Ísrael og Palestína: „Stjórnvöld sem líkja má við mafíur“

Dorrit Moussaieff er með mörg járn í eld­inum. Hún ferð­ast víða um heim vegna starfs síns og eig­in­manns­ins, Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þekkir fólk frá öllum heims­hornum og hefur ákveðna sýn á við­skipta­líf­inu og heims­mál­unum. Hún er heims­kona sem hefur í ára­tugi verið áber­andi í við­skipta­líf­inu í Englandi. Þessi heims­kona og fyrr­ver­andi for­seta­frú Íslands er elsku­leg og elskar klón­aða hund­inn sinn, Samson, af öllu hjarta.

Ísrael og Palestína: „Stjórnvöld sem líkja má við mafíur“

Dorrit Moussaieff, fyrr­ver­andi for­seta­frú. Við hitt­umst fyrst í októ­ber á Artic Circle, Hring­borði norð­ur­slóða, sem fór fram í Hörpu. Eig­in­maður hennar, Ólafur Ragnar Grímsson, er for­svars­maður þings­ins, sem er helsti vett­vangur heims­ins þegar kemur að mál­efnum norð­ur­slóða og þangað mætir fólk víða að úr heim­inum. Af því til­efni var hún stödd hér á landi. 

Dorrit situr í sófa á Edition-hót­el­inu og talar í síma. Rétt hjá situr Samson, hund­ur­inn hennar. Hún heilsar hlý­lega, býður upp á te og hellir vatni úr plast­flösku í skál fyrir Samson.

„Ég ferð­ast allt of mikið,“ segir hún, „bæði vinn­unnar vegna og eins með eig­in­mann­inum. Ég ferð­ast mikið með Ólafi í tengslum við vinnu hans,“ segir hún, en hjónin eru til­tölu­lega nýkomin heim frá Abu Dabi. Almennt þarf hún að ferð­ast í hverri viku eða aðra hverja viku, útskýrir Dorrit. „Ég hef aldrei verið hrifin af ferða­lögum. Ef ég gæti myndi ég alltaf …

Kjósa
16
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Ruslfæðislausi dagurinn = góð hugmynd. Nokkur misveigamikil atriði sem ég er ósammála en viðtalið er skemmtilegt, eins og Dorrit einni er lagið. Og sammála því að gerð sé krafa um að allir innflytjendur læri íslensku. Kannski ráð að byrja á að kenna okkar eigin börnum íslensku. Og okkur sjálfum. Við erum örþjóð og þurrkumst út ef við förum ekki að gera stórátak í íslenskukennslu og -námi. Munum sjá eftir því síðar meir. Sem og ef við glötum árangrinum sem hefur náðst (og ekki þrautalaust) í jafnrétti kynjanna, en blikur eru á lofti á því sviði.
    0
  • Ingólfur Gíslason skrifaði
    Til hvers er þetta viðtal? Út á hvað gengur Heimildin eiginlega? Drottningarviðtöl?
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár