Þúsundir strandaglópa vegna gjaldþrots Play: Hafa tapað 24 milljörðum á 5 árum

Þúsundir eru stranda­glópa út um allan heim eftir að Play til­kynnti um rekstr­ar­stöðvun í morgun.

Þúsundir strandaglópa vegna gjaldþrots Play: Hafa tapað 24 milljörðum á 5 árum
Play hefur hætt starf­semi. Mynd: Golli

Flug­fé­lagið Play hefur hætt starf­semi. Þetta kom fyrst fram á Vísi. 

Í til­kynn­ingu segir að um 400 manns muni missa vinn­una og þús­undir flug­far­þega þurfa að end­ur­skipu­leggja heim­för. Þá verða sam­starfs­að­ilar fyr­ir­tæk­is­ins fyrir tjóni. 

Í til­kynn­ingu er nei­kvæðri fjöl­miðlaum­fjöllun meðal ann­ars kennt um og að flug­miða­sala hafi ekki gengið vel síð­ustu vikur og mán­uði vegna gagn­rýn­innar umfjöll­unar fjöl­miðla. 

Rekstr­ar­erf­ið­leikar fyr­ir­tæk­is­ins hafa legið fyrir um nokk­urt skeið og verið fjallað um síð­ustu mán­uði. Þá fór félagið í mikla end­ur­skipu­lagn­ingu síð­asta haust þegar til­kynnt var að félagið myndi vera með flug­rekst­ar­leyfi frá Möltu, en ekki íslandi.

Vísir greindi frá því fyrr í mán­uð­inum að flug­menn Play hefðu verið í óform­legar verk­falls­að­gerðir í byrjun sept­em­ber og voru flug­ferðir felldar niður að þeim sökum. Þá kom fram að það væri ólík­legt að félagið væri að fara á haus­inn, í ljósi þess að félagið var nýbúið að landa tveggja og hálfs millj­arðs króna fjár­mögnun.  Var þá dregin sú ályktun af hálfu við­mæl­anda að félagið væri ekki að fara á haus­inn.

Heim­ildin greindi frá því fyrr  á árinu að Rekstur Play hafi aldrei skilað hagn­aði auk þess sem flug­fé­lagið hefur aldrei tapað jafn­miklu og árið 2024. Tapið á síð­asta ári nam tæpum 9,3 millj­örðum króna, sem er 4,5 millj­örðum verri nið­ur­staða en árið þar á undan. Sam­an­lagt tap af rekstri Play er rétt tæpir 24 millj­arðar króna á fimm ára tíma­bili.

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gjaldþrot Play

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár