„Það hentar þeim ekki að almenningur í landinu vakni“

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra segir Sjálf­stæð­is­flokk og Miðflokk beita áróðri gegn Evr­ópu­sam­bands­að­ild sem komi beint úr hand­bók Nigel Farage. Segi þjóðin „já“ geti Ísland orðið aðild­ar­ríki í árs­lok 2028 en ef „nei“ verður svarið komi það til kasta Alþingis að draga umsókn­ina frá 2009 til baka.

„Það hentar þeim ekki að almenningur í landinu vakni“
Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir Utan­rík­is­ráð­herra segir það munu hafa afdrifa­ríkar afleið­ingar fyrir almenn­ing ef „nei“ verður nið­ur­staðan í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um áfram­hald aðild­ar­við­ræðna við Evr­ópu­sam­bandið. Mynd: Golli

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra telur að það muni taka tvö ár að klára aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið sam­þykki kjós­endur í þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu 29. ágúst að halda áfram við­ræðum. Hún seg­ist von­góð um góða nið­ur­stöðu í samn­ingi við ESB um sjáv­ar­út­vegs­mál, engar áhyggjur hafa af orku­mál­unum og telur að mikil tæki­færi felist í land­bún­að­ar­kafl­anum. Allt tal um fram­sal auð­linda við inn­göngu í ESB sé „kjaftæði“.

Ráðherra var stödd í Hamborg þegar Heim­ildin ræddi við hana um fyr­ir­hug­aða þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu sem rík­is­stjórnin hefur boðað. Skömmu áður fund­aði hún með kol­legum sínum í Lissabon og fyrr í mán­uð­inum var hún í Brussel með Mörtu Kos, stækk­un­ar­stjóra ESB, og Kaju Kallas, vara­for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB, þar sem þær und­ir­rit­uðu sam­starfs­yf­ir­lýs­ingu Íslands og ESB í varnar- og örygg­is­málum.

Stjórn­ar­and­staðan hefur sakað Þorgerði Katrínu um að vera þannig byrj­aða í aðild­ar­við­ræðum við ESB áður en til­laga um þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu er einu sinni komin í gegnum Alþingi. „Það eru engar …

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • HW
    Hardy Wardropper skrifaði
    Þorgerður Katrín virðist ekki hafa heyrt að mjög margir Bretar eru skelfingu lostnir með núverandi ríkisstjórn, einnig eru þeir mikið á móti að fara aftur inn í ESB. Það má ekki heldur gleyma því að ESB fór alls ekki vel með okkur Íslendingum í Icesave málinu eftir bankahrunið 2008. Þetta var góð lexía að læra...
    -8
    • Jón Heiðar Ragnheiðarson skrifaði
      Meirihluti Breta sér eftir Brexit skv. öllum könnunum.
      0
    • Soffia Reynisdottir skrifaði
      Meirihluti Breta sér eftir að hafa kosið Brexit.
      0
  • Magnús Mörður Gígja skrifaði
    Vonanandi að einhver leiðrétti mig ef það sem ég fullyrði hér, það sem ég hef heyrt og orðið var við (Reynsla frá Danmörk) ríki innan ESB er frjálst að hafa sína hentisemi hvaða lög sem ESB samþykkja eru tekin upp í hverju landi fyrir sig, þannig er ekki öll ESB ríkin með það sama í lögum og reglugerðum!? https://esbvaktin.is þessi síða er mjög góð til þess að fá upplýsingar um hvað er rétt eða rangt sem fullyrt er um ESB.
    9
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár