Kolefnisföngun knúin áfram af ótta og græðgi

Ástralir eru ekki hrifnir af kolefn­is­föng­unar- og förg­un­ar­tækn­inni eða CCS tækn­inni eins og hún er skamm­stöfuð á ensku. Í Ástralíu er því haldið fram að hún sé notuð til þess að græn­þvo gas- og olíu­fyr­ir­tæki.

Kolefnisföngun knúin áfram af ótta og græðgi
Fá kolefn­is­föng­un­ar­verk­efni hafa kom­ist á lagg­irnar í Ástralíu.Í raun er aðeins eitt slíkt starf­rækt í land­inu, Gorgon verk­efnið svo­kall­aða, og er það sagt víti til þess að var­ast. Mynd: Unsplash

Ástralía er í fjórða sæti yfir þau ríki sem fanga mestu koldí­oxíði með CCS tækn­inni (Carbon capture and storage). Stærsta CCS verk­efnið þar í landi hefur verið gagn­rýnt harð­lega fyrir lélegan árangur á sama tíma og verk­efnið sogar til sín mikið almannafé. Heim­ildin hefur fjallað um áform Carbfix í Hafn­ar­firði og er við­talið nú hluti af síð­ustu umfjöllun blaðs­ins þar sem fjallað er um alþjóð­leg við­horf og reynslu ann­arra ríkja af kolefn­is­föngun og förgun.

Rod Campell er rann­sókn­ar­stjóri hjá ástr­al­skri hug­veitu.

Rod Campell er rann­sókn­ar­stjóri hjá Australian Institute hug­veit­unni, sem sér­hæfir sig í rann­sóknum á grænum mál­efnum og áhrifum þeirra á efna­hag í land­inu. Sjóð­ur­inn hefur sterk tengsl við umhverf­is­sam­tök og stjórn­mála­flokk græn­ingja þar í landi. Rod er and­vígur CCS tækni, sem hann segir að hafi verið mark­visst notuð sem græn­þvottur fyrir gas-, olíu- og kol­arisa. CCS tæknin hefur lengi verið notað í Ástralíu og mikil reynsla er komin á slíka starf­semi þar í landi. Fátt bendir til að tæknin nýt­ist umhverf­inu, þvert á móti að mati Rod. 

„Í Ástralíu hafa leik­endur í CCS tækn­inni breyst umtals­vert á síð­ustu tutt­ugu árum,“ segir Rod. Í fyrstu hafi umræðan snú­ist að mestu leyti um „hrein kol“, eins og það er kallað. „Hug­myndin var sú að við gætum notað eins mikið af kolum og við vildum. CCS tæknin myndi svo hreinsa það allt saman upp,“ útskýrir hann. „Kolin eru ekki jafn­stór hluti af raf­orku­kerf­inu í dag og þá. Nú nýtum við miklu meira af vind- og sól­ar­orku,“ segir hann og nefnir að hlut­fallið nú sé 60 pró­sent á móti 40 pró­sent af grænni orku. 

„Það sem hefur hins vegar breyst er að Ástralir eru orðnir einir af stærstu útflutn­ings­að­ilum í heim­inum á fljót­andi gasi. Erum við orðin nán­ast jafn umsvifa­mikil og Katar í þessum efnum,“ segir Rod og bætir við að CCS iðn­að­ur­inn hafi því fengið fram­halds­líf eftir kola­veg­ferð­ina og sé núna nán­ast ein­göngu not­aður til þess að kolefn­is­jafna olíu- og gas­iðn­að­inn.

„Meg­in­á­hersla CCS tækn­innar hér á landi er því aðal­lega að kolefn­is­jafna olíu- og gas­iðn­að­inn,“ segir Rod.

Fyrst og fremst grænþvottur

Spurður hver kostn­aður skatt­greið­enda sé vegna þessa, segir Rod ekk­ert ein­falt svar við þeirri spurn­ingu. „Iðn­að­ur­inn hefur fengið um 3 millj­arða ástr­alska doll­ara, eða yfir 260 millj­arða íslenskra króna, frá mis­mun­andi þáttum stjórn­kerf­is­ins. En það sem er mik­il­væg­ara að skilja er að fæst þess­ara CCS verk­efna sem eru áætluð kom­ast aldrei á lagg­irnar,“ segir hann. „Mark­miðið er bein­línis að þessi verk­efni kom­ist aldrei á kopp­inn. Þetta er gert til þess að afvega­leiða stjórn­völd og lán­veit­endur. Meðal ann­ars svo ekki sé ráð­ist í kostn­að­ar­samt hreins­un­ar­starf á olíu- og gaslindum.“

Það þýðir í reynd að sú hug­mynd sé seld að til standi að ráð­ast í CCS verk­efni til þess að dæla koldí­oxíði í olíu­lind­irnar sem eru nán­ast orðnar tómar í stað þess að hreinsa upp svæðið.

„Hundruð gas- og olíu­lindir eru komnar á síð­asta dag og það mun kosta millj­arða ástr­al­skra doll­ara að hreinsa svæðið. Með því að seinka þessu, geta þeir sagst ætla að hreinsa þetta upp í fram­tíð­inni og græða því sem nemur,“ útskýrir Rod og bætir við: „CCS er í raun græn­þvottur í Ástralíu og til þess gerður að afvega­leiða almenn­ing og stjórn­völd.“ 

Fanga skattaafslætti

Rod segir áhrifin víða og ólík eftir land­svæðum. „Það er til að mynda CCS verk­efni hér í Viktoríu sem hefur verið í bígerð í mörg ár. Það er alfarið fjár­magnað af stjórn­völdum og hefur kostað um 15 millj­ónir doll­ara,“ segir hann, sem nemur um 1,3 millj­örðum íslenskra króna. Verk­efnið hefur ekki enn hafið störf.

„Ef þú ert að tala um beina styrki, þá er Ástralía með eina verk­smiðju á sinni ábyrgð, og hún er tengd Chevron, oft kölluð Gorgon. Það verk­efni hefur fengið mögu­lega um hund­rað milljón ástr­al­skra doll­ara í beinum styrkjum,“ segir Rod. 

Gorgon er stærsta CCS verk­efni ver­aldar og mjög umdeilt á meðal almenn­ings í Ástralíu. Það kost­aði meira en þrjá millj­arða ástr­al­skra doll­ara að byggja verk­smiðj­una sem er ætlað að dæla niður CO2 úr gas­fram­leiðslu. Gorgon er í dag­legu tali kölluð CCUS tækni, en u-ið stendur fyrir „utilisation“ eða hag­nýt­ingu. Gasið er nýtt til þess að fá meira af jarð­efna­elds­neyti upp úr bor­holum fyr­ir­tæk­is­ins. Áætlað var að verk­efnið gæti fangað og dælt niður um fjórum millj­ónum tonna af CO2 á ári hverju. 

Verk­efnið er minna í sniðum en Carbfix stefnir á að verða, sam­kvæmt fjár­festa­kynn­ingu sem unnin var fyrir fyr­ir­tækið árið 2023. Þar var talað um fyr­ir­ætl­anir um að dæla niður 4,8 millj­ónum tonna. Carbfix hefur þó hafnað því, og segj­ast slíkt aðeins mögu­legt, þá sem nýtt verk­efni sem færi í gegnum nýtt leyf­is­mat.

Gorgon hefur aldrei náð mark­miðum sínum. Að með­al­tali hefur það fargað um einni milljón tonna af CO2 á ári hverju. Rod segir verk­efnið víti til að var­ast: „Chevron virð­ist að auki sama um að tapa pen­ingum á verk­efn­inu, því þeir fá meiri háttar skatta­af­slætti út af þess­ari starf­semi,“ segir Rod og bætir við: „Gas­iðn­að­ur­inn hefur ekki þurft að greiða skatta af 149 millj­örðum ástr­al­skra doll­ara út af CCS tækn­inni.“

Stál og sement skipta litlu

Hér á landi er gjarnan rætt um sem­ents- og stálfyr­ir­tæki sem dæmi um iðnað sem þarf á svona tækni að halda. „Þegar litið er til ástr­alska meng­un­ar­iðn­að­ar­ins þá eru stál og sem­ent ekki jafn­miklir meng­un­ar­valdar og margir gætu haldið. Ekki þegar litið er á stóru mynd­ina. En það gagn­ast olíu- og gas­fyr­ir­tækjum að þessi iðn­aður sé þarna líka. Þannig geta þeir við­haldið ein­hvers konar rök­ræðum um til­gang þess­arar tækni á meðan sann­leik­ur­inn er sá að þetta er aðal­lega nýtt af olíu- og gas­fyr­ir­tækjum,“ segir Rod.  

Spurður út í við­horf almenn­ings til þess­arar starf­semi, segir Rod að flestir átti sig lík­lega ekki almenni­lega á henni þar sem hún sé tækni­lega flókin. 

„Umhverf­is­vernd­ar­sinnar eru algjör­lega and­snúnir CCS tækn­inni hér í Ástralíu. Aðallega vegna þess að hún er notuð til að rétt­læta ný olíu- og gasverk­efni. Grænu flokk­arnir eru and­vígir þessu og efins um gagn­semi CCS tækn­innar. Það er ekki nema almenn­ingur verði var við vökva­brot (fracking) sem hann áttar sig á alvöru máls­ins,“ segir Rod.

Ótti og græðgi ráða för

Aðspurður hvort stjórn­mála­menn fylgi vís­indum í ákvarð­ana­töku sinni eða taki mið af efna­hagnum, hlær hann. „Þú ert ekki héðan, er það?“

„Ástr­alskir stjórn­mála­menn nálg­ast þennan iðnað á tvenns konar hátt; af ótta og græðgi,“ segir Rod. Námu­iðn­að­ur­inn hafi farið í umfangs­mikla aug­lýs­inga­her­ferð gegn Verka­manna­flokknum árið 2010 sem hann telur að hafi leitt til ósig­urs sitj­andi for­sæt­is­ráð­herra. Eftir það hafi stjórn­málin verið ótta­slegin við að styggja iðn­að­inn.

„Við höfum séð fjöl­mörg dæmi þar sem stjórn­mála­fólk fer rak­leiðis úr stjórn­málum yfir í störf hjá þessum sömu fyr­ir­tækjum,“ segir Rod. „Það er bein­linis snún­ings­hurð á milli stjórn­mála­fólks og þess­ara fyr­ir­tækja.“

Ekkert af þessu snú­ist um vís­indi eða efna­hag. „Þetta snýst um að ný gasverk­efni eru fjár­mögnuð með þeim skýr­ingum að verk­efnin verða ekki skelfi­leg vegna CCS tækn­innar. Þetta snýst um að afvega­leiða stjórn­mála­fólk og almenn­ing svo það þurfi ekki að ráð­ast í dýrt hreins­un­ar­starf. Þess vegna eru millj­arða hags­munir í þessu.“  

En hvar liggur þá fram­tíð CCS iðn­að­ar­ins að mati Rod?

„Að feng­inni reynslu hljóta það að vera olíu- og gas­risar sem við­halda helst þess­ari tækni. Það eru jákvæð teikn á lofti, það eru kosn­ingar í nánd og ef Verka­manna­flokk­ur­inn nær minni­hluta­stjórn með Græn­ingjum, gætum við séð breyt­ingar á þessu,“ segir Rod. 

Spurður hversu mörg CCS verk­efni hafa virkað í Ástralíu stendur ekki á svari.

„Ó, engin,“ svarar hann og bætir við: „Það er bara eitt verk­efni. Það er Gorgon. Það virkar ekki – og er örugg­lega ekki einu sinni ætlað að virka, nema sem skálka­skjól fyrir fyr­ir­tækið. Og svo auð­vitað til þess að fanga skatta­af­slætti.“

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    How much sweet water is needed to capture 1 ton of CO2 to inject in basalt?
    0
  • DEC
    Deirdre Elizabeth Clark skrifaði
    Important to note that there are different types of CCS projects, so the CCS technology referred to here in the article are where supercritical CO2 is injected into oil and gas reservoirs. Which is different then dissolved CO2 in water and injecting into basalt rocks.
    0
  • GK
    Gísli Kristjánsson skrifaði
    Valdamiklir, harðlínu-kapítalistar munu gera hvað þeir geta til að afvegaleiða mannkynið með lygum og grænþvotti á leiðinni til einhvers konar glötunar. Græðgin mun knýja þessi öfl áfram af harðfylgi allt þar til berangursleg lygin blasir ein við í allri sinni æpandi nekt. Þá verður allt um seinan og lítið sem ekkert hægt að gera til að rétta kúrsinn. Það er of seint að bjarga risavöxnu fleygi sem er augnablikum fá því að rekast á hrikalegan borgarísjaka.

    Mannkynið siglir áfram með bundið fyrir augun. Hvað er að finna, fram undan, í fjarskanum? Gæti það verið feigðarósinn?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Carbfix-málið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár