Gervigreindarfréttir skapa glundroða

Formaður Blaða­manna­fé­lags­ins segir að erfitt sé orðið að greina á milli raun­veru­leik­ans og fals­frétta sem hann­aðar eru með gervi­greind. Upp­lýs­inga­læsi almenn­ings sé ábóta­vant og hlut­verk blaða­manna mik­il­væg­ara en aldrei fyrr.

Gervigreindarfréttir skapa glundroða
Gervi­greind­ar­mynd Elliði Vign­is­son, bæj­ar­stjóri í Ölfusi, birti gervi­greind­ar­mynd sem átti að sýna stemn­ing­una hjá stjórn­ar­meiri­hlut­anum á Alþingi þegar ljóst var að veiði­gjalda­frum­varpið mundi ná í gegn.

Hol­skefla af fals­fréttum sem búnar eru til af gervi­greind dynja á sam­fé­lags­miðlum þessa dag­ana.

Í sumum til­vikum eru fals­fréttir merktar traust­vekj­andi fjöl­miðlum eins og BBC, þrátt fyrir að inni­halda ósann­indi eins og að Luigi Mangione, sem var hand­tek­inn fyrir morð á for­stjóra heil­brigð­is­trygg­inga­fyr­ir­tækis í New York, hafi svipt sig lífi.

Í öðrum er myndum eða mynd­böndum dreift í póli­tískum til­gangi. Má þar nefna efni sem hannað er til að vekja ótta gegn inn­flytj­endum eða ákveðnum þjóð­fé­lags­hópum, stundum jafn­vel fram­leitt af stuðn­ings­fólki ákveð­inna stjórn­mála­flokka eins og þýska hægriöfga­flokks­ins Alt­ernative für Deutschland (AfD).

Í enn öðrum til­vikum eru heilu rás­irnar á YouTube und­ir­lagðar efni sem lík­ist frétta­mynd­böndum, til dæmis um rétt­ar­höldin yfir tón­list­ar­mann­inum P. Diddy, en eru í raun búin til með gervi­greind til þess að beina nettraffík á rás­ina með von um skjót­feng­inn gróða.

Opin­berir aðilar geta líka látið blekkj­ast af myndum sem búnar eru til með gervi­greind. …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Gervigreindin tekur yfir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár