Urðuðu úrgang ólöglega á íþróttasvæði

Bíl­hræj­um og blönd­uð­um úr­gangi hef­ur ver­ið safn­að á lóð sem Skotí­þrótta­fé­lag Hafn­ar­fjarð­ar leig­ir af sveit­ar­fé­lag­inu. Það er þvert á leigu­samn­ing lóð­ar­inn­ar og regl­ur sem gilda um los­un úr­gangs. „Ég held að það komi þér bara ekk­ert við hvað­an þetta kem­ur,“ sagði vall­ar­stjóri Skotí­þrótta­fé­lags Hafn­ar­fjarð­ar.

Urðuðu úrgang ólöglega á íþróttasvæði

Skotíþróttafélag Hafnarfjarðar hefur losað mikið magn af blönduðum úrgangi á lóð sem félagið er með á leigu hjá Hafnarfjarðarbæ. Úrgangurinn var svo notaður sem uppfylliefni til að búa til vegg vegna hljóðmengunar og öryggisvegg fyrir skotsvæði félagsins.

Þá hefur vallarstjóri félagsins notað stóran hluta af lóðinni undir sinn eigin persónulega verktakarekstur, sem ekki liggur leyfi fyrir, en Hafnarfjarðarbær leigir félaginu lóðina. Myndir af svæðinu sýna hvernig blönduðum byggingarúrgangi var losað á svæðið og svo loks mokað yfir hann.

Ekki í samræmi við samning

Kristinn Valgeir Sveinsson, formaður Skotíþróttafélags Hafnarfjarðar, brást afar illa við spurningum blaðamanns vegna þessa og spurði ítrekað af hverju það ætti að skrifa níðgrein um félagið. Hann gat engu svarað um tilvist úrgangsins og kannast lítið við málið.

Þegar blaðamaður var á svæðinu að skoða aðstæður hitti hann á Einar Örn Reynisson, vallarstjóra Skotíþróttafélagsins. Brást hann einnig afar illa við spurningum blaðamanns vegna ólöglegrar losunar á úrgangi …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár