Mæðgur á vaktinni

Mæðgurnar Júlíana og Hrafn­hildur eru báðar hjúkr­un­ar­fræð­ingar og vinna oft saman á vöktum á bráða­mót­tök­unni. Á leið­inni heim eftir erf­iða vakt náð þær oft góðu spjalli sem verður góð viðrun. Starfs­fólk bráða­mót­tök­unnar á Land­spít­al­anum á það til að líkja starfs­hópnum við fjöl­skyldu, en þar starfa líka fjöl­skyldur og nánir aðstand­endur saman.

Mæðgur á vaktinni

Vaktin hefur verið krefj­andi hjá Hrafn­hildi Stein­unni Sig­ur­þórs­dóttur hjúkr­un­ar­fræð­ingi sem sinnti erf­iðu heim­il­is­of­beld­is­máli. „Það er að koma kona hérna inn í fyrsta skipti sem er í rosa­lega mik­illi krísu og það kemur í ljós í sam­tali við hana að þetta er stelpa sem er verið að beita and­legu, fjár­hags­legu, kyn­ferð­is­legu og lík­am­legu ofbeldi. Og hún er ofboðs­lega hrædd að vera hérna hjá okkur, hana langar að fara og hún er hrædd,“ segir Hrafn­hildur.

Þetta er eitt af þessum málum sem fylgir henni heim af vakt­inni. „Auðvitað taka svona mál alltaf meira á mann þegar maður sér að mann­eskjan er undir alveg gríð­ar­legu álagi og er búin að vera að ganga í gegnum alveg ótrú­lega mikið af erf­iðum hlutum. Maður gefur 110 pró­sent, alltaf,“ segir hún og bætir því við að þetta séu mál sem sitja í henni í ein­hvern tíma. „Það er ótrú­lega mik­il­vægt þegar maður er með svona mál að viðra það og tala við sam­starfs­fólk, ein­hvern sem maður má tala um þessi mál við. Maður má ekki tala um þessi mál við hvern sem er því við erum bundin þagn­ar­skyldu. Þannig að þetta þarf að vera ein­hver sem má í raun­inni tala við.“

Mæðgurnar fara saman af vakt

Leiðin heim fyrir Hrafn­hildi er upp á Akranes þar sem hún býr. En hún fer ekki ein því á heim­leið­inni er mamma hennar, Júlíana Við­ars­dóttir, í bílnum. Hún starfar sem hjúkr­un­ar­fræð­ingur á bráða­mót­tök­unni. Það eru því oft viðr­un­ar­fundir hjá þeim mæðgum á leið­inni heim af erf­iðum vöktum. „Við tökum örugg­lega rúnt á eftir þar sem við ræðum þetta. Það er bara heppnin sem við erum með, við mæðgurnar, að geta talað um erfið mál. Það eru ekk­ert allir sem eru þar,“ segir Hrafn­hildur.

Spurð hvort það hafi verið mamma hennar sem kveikti áhuga á hjúkr­un­ar­nám­inu svarar hún; „Nei, ég get ekki sagt það. En eftir að ég byrj­aði í hjúkrun þá hefur hún verið mér mikil fyr­ir­mynd. Hún er alveg ótrú­lega flott og það er ótrú­lega gaman að fá að sjá mömmu sína í þessu hlut­verki, að stýra ótrú­legum aðgerðum hérna inni á spít­al­anum sem vakt­stjóri,“ segir Hrafn­hildur. Með stolti bætir hún við. „Vá, þetta er mamma mín. Það er geggjað.“

Læra af hvor annarri 

Júlíana bregst auð­mjúk við þessu fal­lega hrósi frá dóttur sinni. „Ohhhh,“ segir hún og lítur bros­andi á dóttur sína. En hvernig líst mömm­unni á að dóttirin sé að vinna á bráða­mót­tök­unni, stundum á sömu vöktum og hún? „Mér leist ekk­ert mjög vel á það. Ég var mjög lengi búin að reyna að segja henni að koma ekki hingað en svo verður maður bara að leyfa fólki að gera það sem það langar. Maður bannar ekki neinum neitt,“ segir Júlíana og lítur á dóttur sína. „Hún er nátt­úr­lega mjög flottur hjúkr­un­ar­fræð­ingur og ég er mjög stolt af henni.“

Nám í hjúkr­un­ar­fræði þró­ast og Jónína seg­ist læra af dóttur sinni. „Já, hún hefur alveg kennt mér því það er nátt­úr­lega aðeins síðan ég var í skól­anum,“ segir Júlíana. Dóttirin lærir líka af mömm­unni. Þær nýta tím­ann vel í bílnum á leið úr og í vinnu. „Við keyrum saman á milli þannig að hún gat spurt á leið­inni upp á Skaga,“ segir mamman. „Ég geri það enn þá,“ bætir Hrafn­hildur við og mamma hennar er ánægð með það. „Það er bara mjög fínt. Hún getur rætt ýmis­legt við mig og þá er það bara búið þegar við komum heim,“ segir Júlíana. Dóttirin bætir við: „Svona viðrun á leið­inni heim er rosa­góð stundum,“ segir Hrafn­hildur og brosir.

Búa ekki saman

Hvað með ósætti þeirra á milli í vinn­unni eða á leið­inni í eða úr vinnu? „Það var það svona í den,“ segir Hrafn­hildur og kímir.  „Já, en ekki lengur. Við búum ekki saman,“ segja þær báðar hlæj­andi. Dóttirin bætir við: „Og það hefur breytt öllu. En nei, nei, ekk­ert ósætti eins og er, sjáum til,“ segja mæðgurnar og líta bros­andi á hvor aðra. 

Júlíana gegnir stundum stöðu vakt­stjóra á bráða­mót­tök­unni en það starf hlýtur að telj­ast til anna­sam­ari starfa á land­inu. Vakt­stjór­inn þarf að halda mörgum hlutum á lofti í einu, hafa yfir­sýn og verður fyrir stans­lausu áreiti - hvort sem er í gegnum síma, tal­stöð eða frá sam­starfs­fólki.

Sér Hrafn­hildur fyrir sér að hún verði vakt­stjóri eins og mamma hennar? „Já, þetta er stór spurn­ing. Þegar maður er nýbyrj­aður að taka þessi skref þá virð­ist þetta starf vera ótrú­lega mikið og stórt. Það er mikil reynsla sem felst í því að þurfa að stjórna öllu hérna inni. Og þetta er alveg brekka sem maður sér ekki topp­inn á, en maður veit að á ein­hverjum tíma­punkti þá endar maður þar. Þannig að það verður bara spenn­andi að sjá hvort maður nái því,“ segir Hrafn­hildur. 

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Á vettvangi

Vont að senda varnarlausar konur aftur í sömu stöðu
Á vettvangi

Vont að senda varn­ar­lausar konur aftur í sömu stöðu

Jóhanna Erla Guð­jóns­dóttir er félags­ráð­gjafi á bráða­mót­töku Land­spít­al­ans. Þar tekst hún á við myrk­ustu hliðar mann­lífs­ins, en seg­ist helst reið­ast yfir því að rekast á sömu vegg­ina aftur og aftur, þegar úrræðin eru engin. Til dæmis varð­andi konur sem búa á göt­unni, verða fyrir ofbeldi og eiga sér hvergi skjól. Þrátt fyrir áskor­anir segir hún starfið það besta í heimi.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár