Toppurinn á tilverunni að fá leikskólapláss

Hápunktur síð­asta árs hjá Rakel Unni Thorlacius var þegar tveggja og hálfs árs gam­all sonur hennar fékk leik­skóla­pláss. Á þessu ári ætlar hún að setja sjálfa sig í fyrsta sæti.

Toppurinn á tilverunni að fá leikskólapláss
„Me-time“ Rakel Unnur Thorlacius ætlar að setja sjálfa sig í fyrsta sæti á nýju ári, nú þegar tveggja og hálfs árs gam­all sonur hennar er loks kom­inn með leik­skóla­pláss. Mynd: Heimildin/Erla María

Það besta sem kom fyrir mig á síð­asta ári er að barnið mitt komst inn á leik­skóla. Ég þakka fyrir að barnið mitt komst loks­ins inn á leik­skóla, fyrir hans hönd líka, hann var að verða brjál­aður á að vera heima. Það hljómar kannski þung­lynt en það var topp­ur­inn á 2024. Hann er tveggja og hálfs. Hann var ekki hjá dag­mömmu eða neitt þannig ég er mjög glöð að fá að end­ur­heimta smá af lífi mínu til baka eftir þetta.

„Það hljómar kannski þung­lynt en það var topp­ur­inn á 2024“

2025 verður árið sem ég get loks­ins farið í smá „me-time“ aftur. Ég ætla að hugsa vel um sjálfa mig. Ég ætla að fara í rækt­ina, stunda hug­leiðslu og hitta vini. Svo elska ég að vera hér, í vin­tage-búð­inni Wasteland. Þetta er búðin mín. Ég er að und­ir­búa útsölur og mér finnst geggjað að geta unnið við áhuga­málið mitt. Ég fyllist gleði við að vera hér. 

Mig langar að vera bara betri en í gær, ég ætla að reyna að gera það á þessu nýja ári. Ég ætla að hugsa um sjálfa mig, setja mig í fyrsta sæti. Það er mark­miðið á þessu ári, eins og kannski hjá öllum bara? En sama hvað er í gangi þá verður maður að halda áfram. Litli er búinn að vera veikur í mánuð og ég er ekki búin að fara neitt í rækt­ina. En ég ætla að vera ákveðn­ari við sjálfa mig á þessu ári. Setja mig í fyrsta sæti.“

Kjósa
4
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár