Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn

Nýstofnað félag Ágústs Bjarna Garðars­sonar, fyrr­verandi oddvita Framsóknar­flokksins í Hafnar­firði, fékk greiðslur fyrir ráðgjafa­störf eftir að flokks­bróðir hans, Valdimar Víðisson, tók við sem bæjar­stjóri. Ráðgjafa­störf fyrrum bæjar­stjóra Mosfells­bæjar, Haraldur Sverrisson, hófust í tíð Rósu Guðbjarts­dóttur, flokks­systur hans.

Bæjarstjórarnir og þingmaðurinn
Bæj­ar­stjór­arnir og þing­mað­ur­inn Sam­flokks­menn bæj­ar­stjór­anna Valdi­mars Víð­is­sonar og Rósu Guð­bjarts­dóttur fengu ráð­gjafa­verk­efni hjá Hafn­ar­fjarð­arbæ í þeirra tíð.

Félag í eigu fyrrum oddvita Framsóknar­flokks í bæjar­stjórn fékk tæpar 7 milljónir króna fyrir ráðgjafa­störf fyrir Hafnar­fjarðarbæ á árinu 2025. Pólitískur samherji hans var þá nýtekinn við sem bæjar­stjóri.

Í svari Hafnar­fjarðar­bæjar við fyrir­spurn Heimildarinnar kemur fram að Valdimar Víðisson bæjar­stjóri hafi falið Ágústi Bjarna Garðars­syni, fyrrum oddvita Framsóknar­flokks í bæjar­stjórn, að vinna verkefni fyrir bæinn. „Leitað var til Vissu ráðgjafar ehf. vegna afmarkaðra verkefna í Hafnar­firði í ljósi reynslu eiganda, Ágústs Bjarna Garðars­sonar, af opinberri stjórn­sýslu og þekkingar á sveitar­stjórnar­stiginu, ekki síst í Hafnar­firði.“

Þá hefur Haraldur Sverrisson, fyrr­verandi bæjar­stjóri Mosfells­bæjar fengið tæpar 19 milljónir króna í ráðgjafa­greiðslur frá 2023 út september 2025 en Rósa Guðbjarts­dóttir, samflokks­kona hans og nú þingmaður Sjálfstæðis­flokks, var bæjar­stjóri Hafnar­fjarðar þegar hún undir­ritaði samning við Harald.

Þetta kemur fram í upplýsingum um verktaka­greiðslur vegna þjónustu og ráðgjafar sem voru lagðar fram á fundi bæjarráðs Hafnar­fjarðar 11. desember í fyrra að ósk …

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Sigurður Gunnar skrifaði
    Hef heyrt að þetta jangildi því að kjörnir bæjarfulltrúar í Hafnarfirði séu að lísa frati á sig sjálfa og segja með þessum samningi að þeir ráði ekki við starf bæjarfulltrúa ráði ekki við það sem þeir þó bjóða sig til ??
    0
  • Einar Skúli Hjartarson skrifaði
    Vanir menn
    0
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Pólitíska spillingu þarf að skoða betur.
    2
  • Sveinn Ingólfsson skrifaði
    Dæmi um hrikalega spillingu í stjórnmálum á Íslandi.
    2
  • SG
    Sigurlaug Gísladóttir skrifaði
    Eru þetta svona "COMFORTE" greiðslur? ;)
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár