Hlutabréf í Icelandair rjúka upp eftir fall Play

Hluta­bréfa­verð í flug­fé­lag­inu Icelandair hefur tekið stökk eftir að til­kynnt var um að Play væri hætt starf­semi. Verð bréfa hefur skot­ist upp um meira en fjórð­ung það sem af er morg­uni.

Á flugi
Á flugi Gengi bréfa í Icelandair hefur tekið flugið. Mynd: Golli

Hluta­bréfa­verð í Icelandair hefur rokið upp um rúm­lega fjórð­ung frá því að til­kynnt var um gjald­þrot helsta keppi­naut­ar­ins Play.

Stjórn Play til­kynnti um að félagið myndi hætta starf­semi með til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar klukkan 9.32 í morgun, um tveimur mín­útum eftir að við­skipti hófust í dag.

Síðan þá hefur gengi bréfa í Icelandair hækkað mikið og hækkað hratt.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Grétar Reynisson skrifaði
    🏹 N. vill samt örugglega taka það fram að „við fögnum allri samkeppni” 🫩
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gjaldþrot Play

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár