Búist við atkvæðagreiðslu um Hormússund í öryggisráðinu

Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna greiðir lík­lega atkvæði í dag um útþynnta til­lögu Persaflóa­ríkja um að sér­hverju landi verði heim­ilt að beita her­valdi til að opna fyrir sigl­ingar um Hor­mússund. Olíuverð hefur snar­hækkað eftir að Íranir svo gott sem lok­uðu sund­inu eftir árásir Banda­ríkj­anna og Ísraels á landið.

Búist við atkvæðagreiðslu um Hormússund í öryggisráðinu
Örygg­is­ráðið Lönd sem eiga fast sæti í örygg­is­ráð­inu – og þar með neit­un­ar­vald – hafa ekki verið á bandi Persaflóa­ríkj­anna í mál­inu. Mynd: EPA

Búist er við að örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna greiði atkvæði í dag um útvatn­aða ályktun þar sem kallað er eftir því að Hor­mússund verði opnað. Tillagan er langt frá upp­haf­legu mark­miði Persaflóa­ríkj­anna sem standa að henni, um að fá heim­ild til að opna sigl­inga­leið­ina með valdi.

Atkvæða­greiðslan er áætluð klukkan þrjú í dag, þótt nið­ur­staðan sé ekki vís. Texti álykt­un­ar­innar hefur verið þynntur út und­an­farna daga í von um að koma í veg fyrir að henni verði hafnað. Í drögum sem AFP sá í gær er ekki lengur minnst á heim­ild til vald­beit­ingar – ekki einu sinni í varn­ar­skyni.

Atkvæða­greiðslan fer fram aðeins nokkrum klukku­stundum áður en frestur sem Donald Trump for­seti Banda­ríkj­anna gaf Íran til að að opna sundið eða eiga á hættu að banda­ríski her­inn eyði­leggi orku­ver og brýr lands­ins. Frest­ur­inn rennur út á mið­nætti. 

Stjórn­völd í Barein, með stuðn­ingi Banda­ríkj­anna og ann­arra olíu­út­flutn­ings­ríkja við Persaflóa, …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár