Var settur á samheitalyf, steyptist út í sárum og lést

Sig­ur­laug Gísla­dóttir, móðir manns með hvít­blæði sem lést haustið 2023, segir son sinn hafa verið lát­inn þjást að óþörfu þegar hann var tek­inn af frum­lyfi og settur á sam­heita­lyf þrátt fyrir að læknir hans hefði óskað eftir áfram­hald­andi lyfja­skír­teini fyrir frum­lyfið. Eftir að hann skipti um lyf steypt­ist hann út í sárs­auka­fullum sárum. „Hann bara gat ekki meir,“ segir hún.

Var settur á samheitalyf, steyptist út í sárum og lést
Svæsin sár Móðir Gunn­laugs segir að heil­brigð­is­starfs­fólk hafi staðið á gati gagn­vart húð­út­brot­unum.

Gunn­laugur Dan Sig­urðs­son var 38 ára gam­all þegar hann lést í októ­ber 2023 en hann hafði greinst með hvít­blæði þremur árum áður. Móðir hans, Sig­ur­laug Gísla­dóttir, telur að Gunn­laugur hafi lát­ist af öðrum orsökum en standa á dán­ar­vott­orði hans. 

Skömmu eftir að hafa verið tek­inn af frum­lyfi við járnof­hleðslu vegna blóð­gjafa og settur á sam­heita­lyf fór Gunn­laugur að steyp­ast út í sárs­auka­fullum sárum. Eftir að hafa glímt við síversn­andi og sárs­auka­full húð­út­brot segir Sig­ur­laug að sonur hennar hafi neitað að halda inn­töku lyfs­ins áfram. „Hann vissi alveg hvað myndi ger­ast ef hann hætti að taka lyfið. Hann bara gat ekki meir.“

Samkvæmt lyfja­skrá var mun­ur­inn á 90 taflna skammti af frum- og sam­heita­lyf­inu rétt rúmar 11 þús­und krónur í apó­teki haustið 2023. Lyfin eru bæði leyf­is­skyld og í lyfja­lögum eru slík lyf skil­greind þannig að þau megi ein­göngu nota að und­an­gengnu sam­þykki lyfja­nefndar Land­spít­ala. 

Sig­ur­laug Gísla­dóttirbarð­ist fyrir Gunn­laugi syni …
Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SG
    Sigurlaug Gísladóttir skrifaði
    Að gefnu tilefni:
    Hvað er samheitalyf / samlyf
    Samlyf er með nákvæmlega sama virka efninu og frumlyfið, en það eru hliðarefnin í lyfinu sem eru öðruvísi og geta því breytt áhrifum þeim sem þau eiga að gera..
    Virka efnið (active ingredient) er alltaf það sama og í upprunalyfinu (frumlyfinu), í nákvæmlega sama magni. Þetta er grundvöllurinn fyrir því að samheitalyfið (samlyf) er talið jafngilt.
    Önnur innihaldsefni (inactive ingredients eða excipients – t.d. fylliefni, bindiefni, litarefni, bragðefni, húðun, rotvarnarefni o.s.frv.) mega vera önnur. Þau eru oft mismunandi milli framleiðenda vegna einkaleyfa, framleiðsluferla eða kostnaðar. Þessi efni hafa enga lyfjaverkun sjálf, en þau hjálpa til við að mynda töfluna, halda henni stöðugri, gera hana auðveldari að gleypa.
    Og það eru þessi aukaefni sem geta gert það að verkum að sjálft lyfið virkar ekki eins á alla og sem fólk getur haft óþol eða ofnæmi fyrir.
    Þótt það sé ekki sannað, þá er ekki hægt að útiloka að einstakir sjúklingar finni mun í sumum tilfellum. Þetta getur komið til vegna:
    Óvirk innihaldsefni (excipients): Fylliefni, litarefni, húðun eða bragðarefni getur verið mismunandi.
    Í mjög fáum tilfellum getur þetta valdið ofnæmisviðbrögðum eða öðrum aukaverkunum hjá fólki með óþol (t.d. fyrir laktósa eða ákveðnum litarefnum).
    Narrow Therapeutic Index (NTI) lyf: Fyrir lyf þar sem mjög lítil breyting á styrk getur haft áhrif (t.d. sum krampalyf, blóðþynningarlyf eða skjaldkirtilslyf) var settur fyrirvari fyrir því að skipta í samlyf, og stundum er mælt með að fylgjast nánar með blóðgildum. Hér er vísindalegur grunnur fyrir meiri varúð, en flestir þola þó vel samlyfið.
    Mín barátta er ekki gegn samlyfjum, heldur eingöngu fyrir því að aðgát sé höfð þegar sjúklingur hefur ítrekað orðið fyrir því að þola ekki þessi hliðarefni sem lyfjafyrirtækin nota í ódýrari lyfin og á þá rödd VERÐUR heilbrigðisstarfsfólk að hlusta.
    Og svo þegar um fjársjúkt fólk er að ræða, þá ætti það EKKI að vera í boði að gera tilraunir með nýtt lyf ef viðkomandi hefur þolað hið fyrra vel, NEMA sjúklingur óski eftir því sjálfur. Með öðrum orðum, Það á ekki að spila rússneska rúllettu með líf fárveiks fólks.
    2
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Já misjöfn ermansævin ogoftekkiuppá margafiskanatalið ogvísterumþaðaðlíkaermisjafnhagur hjá öðrufólki ogþviættumviðhinaðveraþakklátmeðþaðsemviðþóhöfumidagjúmikilósköp!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár