Skarpt tekjufall Carbfix: Launakostnaður stjórnenda hækkar um 21 prósent

Tekj­ur Car­bfix dróg­ust sam­an um rúm­an millj­arð á milli ára. Rekst­ur­inn stend­ur ekki und­ir launa­kostn­aði leng­ur.

Skarpt tekjufall Carbfix: Launakostnaður stjórnenda hækkar um 21 prósent
Carbfix Félagið sendi frá sér heldur báglega ársreikninga. Félagið skuldar Orkuveitunni 6,5 milljarða. Borgarstjórn stefnir á að selja fyrirtæki áður en kjörtímabilinu lýkur. Mynd: Golli

Tekjufall Carbfix var um einn milljarður á milli áranna 2024 og 2025 og er svo komið að rekstrartekjur félagsins standa ekki undir launakostnaði starfsfólks, ólíkt öðrum dótturfélögum Orkuveitunnar. Á sama tíma hækkaði launakostnaður stjórnenda Carbfix um 21 prósent á milli ára. Eigið fé Carbfix er neikvætt um rúma tvo milljarða.

Carbfix hf. skuldar átta milljarða króna samkvæmt ársreikningi félagsins, þar af 6,5 milljarða til Orkuveitu Reykjavíkur. Tekin hefur verið ákvörðun um að framlengja lánalínu til félagsins næstu tvö árin. Nýr meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur stefnir á að selja félagið.

Rekstrartekjur um 370 milljónir en laun rúmur miljarður

Rekstrartekjur Carbfix hf. á síðasta rekstrarári voru 370 milljónir króna en voru um það bil 1,5 milljarðar árið 2024. Launakostnaður var í heild sinni rúmur einn milljarður samkvæmt ársreikningi félagsins fyrir síðasta rekstrarár, þar af var kostnaður vegna stjórnenda fyrirtækisins 65 milljónir yfir árið. Árslaun stjórnenda hækkuðu um 21 prósent á milli ára eða …

Kjósa
29
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • I’m beyond grateful to Dr. Benjamin for changing my life completely! I had been playing the Mega Millions lottery for years without success, until I came across Dr. Benjamin and decided to give his spell casting services a try. After performing a powerful lottery spell for me, everything turned around in the most unbelievable way—I won the Mega Millions jackpot of $670,000,000,00! The experience still feels like a dream come true. Dr. Benjamin was professional, kind, and deeply spiritual throughout the entire process. He guided me with confidence and positive energy, and his work truly produced results beyond my imagination. I highly recommend Dr. Benjamin to anyone who believes in miracles and is ready for a life-changing breakthrough. reach him via drbenjaminlottospell711@gmail.com or WhatsApp: +18588585788.
    0
  • JL
    Jón Logi skrifaði
    Af hverju orkuveitan er að vasast í þessu vonlausa verkefni er óskiljanlegt.
    2
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Er þetta ekki alltaf forleikurinn, þegar búið er að ákveða að selja ríkiseign?

    Sýna okkur lúserunum og einskisvirða pakkinu, að þrátt fyrir að hafa eytt hafi verið milljarðar sem teknir hafa verð að láni í að byggja upp þetta stórmerkilega fyrirbæri sem Carbfix felur í sér, þá skal það einkavætt.

    Enginn veit hvað sú sala á eftir að kosta okkur, lánin hvíla á Orkuveitunni og það vita það allir sem vilja vita það að Helmingaskiptaflokkarnir hafa verið með böggum hildar eftir að mistakast

    ,,að einkavæða útrásar- og nýsköpunararm Orkuveitunnar árið 2007 í hinu svokallaða REI-máli. Það mál fól í sér tilraun til að færa veruleg verðmæti og þekkingu úr opinbera kerfinu yfir í hendur einkafjárfesta, sem leiddi til eins mesta stjórnmálahneykslis í sögu borgarinnar"

    Það er ótrúlega sorglegt að horfa upp á alla spillinguna, sem fram fer hér á landi og geta ekki með nokkru móti spornað við því.

    Það ætti að kvikna ljós hjá meðalgreindu fólki, að verða vitni að þeirri úlfúð sem gripið hefur um sig á milli fylkinganna með og á móti aðildarviðræðna um ESB.

    Hver gæti verið ástæða þess að fylkingin sem er á móti noti hræðsluáróður sem aðallega er fólginn í dylgjum og oft beinlínis lygum til að tryggja að þjóðin fá ekki að sjá fullgerðan samning? Og hverjir eru það sem nota þessa aðferð?

    Þeir sem eeu með viðræðum, benda á ánægjuvog aðildarríkjanna og þeirri lýðræðislegu hugsun, að ekki sé nema sjálfsagt að þjóðin fái sjálf að vega og meta kosti og galla þess að vera innan Evrópusambandsins. Ég þekki marga óákveðna og þ.á.m. mig, sem vilja sjá í pakkann.
    Ég myndi t.d. ekki vilja sjá að hér yrði landbúnaður lagður niður, þótt taka megi til í þeirri búgrein.

    Og auðvitað vil ég að við höldum okkar fullveldi og sjálfstæði. En, ég vil koma böndum á spillta stjórnmálamenn, sem eru á góðri leið með að gera okkur að þrælum í eigin landi og mun Landsvirkjun eiga stærstan þátt í því👿🥶
    12
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Hver ber ábyrgð á hækkandi launum embættismanna?
    Spillingin í stjórnmálum hér á landi er yfirgengileg👿👿👿👿👿🤬🤬🤬
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Carbfix-málið

Mest lesið

Bjarni kominn með hlut í fjölskyldufyrirtækinu
2
ViðskiptiViðskipti Bjarna Benediktssonar

Bjarni kom­inn með hlut í fjöl­skyldu­fyr­ir­tæk­inu

Bjarni Bene­dikts­son er orð­inn hlut­hafi í Al­fa, fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki Eng­ey­inga, sem er stærsti eig­andi Kynn­is­ferða og á hlut í fjölda skráðra fé­laga á mark­aði. Fé­lag­ið seldi Tékk­land bíla­skoð­un og Bjarni fær um 19 millj­ón­ir króna í arð. Bjarni hef­ur áð­ur sagst ekki koma að rekstri við­skipta­veld­is fjöl­skyld­unn­ar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Náttúrubarnið í Sænautaseli
4
Viðtal

Nátt­úru­barn­ið í Sænauta­seli

Lilja Haf­dís Óla­dótt­ir á Merki á Jök­ul­dal líð­ur best í óbyggð­um og stend­ur vakt­ina í Sænauta­seli, þar sem hún tek­ur á móti gest­um með ný­bök­uð­um lumm­um. Eft­ir frá­fall móð­ur­inn­ar var hún kom­in í hús­mæðra­hlut­verk fimmtán ára göm­ul, auk þess að sinna bú­störf­um. Rúm­lega tví­tug varð hún móð­ir en gaf barn­ið til ætt­leið­ing­ar. Seinna eign­að­ist hún ann­að barn. Nú líð­ur henni best úti í nátt­úr­unni og í kring­um dýr­in, enda rollu­hvísl­ari sem var eitt sinn bjarg­að af hesti og get­ur séð í niða­myrkri.
„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð“
5
Innlent

„Við ætl­um ekki að vakna upp við þá mar­tröð“

Nú­tím­inn birti yf­ir­lýs­ingu frá nafn­laus­um ein­stak­lingi sem seg­ist bera ábyrgð á því að hafa mál­að yf­ir hinseg­in fán­ann á kirkjutröpp­um Grafa­vogs­kirkju. Þar seg­ist hann hafa vilj­að sjá við­brögð­in við því sem hann kall­ar „mynd­list­ar­gjörn­ing“. Ráð­herra gef­ur lít­ið fyr­ir þessi skrif og seg­ir ras­ista vilja end­ur­skil­greina ís­lenska fán­ann. Hún hvet­ur fólk til að standa gegn sundr­ungu.

Mest lesið í mánuðinum

Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
2
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár