Ástin í lífi Dorritar er hundurinn Samson

Dorrit Moussaieff, fyrr­ver­andi for­seta­frú, segir hund­inn Samson vera ást­ina í lífi sínu og ef hún gæti væri hún alltaf á Íslandi með honum. Dorrit segir það engum koma við að hund­ur­inn sé klón­aður. „Ég sagði engum frá því að hann væri klón­aður. Ólafur gerði það.“

Ástin í lífi Dorritar er hundurinn Samson
Eins Hund­ur­inn Samson er alveg eins og Sámur, Dorrit segir þó að það sé karakt­er­inn sem skipti meira máli en útlitið. Mynd: Golli

„Ég hef aldrei verið hrifin af ferða­lögum. Ef ég gæti myndi ég alltaf vera á Íslandi með Samson en ég get það ekki,“ segir fyrr­ver­andi for­seta­frúin Dorrit Moussaieff, en hún heldur heim­ili bæði á Íslandi og í London.

Hún kveðst ferð­ast allt of mikið – í hverri eða annarri hverri viku – bæði vinnu sinnar vegna sem og með eig­in­manni sínum, Ólafi Ragnari Gríms­syni. „Ég er þar sem ég þarf að vera hverju sinni. Samson virð­ist ekk­ert þurfa á mér að halda, því hann er mjög ánægður.“

Hún var við­mæl­andi Svövu Jóns­dóttur í for­síðu­við­tali síð­asta tölu­blaðs Heim­ild­ar­innar. 

Sagði engum að hann væri klónaður

Sumarið 2008, á meðan þau bjuggu á Bessa­stöðum, fengu Ólafur Ragnar og Dorrit sér hund­inn Sám. En eftir að hann drapst var sú ákvörðun tekin að klóna hann. Dorrit segir hund­inn Samson, klón Sáms, vera krafta­verk. „He's the love of my life,“ segir hún um hann.

Það vakti tals­verða athygli á sínum tíma að for­seta­hjónin fyrr­ver­andi hefðu tekið þá ákvörðun að láta klóna hund­inn sinn. Við­brögðin voru mis­jöfn og spönn­uðu allt frá for­vitni yfir í hneykslan. Dorrit segir þó að þetta hafi engum komið við. „Ég sagði engum frá því að hann væri klón­aður. Ólafur gerði það,“ segir hún. Sámur og Samson líta eins út, en for­seta­frúin fyrr­ver­andi segir að það sé ekki útlitið sem skipti máli heldur karakt­er­inn.

Í uppáhaldi að fara á Esjuna

Dorrit kveðst hafa orðið ást­fangin af Íslandi þegar hún kom hingað fyrst. „Ég elskaði nátt­úr­una. Ég elskaði lykt­ina og ferska loftið. Hér var engin mengun.“

Þegar hún er á Íslandi er í upp­á­haldi hjá henni að ganga upp Esjuna, sem Dorrit segir vera sinn eft­ir­læt­is­stað á Íslandi. „Ég fer upp að Steini. Ástæðan fyrir því að ég fer ekki upp á topp er að Samson kemst ekki þangað, en ann­ars færi ég alla leið.“ Efsti hluti Esjunnar er nefni­lega grýttur sem gerir hundum erfitt fyrir að kom­ast þar upp.

Það er þó greini­legt að Dorrit vill fara víðar með hund sinn en aðeins upp á Esjuna. Dorrit segir að íslenskt sam­fé­lag ætti að vera jákvæð­ara gagn­vart hundum og að breyta mætti reglum um hunda hér á landi. Hún seg­ist velja að fara á þá veit­inga­staði hér á landi þar sem hundar eru vel­komnir og henni finnst að hundar eigi líka að geta farið inn í versl­anir og á sjúkra­hús. „Þetta þurfa auð­vitað að vera vel upp aldir hundar. Hundar auka vellíðan fólks.“

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Er sammála Dorrit að íslenskt samfélag ætti að vera jákvæðara gagnvart hundum. Bjóða ætti hunda velkomna í auknum mæli í verlanir, verslunarmiðstöðvar, kaffihús, sumarhús, hótel og veitingahús.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár