Bandaríkin skilgreina evrópska andfasista sem hryðjuverkamenn

Hluti af bar­áttu gegn and-banda­rískri, and-kapital­ískri og and-krist­inni hug­mynda­fræði.

Bandaríkin skilgreina evrópska andfasista sem hryðjuverkamenn
Vill upp­ræta and­fas­ista Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur skil­greint and­fas­ista sem hryðju­verka­hóp og sagst ætla að finna þá sem fjár­magna þá, sem valdið hefur áhyggjum hjá félaga­sam­tökum á sviði rétt­inda­bar­áttu. Mynd: AFP

Banda­ríkin settu í dag þýska, ítalska og gríska and­fasíska og anar­kíska her­skáa hópa á svartan lista sem hryðju­verka­sam­tök, sem hluta af víð­tækum aðgerðum Donalds Trumps for­seta gegn „Antifa“-aðgerðasinnum sem eru ein­arðir and­stæð­ingar hans.

Hryðju­verka­flokk­anir sem þessar hafa á síð­ustu árum verið óvenju­legar gegn vest­rænum vinstrisinn­uðum hópum, þar sem Banda­ríkin hafa yfir­leitt beint spjótum sínum að ofbeld­is­fullum íslömskum öfga­mönnum og öðrum hópum sem hafa sögu um alþjóð­legar aðgerðir.

Meðal þeirra hópa sem settir eru á svara lista Banda­ríkj­anna eru þýsku sam­tökin Antifa Ost, en með­limur þeirra var dreg­inn fyrir dóm í Búdapest í Ung­verja­landi fyrir til­raun til árása á nýnas­ista sem höfðu safn­ast saman í ung­versku höf­uð­borg­inni á árlegri fjölda­göngu öfga­hægri­manna árið 2023.

Marco Rubio utan­rík­is­ráð­herra sagði að Banda­ríkin beindu spjótum sínum að Antifa Ost og öðrum hópum sem hluta af „sögu­legri skuld­bind­ingu Trumps til að bregð­ast við póli­tískri ofbeld­is­her­ferð Antifa.“

„Hópar sem tengj­ast þess­ari hreyf­ingu aðhyll­ast bylt­ing­ar­sinn­aða anar­kíska eða marxíska hug­mynda­fræði, þar á meðal and-banda­ríska, and-kap­ít­al­íska og and-kristna hug­mynda­fræði, og nota það til að hvetja til og rétt­læta ofbeld­is­fullar árásir inn­an­lands og erlendis,“ sagði Rubio í yfir­lýs­ingu.

Flokk­unin gerir með­limum hópanna óheim­ilt að koma til Banda­ríkj­anna, frystir allar eignir sem þeir kunna að eiga í stærsta hag­kerfi heims og gerir það refsi­vert að veita þeim efn­is­legan stuðn­ing.

Aðrir hópar sem eru flokk­aðir sem erlend hryðju­verka­sam­tök eru ítalska anar­kista­banda­lagið FAI/FRI og tveir grískir anar­kista­hópar, Vopnuð bar­átta öreig­anna og Bylt­ing­ar­sinnuð sjálfs­vörn stétt­ar­innar.

Antifa vakti athygli í Banda­ríkj­unum árið 2017 þegar með­limir tóku þátt í mót­mælum gegn fyrstu emb­ætt­is­töku Trumps og í gagn­mót­mælum gegn fjölda­göngu öfga­hægri­manna, Unite the Right, í Charlottesville í Virginíu, þar sem einn gagn­mót­mæl­andi lést eftir að ekið var á hann.

Eftir að hafa snúið aftur í emb­ætti, flokk­aði Trump Antifa sem inn­lend hryðju­verka­sam­tök. En Antifa í Banda­ríkj­unum er talin vera óljós hreyf­ing vinstri­s­inn­aðra „and­fasískra“ aðgerða­sinna sem sér­fræð­ingar segja að sé frekar póli­tísk hug­mynda­fræði en skipu­lagður hópur.

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár