Spáði falli Play og fékk skammir

Flug­stjór­inn Jón Þór Þor­valds­son full­yrti að Play væri með­vitað að selja ferðir sem vitað væri að „yrðu aldrei flognar“. Play sak­aði hann um „rang­færslur og dylgjur“.

Spáði falli Play og fékk skammir
Tekist á fyrir lend­ing­una Einar Örn Ólafsson og félagar í Play Air svör­uðu fullum hálsi þegar for­maður Félags íslenskra atvinnu­flug­manna, Jón Þór Þor­valds­son, lýsti því hvernig enda­lokin blöstu við hjá Play Air.

„Hvað er að fara að ger­ast núna hjá Play? Hver er að fara að borga það? Nú er verið að selja ferðir, sem að við vitum að verða ekki flognar,“ sagði Jón Þór Þor­valds­son, for­maður Félags íslenskra atvinnu­flug­manna (FÍA), í byrjun mán­að­ar­ins, þegar hann boð­aði að félagið stefndi í þrot.

Viðbrögð for­svars­manna Play Air voru að saka hann um „dylgjur“. Play Air til­kynnti í morgun fyr­ir­vara­laust að starf­semi félags­ins hefði verið stöðvuð og eru þús­undir far­þega stranda­glópar fyrir vikið.

Jón Þór, sem starfar hjá Icelandair og er þess utan fyrr­ver­andi vara­þing­maður Mið­flokks­ins, sagði í sam­tali við Bylgjuna 2. sept­em­ber síð­ast­lið­inn blasa við af lestri árs­reikn­inga Play og yfir­lýs­inga for­svars­manna félags­ins, að ekki yrði farið í ferðir sem þá væru seldar. 

„Það er mik­il­vægt að almenn­ingur og fjöl­miðlar geri sér grein fyrir að mað­ur­inn sem tjáir sig með þessum óábyrga og vafa­sama hætti er starfs­maður Icelandair“
Yfir­lýs­ing Play Air
2. sept­em­ber 2025

„Já, ég held að það sjái það allir, félagið sem er á Íslandi, félagið sem er skráð á Möltu verður kannski áfram til, en félagið sem er skráð í Kauphöll það ætlar alla­vega að skila inn flug­rekstr­ar­leyf­inu þannig að það verður ekki flug­rek­andi. Hvað verður það þá? Verður þetta ferða­skrif­stofa? Nei. Verður þetta far­miða­sala? Líklega, já. En hver er þá ábyrgðin gagn­vart neyt­and­anum?“

Play svaraði fullum hálsi

Jón Þór Þor­valds­sonVaraði við því að ekki yrði farið í flug­ferðir sem verið væri að selja hjá Play.

For­svars­menn Play Air svör­uðu fullum Jóni Þór fullum hálsi í yfir­lýs­ingu til DV og Vísis, sem fjöll­uðu um fyrr­nefnd við­tal. Þar var hann sak­aður um „rang­færslur og dylgjur“:

„Jón Þór Þor­valds­son, for­maður Félags íslenskra atvinnu­flug­manna (FÍA), hvers félags­menn eru lang­flestir starfs­menn Icelandair, hefur farið mik­inn í opin­berri umræðu um flug­fé­lagið Play og látið hafa eftir sér ummæli sem ekki er hægt að túlka öðru­vísi en rang­færslur og dylgjur í garð Play. Það er mik­il­vægt að almenn­ingur og fjöl­miðlar geri sér grein fyrir að mað­ur­inn sem tjáir sig með þessum óábyrga og vafa­sama hætti er starfs­maður Icelandair, sam­keppn­is­að­ila Play, og hefur beina hags­muni af því að ráð­ast gegn Play. Það stytt­ist í kjara­við­ræður milli FÍA og Icelandair og for­mað­ur­inn greini­lega að setja sig í stell­ingar fyrir þau átök.“

Play Air boð­aði allt aðra fram­tíð­ar­sýn en Jón Þór lýsti, sem og aðra en þá sem raun­gerð­ist. 

„Þá er Jón Þór með spá­dóma um fram­tíð Play og því talið rétt að benda á eft­ir­far­andi: Félagið tryggði sér nýverið 2,8 millj­arða frá fjár­festum til að styðja við breyt­ingar á við­skipta­mód­eli félags­ins. Þetta sýnir til­trú fjár­festa á félag­inu og fram­tíð þess. Nýja við­skipta­líkanið gerir ráð fyrir að fjórar vélar verða gerðar út frá Íslandi og þeim verður flogið með áhöfnum frá Íslandi og á nýgerðum íslenskum kjara­samn­ingum. Sex vélar verða leigðar út til ann­arra flug­rek­enda í Evrópu og félag­inu þannig tryggðar jafnar tekjur yfir árið sem styrkir rekstr­ar­grund­völl félags­ins til muna. Er búist við miklum afkoma­bata í kjöl­farið.“

Lífeyrissjóðir lögðu fram milljarða

Svo virð­ist sem íslenskir líf­eyr­is­sjóðir hafi tapað millj­örðum á þátt­töku í fjár­mögnun Play og að bæst hafi í tap almenn­ings með skulda­bréfa­út­gáf­unni sem Play vís­aði til í yfir­lýs­ingu sinni. 

Fjár­festar hafa lagt félag­inu til 17 millj­arða króna frá sumr­inu 2021, eins og kemur fram í yfir­ferð frétta­vefs­ins ff7.is, áður túrista.is. Samkvæmt stað­hæf­ingu frétta­mið­ils­ins hafði Play þegar fengið greidda 2,8 millj­arða króna, sem safnað var í skulda­bréfa­út­gáfu í lok sum­ars, með 17,5 pró­sent vöxtum.

Meðal þeirra sem tóku þátt í skulda­bréfa­út­gáf­unni var líf­eyr­is­sjóð­ur­inn Birta. 

Þetta er eitt af því sem Jón Þór Þor­valds­son gagn­rýndi í við­tali við Bítið á Bylgj­unni í byrjun mán­aðar. „Þar eru sem sagt fjár­festar lokk­aðir að stofna þessi félög, meðal ann­ars líf­eyr­is­sjóðir, á þeim for­sendum að það standi til að fara í félags­leg und­ir­boð, lækka laun um 19 til 37 pró­sent og rýra öll kjör þeirra sem munu starfa hjá félag­inu.“ Hann lýsti því að enda­lok Play blöstu við.

„Þeir eru að segja að þeir ætli að skila inn flug­rekstr­ar­leyf­inu þannig að það verður ekki lengur tengi­höfn hér á Íslandi og það verða færri vélar. Þetta verða ekki íslenskar áhafnir. Það er verið að flytja félagið úr landi í raun og veru til þess að ráða fólk á lægri launum, sem gengur reyndar ekki vel, niðri í Austur-Evrópu.“

Kröfuhafar farnir af stað

Play til­kynnti rekstr­ar­stöðvun sína til kaup­hall­ar­innar í morgun, með til­vísun í að fjöl­miðlaum­fjöllun hafi verið nei­kvæð. „Rekstur félags­ins hefur lengi gengið verr en vonir stóðu til, flug­miða­sala hefur ekki gengið vel síð­ustu vikur og mán­uði í kjöl­far nei­kvæðrar fjöl­miðlaum­fjöll­unar um rekst­ur­inn og þá hefur ríkt ósætti á meðal hluta starfs­manna félags­ins vegna breyt­inga á stefnu þess,“ sagði í til­kynn­ing­unnni. Þar var jafn­framt beðist afsök­unar.

„Ljóst er að þús­undir far­þega þurfa að end­ur­skipu­leggja heim­för, á um það bil 400 missa vinn­una og sam­starfs­að­ilar fyr­ir­tæk­is­ins verða fyrir tjóni. Við þetta til­efni leggja stjórn og stjórn­endur PLAY áherslu á að allt hafi verið reynt til þess að nið­ur­staðan yrði önnur. Þessi ákvörðun er sú allra þung­bærasta í stöð­unni og er hún aðeins tekin í ljósi þess að aðrar leiðir töld­ust full­reyndar.  Stjórnin biður alla þá sem verða fyrir nei­kvæðum afleið­ingum vegna þess­arar nið­ur­stöðu inni­lega afsök­unar.“

Í umfjöllun Innherja á Vísi.is kemur fram að Play hafi verið í van­efndum og inn­heimtu­að­gerðir hafnar. Yfir­vof­andi væri fundur kröfu­hafa á mánu­dag í næstu viku. Þar kemur jafn­framt fram að fjár­festar sem keyptu skulda­bréfin hafi fengið veð í öllu hlutafé dótt­ur­fé­laga, Fly Play Europe og Play Lit­hu­ania, ásamt huga­verka­rétt­indum, vöru­merkjum, vef­síðu og hug­bún­að­ar­lausnum.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón Ragnarsson skrifaði
    Hlustaði á Þórunni Reynisdóttir forstjóra Úrvals Útsýnar í útvarpinu í morgun . Þar lýsti hún að öll orð forstjóra Play síðustu mánuði sem lýgi. Sama fyrirtæki PWC og sagði íslenskir bankar væru allt í lagi var búið að gefa orð um að allt væri í lagi ?
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    AKLT ER Í HEIMINUM HVERFULT EINS OG ÞAR STENDUR
    -1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gjaldþrot Play

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár