Nýtt efni

Gerðu húsleit hjá þingkonu Demókrata
Ilhan Omar hefur áður sagt rannsókn yfirvalda á sér vera pólitíska árás. Þrjár vikur eru til þingkosninga í Bandaríkjunum, þar sem úrslitin ráða því hvor flokkurinn fær meirihluta á þingi. Omar hefur gagnrýnt Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, harðlega, sem hefur svarað af hörku.

Grænland og Bandaríkin þurfa að byggja upp „traust“ á ný
Mute Egede segir kröfur Donalds Trump um yfirráð yfir Grænlandi hafa skaðað samskiptin við Bandaríkin. Grænlenska þingið tekur nú til umræðu samkomulag um tvær nýjar herstöðvar Bandaríkjahers.

Sólveig Anna: „Nú er það traust algjörlega horfið“
Formaður Eflingar segir traust á milli Eflingar og framkvæmdastjóra Samtaka Atvinnulífisins brostið eftir viðræður við VR. Hún segir framkvæmdastjórann hafa beitt klækjastjórnmálum.

Hall og Woodford fá Nóbelsverðlaunin í hagfræði
Robert E. Hall og Michael Woodford hafa rannsakað hvernig ákvarðanir einstaklinga og fyrirtækja tengjast þróun hagkerfisins og hvernig hagstjórn getur stuðlað að stöðugleika.

Burnham segir ljóst að Rússar hafi skipt sér af Brexit-atkvæðagreiðslunni
Forsætisráðherra Bretlands segist hafa fengið skýra staðfestingu á afskiptum Rússa þegar hann tók við embætti. Hann hyggst í dag hvetja þingmenn til að leita eftir nýju samkomulagi við Evrópusambandið og nánari tengslum við það.

Hart deilt um 10 milljarða viðhald í Reykjanesbæ
Kostnaður vegna viðgerða og viðhalds á tveimur grunnskólum í Reykjanesbæ er kominn í tíu milljarða. Fyrrum meirihluti gagnrýnir nýja bæjarstjórn fyrir að fara 300 milljónir yfir áætlun á einum mánuði.

Sokkin borg á Silkiveginum varpar ljósi á gleymda sögu Mið-Asíu
Vísindamenn rannsaka rústir borgar sem hefur legið undir vatni í Kirgistan um aldir. Lítið er vitað um sögu hennar eða hvers vegna hún fór á kaf, en rannsóknirnar gætu aukið skilning á tengslum austurs og vesturs á miðöldum.

Veltihringrás og virkjanir: Fyrstu tuttugu mánuðir umhverfisráðherra
„Margt hefur áunnist í orkumálum,“ sagði Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra eftir þinglok í júní. Virkjanaframkvæmdir, veltihringrásin AMOC, hafið og loftslagsvendipunktar hafa verið meðal verkefna ráðherra undanfarið. Heimildin fór yfir störf Jóhanns Páls síðustu tuttugu mánuði.

Óttast stefnubreytingu hjá DR
Danskir leikarar, leikstjórar, handritshöfundar, myndatökumenn og fleiri sem unnið hafa að gerð leikinna sjónvarpsþátta hjá Danska sjónvarpinu, DR, óttast stefnubreytingu undir stjórn nýs yfirmanns. Minni áhersla verði lögð á gerð vandaðra leikinna þáttaraða, sem hafa verið ein helsta skrautfjöður DR mörg undanfarin ár og skapað miklar tekjur.

Frakkland í krísu og fjarhægrið sækir á
Aðeins 15 prósent hafa jákvætt álit á Macron Frakklandsforseta. Eldsneytisverð í Frakklandi er í sögulegu hámarki og framhaldsskólanemar mótmæla.

Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Forsætisráðherra segir að niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar verði virt en ekki komi til greina að loka á Evrópu eða grafa undan EES-samningnum. Orð hennar falla á sama tíma og stjórnarandstaðan vill staðfestingu á stöðu aðildarumsóknarinnar og frumvarp um bókun 35 liggur aftur fyrir Alþingi.








Athugasemdir