram-rás sinni.

Sendi­herra Teheran á Kýpur, Alireza Salarian, sagði við dag­blaðið The Guardian í dag að Khamenei hefði særst í sömu árás og varð föður hans að bana.

Heil­brigð­is­ráðu­neyti Írans sagði þann 8. mars að meira en 1.200 manns hefðu fallið í árásum Banda­ríkj­anna og Ísraels og yfir 10.000 almennir borg­arar hefðu særst. AFP hafði ekki tök á að sann­reyna þessar tölur með óháðum hætti.

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HJB
    Henry Júlíus Bæringsson skrifaði
    Nú gengur sú saga, fjöllunum hærra, að Íranir hafi fellt Netanyahu forsætisráðherra Ísraels. Hann ku víst ekki hafa sést opinberlega síðustu 4 daga.
    0
    • Odinn Magnusson skrifaði
      Vonandi er sagan sönn! Gyðingarnir eru undirrót ófriðar í miðausturlöndum og þótt víðar væri leitað.
      1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íransstríðið

Mest lesið undanfarið ár