Mynd: AFP

Dagbók með röddum Gaza: Búin á líkama og sál

Í heila viku skrá­setti Guðný Gúst­afs­dóttir sam­töl sín við fólk á Gaza til að geta deilt veru­leika þeirra með les­endum Heim­ild­ar­innar. Hér segir frá fót­bolta­strák sem missti fót­inn, fjöl­skyldu sem lifði af þegar árás var gerð á blokk­ina þeirra og blóð­ugum slags­málum við mat­ar­stöðvar.

1. maí: Mánudagur og óttinn segir til sín

Hluti harms fólks­ins á Gaza er þögg­unin. Ofsa­fengin til­raun Ísraela og vest­ur­veld­anna til að þurrka heila þjóð út, þegj­andi og hljóða­laust.

Það má ekki ger­ast. Það mun ekki ger­ast. Við segjum sögur þeirra. 

Yousef rataði beint í hjartað á mér með skrifum sínum. Nú treystir hann sér ekki í mynd. Hann er orð­inn þungur. 

Noor, Mohammed og litlu börnin þeirra tvö voru enn á Norður-Gaza með börnin og blokkin var sprengd upp. Þau voru eina íbúðin sem slapp. Drón­arnir æddu um eins og soltnar skepnur og leit­uðu að þeim í marga daga og vikur. Þau lágu á gólf­inu með börnin sín, sussuðu á þau svo drón­arnir fyndu þau ekki. Mohammed skreið á mag­anum eftir mat og vatni. Dag eftir dag, viku eftir viku. Að lokum náði hann í vatn í kló­sett­inu. Það var allt annað búið. 

Imad …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Framgangur Israel er ólíðandi og þarf að stoppa.
    En lítið heyrist um gagnrýni á Hamas. Þeir ættu að sjá sóma sinn að viðurkenna ósigur að þessu sinni. Að þeir gera það ekki sýnir best að þeim er sama um palestínska þjóð heldur nota fólk sitt sem píslarvotta.
    Fyrir utan þá eindæma heimsku að byrja þetta stríð þegar almenningur í Israel reis upp gegn Netanyahu. Sá væri etv ekki lengur forsætisráðherra.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Raddir Gaza

Bakar kleinur fyrir bágstadda á Gaza – „Getum öll hjálpað“
ViðtalRaddir Gaza

Bakar kleinur fyrir bág­stadda á Gaza – „Getum öll hjálpað“

Að horfa upp á stríð getur verið yfir­þyrm­andi og haft í för með sér mikla van­mátt­ar­kennd. Þrátt fyrir það finnur fólk leiðir til að gefa af sér með óvenju­legum hætti. Sigríður Rósa Sig­urð­ar­dóttir er ein þeirra og styður við og styrkir fólk á Gaza með því að selja kleinur. Hún seg­ist forð­ast það að horfa á fréttir af ástand­inu og skilur ekki hvers vegna ekki sé gripið til aðgerða til að stöðva stríðið – en hún imprar á því að allir geti lagt hönd á plóg til að hjálpa.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár