Framkvæmdir við Hvammsvirkjun hefjist í skugga ofríkis

Ekkert bendir til þess að orka úr áform­aðri Hvamms­virkjun verði nýtt sér­stak­lega í þágu orku­skipta eða raf­orku­ör­yggis, segir fram­kvæmda­stjóri Land­verndar. Því fari reyndar víðs­fjarri. „Réttmæt og marg­sönnuð gagn­rýni á umhverf­is­fórnir virkj­un­ar­innar hafa verið snið­gengin og þögguð í tvo ára­tugi.“

Framkvæmdir við Hvammsvirkjun hefjist í skugga ofríkis
Enginn orku­skortur Björg Eva Erlends­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar, segir margt hafa breyst síðan umhverf­is­mat vegna Hvamms­virkj­unar var gert fyrir tveimur ára­tugum. Mynd: Golli

400 hekt­ara uppi­stöðu­lón í miðri byggð er stórt inn­grip og áhætta fyrir líf­ríkið og íbúa svæð­is­ins,“ segir Björg Eva Erlends­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Land­verndar og félagi í sam­tök­unum Sól á Suð­ur­landi, um þau umdeildu áform Lands­virkj­unar að byggja Hvamms­virkjun í neðri hluta Þjórsár. Þrenn nátt­úru­vernd­ar­sam­tök hafa kært nýút­gefin fram­kvæmda­leyfi og virkj­un­ar­leyfi vegna virkj­un­ar­innar og þótt Land­vernd sé ekki á meðal þeirra segir Björg Eva sam­tökin taka heils­hugar undir kærur hinna sam­tak­anna.

„Þótt Ísland fórn­aði allri sinni nátt­úru og ásýnd lands myndi okkar orka ein­ungis full­nægja minna en pró­milli af orku­þörf heims­ins“
Björg Eva Erlends­dóttir,
fram­kvæmda­stjóri Land­verndar.

Hópur íbúa og land­eig­enda við Þjórsá hefur einnig kært leyf­is­veit­ing­arnar til úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála og hefur Lands­virkjun innan við tvær vikur til að skila and­mælum. 

Skeiða- og Gnúp­verja­hreppur og Rangár­þing ytra gáfu út fram­kvæmda­leyfi í fyrra og Orku­stofnun gaf út virkj­un­ar­leyfi í lok árs 2022. Úrskurð­ar­nefndin felldi öll þessi leyfi úr gildi. Þau hafa nú öll verið end­ur­út­gefin og aftur er kært því sautján kæru­mál hafa borist nefnd­inni vegna þessa.

„Fram­kvæmdin byggir á eld­gömlu umhverf­is­mati, án nokk­urs til­lits til nýrra laga og alþjóð­legra samn­inga sem lög­festir hafa verið til varnar nátt­úr­unni, til dæmis lög um stjórn vatna­mála og lög um líf­fræði­legan fjöl­breyti­leika,“ segir Björg Eva um áform­aða Hvamms­virkjun. „Á sama tíma höfum við und­ir­ritað Par­ís­ar­samn­ing­inn og heims­mark­mið Sam­ein­uðu þjóð­anna. Í mat­skýrsl­unni frá 2003 var ekki minnst á lofts­lags­mál.“

Björg Eva segir nátt­úru­vernd­ar­sam­tök telja fram­kvæmdir við Hvamms­virkjun hefj­ast í skugga ofríkis gegn nátt­úru, sam­fé­lagi og eðli­legri stjórn­sýslu. Þau telji ósannað að almanna­hags­munir séu í húfi, en leyfi sem áður hafði verið fellt úr gildi, var end­ur­út­gefið vegna meintra almanna­hags­muna, orku­skipta og raf­orku­ör­yggis, líkt og hún orðar það. Hún minnir á að stjórn­völd hafi ekki markað skýra stefnu og áherslur um orku­nýt­ingu og að ekk­ert bendi til þess að orka úr Þjórsá verði nýtt sér­stak­lega í þágu orku­skipta eða raf­orku­ör­yggis. Því fari reyndar víðs­fjarri. „Réttmæt og marg­sönnuð gagn­rýni á umhverf­is­fórnir virkj­un­ar­innar hafa verið snið­gengin og þögguð í tvo ára­tugi.“

Land­vernd hefur ítrekað haldið þeim sjón­ar­miðum á lofti að hér á landi sé ekki orku­skortur og að ekki þurfi að virkja sér­stak­lega til orku­skipta. Það verði að for­gangs­raða í orku­sölu, en ekki miða við að mæta óend­an­legri eft­ir­spurn. Betur megi fara með þá orku sem þegar er fram­leidd, draga úr sóun sem sé umtals­verð í kerf­inu og nýta nýjar lausnir sem séu smærri í sniðum. „Þótt Ísland fórn­aði allri sinni nátt­úru og ásýnd lands myndi okkar orka ein­ungis full­nægja minna en pró­milli af orku­þörf heims­ins,“ segir Björg Eva. „Er það þess virði?“ 

Kjósa
31
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Peik Bjarnason skrifaði
    Staðreynd: Það er augljóslega ekki hægt að virkja endalaust meira.
    Spurning: Hvað ætlum við að gera þegar búið er að virkja allt og okkur vantar meiri orku? Getum við ekki bara gert ÞAÐ núna!? Og sleppt því að eyðileggja náttúruna?
    1
  • Kristbjörn Árnason skrifaði
    Það hefur verið ljóst síðan Guðlaugur Þór hrökklaðist úr borgarstjórn eftir stóra klandrið þegar hann vann að því að gefa Orkuveituna í hendur ævintýramanna. Að þessum manni er á engan hátt treystandi til að fara með þjóðareigur.

    Það er enginn ágreiningur um að virkja þurfi meira á Íslandi til framtíðar. Ágreiningurinn snýst um að viðbótarorka sem framleidd yrði væri notuð til að styrkja íslensku þjóðina til orkuskipta eða seld erlendum aðilum.

    ,,Björg Eva segir náttúruverndarsamtök telja framkvæmdir við Hvammsvirkjun hefjast í skugga ofríkis gegn náttúru, samfélagi og eðlilegri stjórnsýslu. Þau telji ósannað að almannahagsmunir séu í húfi, en leyfi sem áður hafði verið fellt úr gildi, var endurútgefið vegna meintra almannahagsmuna, orkuskipta og raforkuöryggis, líkt og hún orðar það.

    Hún minnir á að stjórnvöld hafi ekki markað skýra stefnu og áherslur um orkunýtingu og að ekkert bendi til þess að orka úr Þjórsá verði nýtt sérstaklega í þágu orkuskipta eða raforkuöryggis. Því fari reyndar víðsfjarri. „Réttmæt og margsönnuð gagnrýni á umhverfisfórnir virkjunarinnar hafa verið sniðgengin og þögguð í tvo áratugi.“

    Gulli er nú þegar búinn að rústa því viðnámi sem hagsmunir almennings með Umhverfisstofnun og hrekja burt þann eina orkumálstjóra sem stóð í fæturnar gegn orkugróðaöflunum.

    Erlendir aðilar njóta nú þegar um 95% af raforku sem framleidd er í landinu.
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Frábær grein takk fyrir
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Virkjanir

Bjarni gerði ekki „nokkra tilraun“ til sátta
GreiningVirkjanir

Bjarni gerði ekki „nokkra til­raun“ til sátta

Ráðherra orku- og umhverf­is­mála ætl­aði ekki að ganga gegn til­lögum verk­efn­is­stjórnar ramma­á­ætl­unar í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sinni að flokkun átta virkj­un­ar­kosta. Tillagan var ekki afgreidd úr rík­is­stjórn þar sem ráð­herrar Vinstri grænna töldu að afmarka þyrfti virkj­ana­kosti sem lagt var til að vernda. Í stað þess að leiða ráð­herra flokk­anna til sam­ráðs um málið sleit for­sæt­is­ráð­herra rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu.
Leggja Zephyr skýrar línur varðandi áform um risavaxið vindorkuver
FréttirVirkjanir

Leggja Zephyr skýrar línur varð­andi áform um risa­vaxið vind­orku­ver

Vind­orku­ver sem áformað er á Fljóts­dals­heiði yrði líkt og aðrar slíkar virkj­anir án for­dæma á Íslandi en sker sig að auki úr að því leyti að upp­sett afl þess yrði tvö­falt meira en í öðrum fyr­ir­hug­uðum vind­orku­verum. „Hér er því um að ræða mjög umfangs­mikla fram­kvæmd sem krefst mik­ils fjölda vind­mylla og getur haft mikil umhverf­is­á­hrif í för með sér,“ segir í áliti Skipu­lags­stofn­unar á verk­efn­inu.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár