Bókmenntabrú milli heimsálfa

Þau Helen Cova og Sigurður Jök­uls­son vendu kvæði sínu í kross fyrir fjórum árum, keyptu hús á Flateyri og hafa síðan þá stofnað bóka­út­gáfu sem og sett á fót bók­mennta­há­tíð þar í bæ. Þau segja að bóka­út­gáfan Karíba sé bók­mennta­brú milli Suður-Ameríku og Íslands og að mark­miðið með útgáf­unni sé að kynna undur suð­rænna bók­mennta fyrir norðr­inu og að skapa bein tengsl við raun­veru­leika Suður-Ameríku með augum þeirra fjöl­mörgu höf­unda.

Bókmenntabrú milli heimsálfa

Helen, sem er sjálf rit­höf­undur, er fædd í Venes­ú­ela. Hún flutti til Íslands fyrir 10 árum síðan og heill­að­ist af Vest­fjörðum eftir að hafa dvalið í eitt ár á Þingeyri. Þar dvaldi hún og skrif­aði í Blá­bank­anum þar í bæ og eftir þá dvöl náði hún að sann­færa mann­inn sinn um að kaupa hús á Flateyri og flytja vestur, ákvörðun sem þau sjá ekki eftir.

„Ég var hluti af Ós press­unni og lærði þar mikið um bóka­út­gáfu. Ég hafði tekið eftir að það var ekki mikið um bækur frá Suður-Ameríku hér á landi og mig lang­aði að breyta því og ákvað því að stofna þessa bóka­út­gáfu. Þetta er lítil útgáfa, en ég er að reyna að gera eitt­hvað og auka flór­una í bók­mennta­heim­inum hér á landi. Þetta fer í báðar áttir, við gefum út íslenskar bækur í Venes­ú­ela og bækur þaðan hér,“ segir Helen.

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu