Kínverjar hæðast að Bandaríkjaforseta

Trump er súr yfir gagn­að­gerðum Kína og hótar 100% tollum ofan á 30%. Almennir borg­arar taka hann hæfi­lega alvar­lega. „Á hans aldri ætti hann að vera aðeins yfir­veg­aðri,“ segir kona í Peking.

Kínverjar hæðast að Bandaríkjaforseta
Frá Peking Mann­mergð hjá Torgi hins himneska friðar á þjóð­há­tíð­ar­degi Kínverja 1. októ­ber síð­ast­lið­inn, sem mark­aði 76 ára afmæli stofn­unar Kín­verska alþýðu­lýð­veld­is­ins. Mynd: AFP

Íbúar í höf­uð­borg Kína voru ögrandi og áhyggju­litlir í dag þegar frétta­menn AFP spurðu þá út í nýj­ustu hótun Donalds Trumps, for­seta Banda­ríkj­anna, um að leggja á nýja, íþyngj­andi tolla á landið.

Í gær til­kynnti Trump skyndi­lega að Banda­ríkin myndu leggja 100 pró­senta við­bót­ar­tolla á allan inn­flutn­ing frá Kína frá og með 1. nóv­em­ber „eða fyrr“, og varp­aði efa­semdum á vænt­an­legan fund með Xi Jinping, for­seta Kína.

Kínversk yfir­völd hafa enn ekki brugð­ist opin­ber­lega við hót­un­inni, sem Trump sagði að væri í hefnd­ar­skyni fyrir nýjar útflutn­ings­tak­mark­anir Peking á sviði mik­il­vægra sjald­gæfra jarð­málma. Þrátt fyrir að hafa sjálfur átt frum­kvæðið að umfangs­miklum tollum gegn öðrum löndum, undrað­ist Trump „fjand­sam­legar“ aðgerðir Kínverja í milli­ríkja­við­skiptum. „Það er engan veg­inn hægt að leyfa Kína að halda heim­inum í gísl­ingu,“ skrif­aði Trump á sam­fé­lags­mið­il­inn sinn.

Utan­ríkis- og við­skipta­ráðu­neyti Kína tjáðu sig ekki þegar AFP leit­aði eftir því í dag. Almenn­ingur sat hins vegar ekki á …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár