Mótmælendur í Hafnarfirði: Sýndi að við vorum ekki valdalaus

Mót­mæl­endur í Hafn­ar­firði eru sig­ur­reifir eftir að Carbfix til­kynnti að fyr­ir­tækið ætl­aði að hætta við Coda Terminal-verk­efnið í bænum. Bæj­ar­full­trúi segir að það hafi staðið á pen­inga­hlið­inni.

Mótmælendur í Hafnarfirði: Sýndi að við vorum ekki valdalaus
Til stóð að hafa bor­teiga nærri íbúa­byggð á Völlunum. Mynd: Golli

„Við erum ekki valda­laus,“ segir Arndís Kjart­ans­dóttir sem var á meðal þeirra fremstu í hópi mót­mæl­enda í Hafn­ar­firði sem börð­ust gegn Coda Terminal-verk­efn­inu. Carbfix til­kynnti í síð­ustu viku að það ætl­aði að hætta við nið­ur­dæl­ing­ar­verk­efnið. 

Verk­efnið gekk út á að flytja inn minnst þrjár millj­ónir tonna af koldí­oxíði frá erlendri stór­iðju og dæla ofan í jörðu nærri Völlunum í Hafn­ar­firði. Afleið­ing­arnar eru tölu­verðar, Carbfix fékk hæsta styrk sem íslenskt nýsköp­un­ar­fyr­ir­tæki hefur fengið til verk­efnis hér á landi, eða um 16 millj­arða króna, og er hann í upp­námi vegna þessa þar sem ekki er ljóst hvort það sé hægt að færa hann yfir á annað verk­efni. Það er því ljóst að ákvörð­unin hefur tölu­verð áhrif á Carbfix.

Heim­ildin greindi í jan­úar frá stór­huga áætl­unum Carbfix tengdum Coda Terminal-verk­efn­inu. Stjórn­endur sáu fyrir sér …

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GT
    Geir Thorolfsson skrifaði
    Þetta er sorgleg niðurstaða. Það er augljóst að andstæðingar Coda verkefnisins hafa ekki kynnt sér málið nægilega vel. Til dæmis ekki lesið (eða ekki skilið) umhverfismatsskýrsluna. Andstæðingarnir hafa augljóslega trúað gífuryðum nettrölla og ofanskráðra blaðamanna um að hér ætti að drepa fólk með eitri.
    Svo er augljóst að andstæðingar verkefnisins trúa því ekki að alheimshlýnun vegna aukns koldíoxíðs í andrúmslofti sé vandamál.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Carbfix-málið

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár