„Ég og stelpurnar mínar hlupum um í skelfingu“

„Ég verð örvænt­ing­ar­full þegar ég stend og horfi á eyði­legg­ing­una og spyr sjálfa mig hvenær þess­ari martröð ljúki,“ skrifar Israa Saed. Hún hefur lifað fimm stríð, en aldrei séð neitt í lík­ingu við grimmd­ina sem á sér stað á Gaza núna.

„Ég og stelpurnar mínar hlupum um í skelfingu“
Allt hefur tap­ast Í upp­hafi stríðs var hægt að nota far­ar­tæki á flótta á milli staða. Nú eru slík far­ar­tæki nán­ast ófá­an­leg – og ef þau finn­ast er varla ger­legt að nota þau. Mynd: AFP

Ég er Israa frá Gaza, nánar til­tekið hinni eyðilögðu sorg­ar­borg Rafah. Ég er 31 árs, móðir þriggja ungra stúlkna. Ég átti góða ævi sem barn, þó að ég hafi eitt sinn misst framan af fingri. 

Þó ég sé ekki eldri hef ég orðið vitni að fjórum til fimm stríðum, en það sem nú stendur yfir er auð­vitað það ofbeld­is­fyllsta. Fyrsta stríðið var árið 2008, þegar ég var 16 ára. Ég var í loka­prófum í skól­anum og eld­flaugar flugu yfir höfðum okkar. Við hlupum heim æpandi af skelf­ingu. Það var erfitt að ljúka prófum vegna ástands­ins sem stóð í mánuð. Þá lauk ég grunn­skóla. Eftir mennta­skóla fór ég í háskóla í 4 ár, með arab­ísku og íslömsk fræði sem aðal­grein. 

Ég gift­ist árið 2011, fyrstu önn mína í háskóla. Maðurinn minn er venju­legur járn­smiður sem þurfti að vinna hörðum höndum fyrir lífs­við­ur­væri okkar. Við áttum lítið, fal­legt og nota­legt …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SEM
    Sólveig edda Magnúsdóttir skrifaði
    Átakanleg
    0
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Einn af mörgum glæpum sem forsetisráðherra ísraels hefur framið er að gera mig að kynþáttahatara og það þoli ég ekki, nú hata ég alla gyðinga, það er ömurlegt.
    0
    • Sigrun Haraldsdottir skrifaði
      Ekki hata gyðinga. Ég lít ekki á sionista sem gyðinga, þetta eru bara illmenni. Við verðum að gera greinarmun á gyðingum og sionistum.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Raddir Gaza

Bakar kleinur fyrir bágstadda á Gaza – „Getum öll hjálpað“
ViðtalRaddir Gaza

Bakar kleinur fyrir bág­stadda á Gaza – „Getum öll hjálpað“

Að horfa upp á stríð getur verið yfir­þyrm­andi og haft í för með sér mikla van­mátt­ar­kennd. Þrátt fyrir það finnur fólk leiðir til að gefa af sér með óvenju­legum hætti. Sigríður Rósa Sig­urð­ar­dóttir er ein þeirra og styður við og styrkir fólk á Gaza með því að selja kleinur. Hún seg­ist forð­ast það að horfa á fréttir af ástand­inu og skilur ekki hvers vegna ekki sé gripið til aðgerða til að stöðva stríðið – en hún imprar á því að allir geti lagt hönd á plóg til að hjálpa.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár