Milljarðatap af íslensku flugfélögunum tveimur

Icelandair og Play töpuðu bæði á síðasta ári. Það síðarnefnda hátt í tíu milljörðum króna og hefur aldrei skilað hagnaði. Viðsnúningur til hins verra varð á rekstri Icelandair. Lífeyris­sjóðir eru stærstu eigendur félaganna beggja.

Aldrei í plús
Aldrei í plús Þó að Play hafi vaxið nokkuð hratt, hefur félagið tapað fúlgum fjár öll starfsár sín. Aldrei þó jafn miklu og í fyrra. Mynd: Golli

Íslensku flug­félögin Icelandair og Play töpuðu bæði á síðasta ári. Samanlagt tap þeirra nam 12 milljörðum íslenskra króna. Play tapaði stærstum hluta þeirrar fjárhæðar en flug­félagið skilaði 9,2 milljarða króna tapi saman­borið við 2,8 milljarða króna tap Icelandair. Flug­félögin gera bæði upp í Bandaríkja­dölum og eru upphæðirnar umreiknaðar miðað við ársloka­gengi samkvæmt Seðla­banka Íslands. 

Tapár eftir tapár

Viðsnúningur til hins verra varð á rekstri Icelandair á milli 2023 og 2024 um 4,3 milljarða króna. Flug­félagið hafði skilað hagnaði upp á 1,5 milljarða króna árið 2023. Það var í fyrsta sinn í árabil sem flug­félagið hafði skilað hagnaði en verulegt tap var af rekstrinum árin á undan.

-87.578 millj­ónir
Íslensku flug­fé­lögin hafa sam­an­lagt tapað 87,6 millj­örðum króna síð­ast­liðin fimm ár, sem hafa reynst flug­rek­endum erfið.

Óhætt er að rekja það tap að stærstu leyti til Covid-19 faraldursins sem stöðvaði nær …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Loðnan reddar þessu eða síldin eða makríllinn eða lúðan eða skötuselurinn eða rækjan og humarinn eða karfinn eða steinbítur eða rauðspretta eða auðvitað kolmunni og hörpudiskurinn. Ekkert að kvarta yfir. Það er nóg af fiski til að veiða og selja í þessum hafsvæðum okkar. Umgengni við hafið okkar er til fyrirmyndar og þarf bara að dýfa færi og risa lúður bítu á. Þarf ekki beitu. Við strandir landsmanna stökkva risa golþorskar í torfum sem sér ekki yfir. 😄 Auðlindin er óþrjótandi og sér ekki á henni …
    0
  • Þorkell Egilsson skrifaði
    Loðnan reddar þessu eða síldin eða makríllinn eða lúðan eða skötuselurinn eða rækjan og humarinn eða karfinn eða steinbítur eða rauðspretta eða auðvitað kolmunni og hörpudiskurinn. Ekkert að kvarta yfir. Það er nóg af fiski til að veiða og selja í þessum hafsvæðum okkar. Umgengni við hafið okkar er til fyrirmyndar og þarf bara að dýfa færi og risa líða bítur á. Við strandir landsmanna stökkva rísa golþorskar í torfum sem sér ekki yfir. 😄
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár