Nýtt efni

Kínverjar kveðja gervigreindarfélaga sína: „Eins og elskhugi minn“
„Ástin sem gervigreindin veitir er svo einföld og hrein,“ segir notandi gervigreindarfélaga. Sorgmæddir Kínverjar þurfa nú að kveðja sýndarvini sína eftir að nýjar reglur tóku gildi sem banna slík kerfi.

Grænlendingar mótmæltu olíuleit Bandaríkjamanna
„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, formaður bæjarráðs Ittoqqortoormiit, þegar Grænlendingar mótmæltu fyrirhugaðri olíuleit bandarísks fyrirtækis á austurströnd landsins. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auðlindaráðherra Grænlands segir engar leyfisveitingar hafa orðið.

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
Bjarni Benediktsson er orðinn hluthafi í Alfa, fjölskyldufyrirtæki Engeyinga, sem er stærsti eigandi Kynnisferða og á hlut í fjölda skráðra félaga á markaði. Félagið seldi Tékkland bílaskoðun og Bjarni fær um 19 milljónir króna í arð. Bjarni hefur áður sagst ekki koma að rekstri viðskiptaveldis fjölskyldunnar.

Ómenning að líta á kynferðisbrot sem „fórnarkostnað við skemmtun“
Drífa Snædal talskona Stígamóta segir orðræðu um kynferðisbrot á útihátíðum „einkennismerki þess að ofbeldi er látið viðgangast í samfélaginu“. Um helgina voru fjögur kynferðisbrot á útihátíðum tilkynnt til lögreglu en hátíðarhaldarar og lögregla tala um að hátíðarhöld hafi almennt gengið vel.

Fulltrúar ICE skutu annan mann til bana nokkrum dögum eftir banvæna skotárás
„Eini glæpur hans var að hann passaði við lýsingu á öðrum manni sem þeir voru að leita að,“ sagði lögmaður um mann sem var skotinn til bana af ICE. Á innan við viku hafa tveir verið drepnir í árásum ICE, en í hvorugu tilvikinu var hinn látni sá sem leitað var að. Vitni lýsa atvikum með allt öðrum hætti en yfirvöld. „Við búumst við yfirhylmingu.“

Hitamet gæti fallið á morgun
Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir að hitamet frá 1939 gæti jafnvel fallið á morgun.

Sögulegur skógur fyrir utan París brennur í eldinum
Frakkar eru að kafna í þriðju stóru hitabylgjunni á innan við tveimur mánuðum og hundruð franskra slökkviliðsmanna berjast við gróðurelda sem hafa geisað í vinsælum skógi fyrir utan París.

Ákærður fyrir að nauðga 14 konum
Lögregla fékk ábendingu um að 68 ára gamall karlmaður væri grunaður raðnauðgari. Við húsleit fundust myndskeið af honum nauðga konum sem hann hafði byrlað ólyfjan. Hann hefur verið ákærður fyrir brot gegn 14 konum, en alls hafa 58 konur verið nefndar í tengslum við málið.

Skjóta flugskeytum beint í hjarta Kyrrahafsins
„Höfin okkar eru ekki tómt svæði eða varnarsvæði milli stórvelda heimsins – þau eru eign okkar, lífsviðurværi okkar og hluti af sjálfsmynd okkar sem verndara hafsins,“ sagði ráðherra í ríkisstjórn Kíribatí. Tólf ríki hafa fordæmt tilraunir Kínverja með langdræg flugskeyti.

Spyr hvort Evrópubúar ætli ekki að spyrna fótum eins og í Krossferðunum
Stefán Einar Stefánsson varði Krossferðir Kaþólsku kirkjunnar og spurði hvort Evrópubúar mundu hafa dug í sér til að bregðast við „íslamvæðingu“ nútímans.

Bandaríkin lýsa yfir herferð gegn Alþjóðaglæpadómstólnum
Ríkisstjórn Trumps ætlar að grafa undan Alþjóðaglæpadómstólnum til að verja fullveldi Bandaríkjanna. Rubio segir dómstólinn „heyja stríð gegn landi okkar“ með „svokölluðum alþjóðalögum“. Lönd eins og Ísland „munu sæta aukinni athugun“.

Trump skerðir verndarsvæði til að opna á námuvinnslu
Bandaríkjaforseti hefur opnað á námugröft og olíuvinnslu á náttúruverndarsvæðum á stærð við þriðjung flatarmáls Íslands. Um leið endurskilgreinir hann skaða á náttúru.



Athugasemdir