Ekki skýrt hver beri ábyrgð á líki

Gert er ráð fyrir að vanda­menn lát­ins ein­stak­lings hafi sam­band við útfar­ar­þjón­ustu en málið er flókn­ara þegar engir vanda­menn eru til staðar, að því fram kemur í svari dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn á Alþingi.

Ekki skýrt hver beri ábyrgð á líki
Kirkju­garður Ekki er skýrt í lögum hver ann­ist und­ir­bún­ing útfarar og standi straum af kostn­aði ef dán­arbú er eign­ar­laust. Mynd: Golli

Ekki er skýrt í lögum hver skuli ann­ast und­ir­bún­ing útfarar og standa straum af kostn­aði sem af henni hlýst ef dán­arbú er eign­ar­laust.

Þetta kemur fram í skrif­legu svari Þor­bjargar Sigríðar Gunn­laugs­dóttur dóms­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn Ingi­bjargar Isaksen, þing­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Ingi­björg spurði hver beri ábyrgð á líki eftir að læknir hefur stað­fest and­lát og gefið út dán­ar­vott­orð þar til útför eða lík­brennsla fer fram, ann­ars vegar þegar vensla­manni hins látna er til að dreifa og hins vegar þegar svo er ekki.

Í svari ráð­herra kemur fram að í lögum um kirkju­garða, greftrun og lík­brennslu komi fram að lík skuli geymt á stað við hæfi og að dán­ar­vott­orð sé afhent vensla­manni hins látna sem afhendir það sýslu­manni.

Í lög­unum séu hins vegar ekki skýr afdrátt­ar­laus ákvæði sem lúti að ábyrgð á líki frá útgáfu dán­ar­vott­orðs og fram að útför. „Í lög­unum er gert ráð fyrir því að ýmsar …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár