Frjálshyggjumenn úr viðskiptalífinu gefa „þekktum hugsuðum“ sviðið

Stjórn­endur Reykjavík Fintech og Bæjarins Beztu Pylsur hafa stofnað viðburða­fyrirtæki eftir að hafa haldið fyrir­lestra með Jordan Peterson. Fyrstu viðburðirnir eru með Frosta Sigurjóns­syni um lofts­lagsmál og Bjór­kastinu, hlaðvarpi þar sem stjórn­endur kenna sig við öfgahægri og „kynþátta­raunsæi“.

Ræðumenn Paradigm
Ræðumenn Paradigm Gunn­laugur Jónsson flutti áður Jordan Peterson og Gad Saad til Íslands til að halda erindi en nýtt fyr­ir­tæki hans hefur í ár aug­lýst við­burði með Frosta Sig­ur­jóns­syni og Bjór­kast­inu.

Facebook-síðan „Jordan Peterson á Íslandi“ heitir nú „Paradigm Ísland“ en Paradigm er nýtt viðburða­fyrirtæki þeirra sem áður héldu viðburði með kanadíska álits­gjafanum Jordan Peterson á Íslandi. Bak við fyrir­tækið standa frjáls­hyggju­menn úr íslensku viðskipta­lífi og er markmiðið með viðburðum með „þekktum hugsuðum“ að efla tjáningar­frelsið að því fram kemur á vefsíðu Paradigm.

Fyrsti viðburður fyrir­tækisins var um lofts­lagsmál með Frosta Sigurjóns­syni hagfræðingi en á föstudag stendur það fyrir bjór­kvöldi með hlað­varpinu Bjór­kastinu. Einn stjórn­enda þess er yfir­lýstur „kynþátta­raunhyggju­maður“ sem sagði sig úr stjórn ungliða­hreyfingar Miðflokksins eftir að hafa ekki viljað neita því að vera rasisti.

Aug­lýs­ing fyrir bjór­kvöldAnnar við­burður Paradigm er með hlað­varp­inu Bjór­kast­inu.

„Heimurinn er að breytast,“ segir á enskum texta á vef Paradigm í þýðingu blaða­manns. „Rótgrónir rammar til að skilja stjórnmál, menningu, tækni og merkingu útskýra ekki lengur veru­leikann eins og þeir gerðu áður. Nýjar hugmyndir eru að …

Kjósa
44
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Já þar sannast það fornkveðna, margur verður af aurum api.
    2
  • Reynir Vilhjálmsson skrifaði
    Við verðum á Íslandi að viðurkenna alvarleik skoðana. Á Íslandi á að ríkja málfrelsi en málfrelsi felur EKKI í sér leyfi til að útbreiða lygar eða skoðanir sem ganga þvert á alla vísindalega þekkingu. Sérstaklega tilheyrir það EKKI málfrelsi að vegsama morð eða þjóðarmorð. Nasistar þýskalands frömdu morð á að minnsta kosti 6 miljónum gyðinga og að auki hundruðum þúsunda af róma, samkynhneigðum og öðrum hópum sem þeir töldu ekki með mönnum. Þeir sem kalla sig nasista án þess að roðna hafa mist alla dómgreind - um siðferði þurfum við ekki að tala.
    4
  • JBÓ
    Jón Brynjólfur Ólafsson skrifaði
    Ja hérna . . . við að lesa þessa grein dettur manni fyrst í hug frásögn þar sem í undirbúningi væri eitthvað nýtt í uppistandi eða einhverju álíka. Uppistand – skemmtun og í boði væri bæjarins beztu pylsur með „kynþáttaraunhyggjugumsi“. Eða bjórkvöld þar sem boðið er upp á að lepja fábjánaglundur (bjór) og tína upp í sig kex mylsnu yfir skemmtiatriðum. Við frekari lestur virðist þessi lýsing / frásögn eiga við eitthvað annað. Minnir e.t.v. frekar á eitthvað sem kemur frá fundarfólki. Fundafólk, sérstaklega háskólamenntað fundafólk, á það til að loka sig af og leggja sig fram um að teikna upp og eða skapa einhvern sýndarveruleika sem hentar þeirra væntingum. Sýndarveruleikin sýnir svo þá sem skapa hann í stórkostlegum hlutverkum. Við svona aðstæður verður fáfræði að miklum vísindum og sannleika. Þetta er bara svona eins og það er. Spurning hvort ekki væri ráð að opna glugga á fundarherberginu og lofta aðeins út, fá inn ferskt loft til að minnka saggann.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár