Kínverjar hæðast að Bandaríkjaforseta

Trump er súr yfir gagn­að­gerðum Kína og hótar 100% tollum ofan á 30%. Almennir borg­arar taka hann hæfi­lega alvar­lega. „Á hans aldri ætti hann að vera aðeins yfir­veg­aðri,“ segir kona í Peking.

Kínverjar hæðast að Bandaríkjaforseta
Frá Peking Mann­mergð hjá Torgi hins himneska friðar á þjóð­há­tíð­ar­degi Kínverja 1. októ­ber síð­ast­lið­inn, sem mark­aði 76 ára afmæli stofn­unar Kín­verska alþýðu­lýð­veld­is­ins. Mynd: AFP

Íbúar í höf­uð­borg Kína voru ögrandi og áhyggju­litlir í dag þegar frétta­menn AFP spurðu þá út í nýj­ustu hótun Donalds Trumps, for­seta Banda­ríkj­anna, um að leggja á nýja, íþyngj­andi tolla á landið.

Í gær til­kynnti Trump skyndi­lega að Banda­ríkin myndu leggja 100 pró­senta við­bót­ar­tolla á allan inn­flutn­ing frá Kína frá og með 1. nóv­em­ber „eða fyrr“, og varp­aði efa­semdum á vænt­an­legan fund með Xi Jinping, for­seta Kína.

Kínversk yfir­völd hafa enn ekki brugð­ist opin­ber­lega við hót­un­inni, sem Trump sagði að væri í hefnd­ar­skyni fyrir nýjar útflutn­ings­tak­mark­anir Peking á sviði mik­il­vægra sjald­gæfra jarð­málma. Þrátt fyrir að hafa sjálfur átt frum­kvæðið að umfangs­miklum tollum gegn öðrum löndum, undrað­ist Trump „fjand­sam­legar“ aðgerðir Kínverja í milli­ríkja­við­skiptum. „Það er engan veg­inn hægt að leyfa Kína að halda heim­inum í gísl­ingu,“ skrif­aði Trump á sam­fé­lags­mið­il­inn sinn.

Utan­ríkis- og við­skipta­ráðu­neyti Kína tjáðu sig ekki þegar AFP leit­aði eftir því í dag. Almenn­ingur sat hins …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár