Við drukkum vatn úr salernum í tíu daga til að lifa af

Frásögn Nour Al-Batsh, 28 ára móður í Gaza, af umsátri, sprengjum og örvænt­ingu.

Við drukkum vatn úr salernum í tíu daga til að lifa af

Ég heiti Nour Al-Batsh og kem frá borg­inni Gaza, sem er undir umsátri. Flestir íbúar hafa neyðst til að flytja til suð­ur­hluta Gaza og aðeins fáir eru eftir. 

Ég er gift, 28 ára gömul kona, með BA-gráðu í félags­ráð­gjöf. Eig­in­maður minn, Mohammed Olwan, er sjón­tækja­fræð­ingur. Við eigum fjög­urra ára gamlan son sem heitir Ziad og mjög fal­lega þriggja ára gamla dóttur sem heitir Julia.

Ég skrifa með hjarta fullt af sárs­auka og tóman maga.

Fyrst vil ég taka fram að ég hafna því sem gerð­ist 7. októ­ber. Við höfðum ekk­ert með það að gera. Hryðju­verka­sam­tök hafa dregið 2,3 milljón manns inn í stríð og þjóð­ar­morð. Við erum fórn­ar­lömbin hér.

Bar slasað barnið á heilsugæslustöð

Heimilið okkar eyði­lagð­ist með mjög miklum skemmdum.

Í upp­hafi stríðs­ins lögðum við á flótta og leit­uðum skjóls í neyð­ar­skýlum, sem voru yfir­full af flótta­fólki. Þar var ekki nægan …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Raddir Gaza

Bakar kleinur fyrir bágstadda á Gaza – „Getum öll hjálpað“
ViðtalRaddir Gaza

Bakar kleinur fyrir bág­stadda á Gaza – „Getum öll hjálpað“

Að horfa upp á stríð getur verið yfir­þyrm­andi og haft í för með sér mikla van­mátt­ar­kennd. Þrátt fyrir það finnur fólk leiðir til að gefa af sér með óvenju­legum hætti. Sigríður Rósa Sig­urð­ar­dóttir er ein þeirra og styður við og styrkir fólk á Gaza með því að selja kleinur. Hún seg­ist forð­ast það að horfa á fréttir af ástand­inu og skilur ekki hvers vegna ekki sé gripið til aðgerða til að stöðva stríðið – en hún imprar á því að allir geti lagt hönd á plóg til að hjálpa.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár