Kristján Einar var dæmdur fyrir ofbeldisfullt rán á Spáni

Kristján Einar Sig­ur­björns­son sjó­maður, sem stundum er kall­aður áhrifa­valdur, var dæmdur í tæp­lega fjög­urra ára skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir rán og til­raun til ráns í fyrra. Hann sat í gæslu­varð­haldi í átta mán­uði og ját­aði sök á end­anum og kom til Íslands. Við heim­kom­una sagði hann sögur um brot sín og afplánun sem ganga ekki alveg upp miðað við dóm­inn í máli hans.

Dómurinn fyrir rán og ránstilraun
Dómurinn fyrir rán og ránstil­raun Kristján Einar Sig­ur­björns­son var dæmdur fyrir rán og ránstil­raun í Málaga í fyrra. Mynd: Ernir Eyjólfsson

Dómurinn frá Spáni yfir Krist­jáni Einari Sig­ur­björns­syni, sjó­manni sem stundum er kall­aður áhrifa­valdur, segir aðra sögu um brot hans en hann sjálfur gerir. 

Kristján Einar, sem gengur undir við­ur­nefn­inu Kleini, var í nóv­em­ber í fyrra dæmdur í skil­orðs­bundið fang­elsi í þrjú ár og níu mán­uði á Spáni. Dómurinn var fyrir ofbeld­is­fullt rán og til­raun til ofbeld­is­fulls ráns í borg­inni Málaga í Andalúsíu í mars 2022. Þetta má lesa í dómnum í máli hans sem Heim­ildin fékk sendan frá yfir­völdum í Málaga. Dómurinn í máli hans féll þann 17. nóv­em­ber 2022 og var hann skil­orðs­bund­inn til þriggja ára.

Sagði ákæruvaldið ekki hafa haft neitt á hann

Kristján Einar, sem varð þekktur á Íslandi sem kær­asti Svölu Björg­vins­dóttur söng­konu, sat í gæslu­varð­haldi í fang­elsi í Málaga í átta mán­uði áður en hann var dæmdur og honum sleppt í nóv­em­ber.

Hann kom svo aftur til Íslands og sagði …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár