Kleini handtekinn grunaður um hópnauðgun

Kleini var hand­tek­inn ásamt tveimur öðrum mönnum um helg­ina grun­aður um að hafa nauðgað konu tímunum saman. Fyrr­ver­andi kærasta segir hann hafa beitt sig ofbeldi í sam­band­inu.

Kleini handtekinn grunaður um hópnauðgun
Kleini Kristján Einar Sig­ur­björns­son er í haldi lög­reglu grun­aður um að hafa beitt unga konu ofbeldi tímunum saman í slag­togi við aðra menn. Mynd: Ernir Eyjólfsson

Kristján Einar Sig­ur­björns­son, eða Kleini, er einn hinna hand­teknu í ofbeld­is­máli á Akureyri þar sem þremur mönnum er gefið að sök að hafa nauðgað konu í félagi við tvo aðra menn. Morg­un­blaðið greindi frá því í dag. Fyrr­ver­andi kærasta Kleina, Hafdís Björg Krist­jáns­dóttir, opn­aði sig á sam­fé­lags­miðlum í gær þar sem hún sagði Kleina hafa beitt sig ofbeldi á meðan þau voru enn í sam­bandi. Hún lýsir mik­illi van­mátt­ar­kennd og að hún eigi erfitt með að finna ekki til ábyrgðar í mál­inu.

„Mér þykir ótrú­lega erfitt að fylgj­ast með fréttum í dag og erfitt að kenna ekki sjálfri mér um að hafa ekki stigið fram og varað aðrar stelpur við ofbeld­inu sem fylgir þessum manni. Sam­visku­bitið er að drepa mig,“ skrif­aði hún á Facebook í morgun.

Hafdís Björg Krist­jáns­dóttirHafdís opn­aði sig um ofbeld­is­sam­band við Kleina á sam­fé­lags­miðlum í morgun.

Þar lýsir hún alvar­legu ofbeld­is­sam­bandi þar sem hún ótt­að­ist meðal ann­ars um líf sitt. Hún seg­ist hafa misst trúna á kerf­inu þar sem Kleina var ítrekað sleppt úr haldi eftir að hafa beitt hana ofbeldi.

„Ég spurði lög­regl­una í síð­ustu skýrslu­töku hversu oft þeir ætl­uðu að hand­taka mann­inn án þess að loka hann inni. Þeir sögðu að þeir væru sjálfir að berja hausnum í vegg yfir þessu bless­aða kerfi,“ skrifar Hafdís Björg og lýsir því þegar hún gafst upp.

„Ég gafst upp á kerf­inu eftir að ég stóð fyrir framan úti­dyra­hurð­ina með hníf í bak­inu á meðan verið var að lýsa fyrir mér hvernig ég yrði drepin ef lög­reglan kæmi inn um dyrnar. En ég ætla ekki að telja upp við­bjóð­inn sem ég gekk í gegnum, því ég kenni mér enn um hversu langt og lengi ég leyfði þessu að ganga,“ segir Hafdís Björg.

DV greindi frá því í gær að þrír menn hefðu verið hand­teknir á hót­eli í miðbæ Akur­eyrar aðfara­nótt sunnu­dags. Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar er Kleini einn hinna hand­teknu, líkt og Morg­un­blaðið greinir frá. 

Morg­un­blaðið greindi svo frá því að konan hefði verið flutt á Fjórð­ungs­sjúkra­húsið á Akureyri með tals­verða áverka eftir árás­ina.

Heim­ildin greindi frá því árið 2023 að Kleini hefði verið dæmdur fyrir ofbeld­is­fullt rán á Spáni. Sjálfur hélt Kleini því fram að hann hefði verið í haldi fyrir „fyll­er­ísslags­mál“ og baðst síðar afsök­unar á því.

DV greinir frá því að mynd­band af árásinni hafi farið í dreif­ingu á sam­fé­lags­miðlum og að árásin hafi staðið yfir klukku­stundum saman. Menn­irnir eru í haldi lög­regl­unnar. Ekki er ljóst hvort menn­irnir hafi verið úrskurð­aðir í gæslu­varða­hald.

Kjósa
28
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Viðbjóður! Hugur minn og vonandi sem flestra er hjá fórnarlambinu.
    2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár