Hér er það sem strandaglópar hjá Play geta gert

Stranda­glópar sem greiddu flug­far­gjald með greiðslu­korti geta fengið end­ur­greitt frá korta­fyr­ir­tæk­inu.

Flugfélagið birtir leiðbeiningar á vef sínum fyrir strandaglópa. Slíkt má einnig finna á vef Samgöngustofu.
Flug­fé­lagið birtir leið­bein­ingar á vef sínum fyrir stranda­glópa. Slíkt má einnig finna á vef Sam­göngu­stofu. Mynd: Golli

Rétt­ar­staða flug­far­þega í fjár­hags­erf­ið­leikum flug­rek­enda og ferða­skrif­stofa er mis­jöfn eftir því hvaða þjón­usta hefur verið keypt, af hverjum og hvar. Þeta kemur fram á vef Sam­göngu­stofu þar sem veittar eru upp­lýs­ingar um það hvað skal gera þegar flug­fé­lag fer í gjald­þrot.

Þar segir að ef flug­ferð er aflýst vegna gjald­þrots áður en ferðin er hafin er hægt að lýsa kröfu í þrota­búið eða sækja end­ur­greiðslu til greiðslu­korta­fyr­ir­tækis, ef far­seð­ill var greiddur með greiðslu­korti

Ef far­þegi er erlendis þegar flug­fé­lag fer í þrot er hægt að sækja end­ur­greiðslu til greiðslu­korta­fyr­ir­tækis, ef far­seð­ill var greiddur með greiðslu­korti.

Heim­ildin náði í upp­lýs­inga­full­trúa Sam­göngu­stofu sem gaf þau svör að vefur Sam­göngu­stofu yrði upp­færður með leið­bein­ingum um það hvað flug­far­þega geti gert í til­vikum þar sem félög fara …

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gjaldþrot Play

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár