„Fólk er hrætt”

„Ef þú býrð í landi þar sem verið er að fylgj­ast með þér, þá er það veru­leiki sem þú þarft að díla við,” segir Magnús Þorkell Bern­harðs­son, Mið-Aust­ur­landa­fræð­ingur við Williams College í Banda­ríkj­unum og gesta­pró­fessor við guð­fræði- og trú­ar­bragða­fræði­deild HÍ – sem nýverið flutti hér á landi fyr­ir­lestra, annan um Íran og eld­fimt ástand vegna inn­rásar þar, hinn um aðþrengt akademískt frelsi í Banda­ríkj­unum.

„Fólk er hrætt”
Magnús Þorkell Bern­harðs­son talar bæði arab­ísku og pers­nesku. Hann leggur upp úr því að geta sjálfur lesið frum­heim­ildir. Mynd: Golli

 I.

Magnús Þorkell hélt fyr­ir­lestur við opnun Hug­vís­inda­þings með yfir­skrift­inni Hvað má og hvað má ekki? Akademískt frelsi á tíma­mótum. Þar fjall­aði hann um gríð­ar­legar breyt­ingar sem orðið hafa á háskólaum­hverfi í Banda­ríkj­unum – eins og sagði í til­kynn­ingu um fyr­ir­lest­ur­inn: „Í kjöl­far stríðs­ins á Gaza 2023, end­ur­kjörs Donalds Trump 2024 og nýrra upp­lýs­inga úr Epstein-skjöl­unum 2026 standa akademískar stofn­anir nú höllum fæti.“

Þegar fyr­ir­lest­ur­inn hófst mátti sjá að efnið brann á fyr­ir­les­ar­anum; fín­gerður mað­ur­inn ólg­aði af kröft­ugri til­finn­ingu þegar hann fjall­aði um starfs­um­hverfið ytra, bæði eft­ir­lit með starfi á háskóla­svæðum, með kenn­urum og nem­endum, og því hvernig fjár­veit­ingar hafa verið skertar, jafn­vel stöðv­aðar. 

Því má velta fyrir sér hvaða áhrif téð fram­vinda á eftir að hafa bæði á evr­ópska og íslenska fræði­menn. Segja má að Magnús Þorkell sé allt í senn, íslenskur, banda­rískur og evr­ópskur fræði­maður, maður með tvö­falt rík­is­fang, hér heima og í Banda­ríkj­unum.

Kjósa
106
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞJ
    Þórdís Jónsdóttir skrifaði
    Hafið þökk fyrir góða grein og mikinn fróðleik
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Mjög áhugavert og fróðlegt innlegg í þá umræðu sem er ofarlega á baugi
    6
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Takk fyrir þessa frábæru grein! Mjög upplýsandi og áhugaverð.
    8
  • Áslaug Sigurjónsdóttir skrifaði
    Áhrifarík grein. Skil aðeins betur umhverfið þarna en biblíusögurnar koma þaðan er það ekki
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár