Hitnar undir Hildi: Kanna áhugann á Guðlaugi Þór

Hildur Björns­dóttir hefur ein lýst yfir vilja til að leiða Sjálf­stæð­is­flokk­inn fyri rnæstu kosn­ingar. Fylgið hefur risið undir hennar stjórn en nú er í gangi könnun þar sem tvær spurn­ingar snú­ast um end­ur­komu Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar í borg­ar­málin. Orðrómur er um að leitað sé að ein­hverjum til að skora borg­ar­stjóra á hólm en Sam­fylk­ingin mælist líka sterk­ari nú en í kosn­ing­unum 2022.

Hitnar undir Hildi: Kanna áhugann á Guðlaugi Þór
Áskor­and­inn Guð­laugur Þór þykir lík­legur til að reyna að skáka Hildi Björns­dóttur í odd­vita­vali Sjálf­stæð­is­flokks­ins fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­arnar. Mynd: Golli

„Myndi það auka eða minnka lík­urnar á því að þú kysir Sjálf­stæð­is­flokk­inn í næstu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum ef Guð­laugur Þór Þórð­ar­son væri odd­viti/borg­ar­stjóra­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins?“

Svona er spurt í Gallup-könnun sem nýlega var send út í vik­unni. Pískrað hefur verið um drauma Guðlaugs Þórs, núver­andi þing­manns og fyrr­ver­andi ráð­herra, að snúa aftur í borg­ar­stjórn Reykja­víkur og leiða lista flokks­ins í kom­andi kosn­ingum. Hann var borg­ar­full­trúi á árunum 1998 til 2006, en þá hafði hann setið á þingi í þrjú ár.

Hildur Björns­dóttir, núver­andi odd­viti, hefur lýst yfir vilja til að leiða list­ann á ný í vor og hefur flokk­ur­inn mælst með meira fylgi und­an­farna mán­uði en hann upp­skar í kosn­ing­unum 2021. Samkvæmt nýrri könnun Gallup, sem gerð var fyrir Við­skipta­blaðið, er fylg­is­aukn­ing Sjálf­stæð­is­flokks­ins frá kosn­ingum 6,3 pró­sentu­stig. Mælist flokk­ur­inn með 30,8 pró­sent í könn­un­inni.

Könnun Gallup 10. desember 2025
Sjálfstæðisflokkurinn
30,8%
Samfylkingin
27,4%
Miðflokkurinn
10,2%
Viðreisn
8,9%
Sósíalistaflokkurinn
6,3%
Píratar
5,0%
Vinstri græn
4,5%
Flokkur fólksins
4,0%
Framsókn
2,6%
Heimild: Gallup.

Hópur Sjálf­stæð­is­manna telur að flokk­ur­inn eigi meira inni en hann …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár