Al Gore heldur eldræðu þar sem hann rífur CCS tækn­ina í síg. Mynd: afp

„Við sjáum hvað þið eruð að gera“

„Þetta er nýjasta tækni. Lítur frekar vel út, er það ekki?“ spyr Al Gore um fyr­ir­tækin sem þrýsta á meiri áherslu á kolefn­is­föngun og förgun. Vísinda- og fræði­fólk í þremur heims­álfum er efins um að tæknin sem starf­semi Carbfix byggir á sé rétta leiðin til að berj­ast gegn loft­lags­vánni.

Kolefn­is­föngun og förgun er frum­stæð og kostn­að­ar­söm tækni. Þetta eru nið­ur­stöður vís­inda­manna við Oxford-háskóla. Í við­tali við Heim­ild­ina er tæknin sögð hæg­virk og áhrifa­lítil í lofts­lags­bar­átt­unni. Banda­rískur fræði­maður varar við að kolefn­is­föngun geti skapað nýjan iðnað sem haldi losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda gang­andi, en líf­tími slíkra fyr­ir­tækja er bund­inn líf­tíma los­un­ar­að­ila. Rann­sókn­ar­stjóri hjá ástr­al­skri hug­veitu kallar tækn­ina afvega­leið­ingu olíu- og gas­iðn­að­ar­ins, og Ástralir eru almennt nei­kvæðir eftir slæma reynslu af CCS-verk­efnum.

Orku­veita Reykja­víkur, ásamt Carbfix, ætla að kosta tölu­verðu til þess að koma á lagg­irnar Coda Terminal-verk­efn­inu í Hafn­ar­firði í von um millj­arða hagnað. Til stendur að flytja koldí­oxíð frá fjöl­mörgum alþjóð­legum fyr­ir­tækjum til Íslands til förg­unar. Efa­semdir hafa þó komið fram varð­andi þessa tækni sem tól í lofts­lags­bar­átt­unni. 

Faðir lofts­lags­um­ræð­unnar, Al Gore, skefur ekki utan af því þegar hann segir kolefn­is­föngun og förgun lítið annað en svika­starf­semi. Heldur hann því fram að þessi tækni sé í umræð­unni til þess eins að …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Mammon lætur ekki að sér hæða. Kapítalisminn er hættulegasta hreyfing allra tíma, halelúja.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Carbfix-málið

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár