Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið

Stjórn­endur Reykja­vík Fintech og Bæjarins Beztu Pylsur hafa stofnað við­burða­fyr­ir­tæki eftir að hafa haldið fyr­ir­lestra með Jordan Peterson. Fyrstu við­burð­irnir eru með Frosta Sig­ur­jóns­syni um lofts­lags­mál og Bjór­kast­inu, hlað­varpi þar sem stjórn­endur kenna sig við öfga­hægri og „kyn­þátta­raun­sæi“.

Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið
Ræðumenn Paradigm Gunn­laugur Jónsson flutti áður Jordan Peterson og Gad Saad til Íslands til að halda erindi en nýtt fyr­ir­tæki hans hefur í ár aug­lýst við­burði með Frosta Sig­ur­jóns­syni og Bjór­kast­inu.

Facebook-síðan „Jordan Peterson á Íslandi“ heitir nú „Paradigm Ísland“ en Paradigm er nýtt við­burða­fyr­ir­tæki þeirra sem áður héldu við­burði með kanadíska álits­gjaf­anum Jordan Peterson á Íslandi. Bak við fyr­ir­tækið standa frjáls­hyggju­menn úr íslensku við­skipta­lífi og er mark­miðið með við­burðum með „þekktum hugs­uðum“ að efla tján­ing­ar­frelsið að því fram kemur á vef­síðu Paradigm.

Fyrsti við­burður fyr­ir­tæk­is­ins var um lofts­lags­mál með Frosta Sig­ur­jóns­syni hag­fræð­ingi en á föstu­dag stendur það fyrir bjór­kvöldi með hlað­varp­inu Bjór­kast­inu. Einn stjórn­enda þess er yfir­lýstur „kyn­þátta­raun­hyggju­maður“ sem sagði sig úr stjórn ung­liða­hreyf­ingar Mið­flokks­ins eftir að hafa ekki viljað neita því að vera ras­isti.

Aug­lýs­ing fyrir bjór­kvöldAnnar við­burður Paradigm er með hlað­varp­inu Bjór­kast­inu.

„Heim­ur­inn er að breyt­ast,“ segir á enskum texta á vef Paradigm í þýð­ingu blaða­manns. „Rót­grónir rammar til að skilja stjórn­mál, menn­ingu, tækni og merk­ingu útskýra ekki lengur veru­leik­ann eins og þeir gerðu áður. Nýjar hug­myndir eru að …

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Já þar sannast það fornkveðna, margur verður af aurum api.
    2
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Við verðum á Íslandi að viðurkenna alvarleik skoðana. Á Íslandi á að ríkja málfrelsi en málfrelsi felur EKKI í sér leyfi til að útbreiða lygar eða skoðanir sem ganga þvert á alla vísindalega þekkingu. Sérstaklega tilheyrir það EKKI málfrelsi að vegsama morð eða þjóðarmorð. Nasistar þýskalands frömdu morð á að minnsta kosti 6 miljónum gyðinga og að auki hundruðum þúsunda af róma, samkynhneigðum og öðrum hópum sem þeir töldu ekki með mönnum. Þeir sem kalla sig nasista án þess að roðna hafa mist alla dómgreind - um siðferði þurfum við ekki að tala.
    4
  • JBÓ
    Jón Brynjólfur Ólafsson skrifaði
    Ja hérna . . . við að lesa þessa grein dettur manni fyrst í hug frásögn þar sem í undirbúningi væri eitthvað nýtt í uppistandi eða einhverju álíka. Uppistand – skemmtun og í boði væri bæjarins beztu pylsur með „kynþáttaraunhyggjugumsi“. Eða bjórkvöld þar sem boðið er upp á að lepja fábjánaglundur (bjór) og tína upp í sig kex mylsnu yfir skemmtiatriðum. Við frekari lestur virðist þessi lýsing / frásögn eiga við eitthvað annað. Minnir e.t.v. frekar á eitthvað sem kemur frá fundarfólki. Fundafólk, sérstaklega háskólamenntað fundafólk, á það til að loka sig af og leggja sig fram um að teikna upp og eða skapa einhvern sýndarveruleika sem hentar þeirra væntingum. Sýndarveruleikin sýnir svo þá sem skapa hann í stórkostlegum hlutverkum. Við svona aðstæður verður fáfræði að miklum vísindum og sannleika. Þetta er bara svona eins og það er. Spurning hvort ekki væri ráð að opna glugga á fundarherberginu og lofta aðeins út, fá inn ferskt loft til að minnka saggann.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
4
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár