Bakar kleinur fyrir bágstadda á Gaza – „Getum öll hjálpað“

Að horfa upp á stríð getur verið yfir­þyrm­andi og haft í för með sér mikla van­mátt­ar­kennd. Þrátt fyrir það finnur fólk leiðir til að gefa af sér með óvenju­legum hætti. Sigríður Rósa Sig­urð­ar­dóttir er ein þeirra og styður við og styrkir fólk á Gaza með því að selja kleinur. Hún seg­ist forð­ast það að horfa á fréttir af ástand­inu og skilur ekki hvers vegna ekki sé gripið til aðgerða til að stöðva stríðið – en hún imprar á því að allir geti lagt hönd á plóg til að hjálpa.

Bakar kleinur fyrir bágstadda á Gaza – „Getum öll hjálpað“
Sigríður Rósa hefur fylgst með ástand­inu á Gaza frá því stríðið hófst. Áhuginn á þessu svæði á sér þó lengri sögu. Mynd: Sindri Swan

Sigríður Rósa Sig­urð­ar­dóttir, fyrr­ver­andi safn­stýra á Smá­muna­safn­inu og kleinu­aktífisti á Akureyri, steikir kleinur og selur til að hjálpa fólki í neyð á Gaza. Upp­skriftin kemur frá mömmu fyrr­ver­andi mág­konu hennar í Vest­manna­eyjum. „Ég smakk­aði þær fyrst tólf ára hjá henni og þær eru bestu kleinur í heimi. Þegar ég steiki þær, þá kalla ég þær „kleinur með karakter“ því þær eru eins og við mann­fólkið, alls konar í útliti en allar jafn­góðar á bragðið.“

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hún notar þessa aðferð til að safna pen­ingum í hjálp­ar­starf. „Ég steikti kleinur og safn­aði fyrir skóla­gjöldum fyrir börn í Dar Es Salaam í Tansaníu þar sem vin­kona mín er með stúlkna­heim­ili ásamt fjöl­skyld­unni sinni. Svo hef ég nýtt kleinu­söl­una í ýmis önnur góð mál­efni.“

Amma sat á úlfalda í íslenska búningnum

Sigríður Rósa seg­ist vera búin að fylgj­ast með ástand­inu á Gaza frá því að …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Thordis Malmquist skrifaði
    Hvernig get ég keypt kleinur hjá þér?
    1
    • Sigrun Haraldsdottir skrifaði
      Finndu hana á Facebook :) ...ef þú finnur hana ekki skal ég koma skilaboðum áleiðis.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Raddir Gaza

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár