Án samtakamáttar er þetta töpuð barátta

Sam­visku­bit er ekki góður drif­kraftur í bar­átt­unni gegn lofts­lags­vánni. Breyt­ingar á hegðun sem gerðar eru af vænt­um­þykju, bæði í garð okkar sjálfra og umhverf­is­ins, eru væn­legri til árang­urs, að mati sviðs­stjóra lofts­lags­mála og hringrás­ar­hag­kerf­is­ins hjá Umhverf­is­stofnun.

Án samtakamáttar er þetta töpuð barátta
Sam­taka­máttur „Ég held að kraft­ur­inn og töfr­arnir liggja í sam­taka­mætt­inum,“ segir Auður H. Ing­ólfs­dóttir, sviðs­stjóri á sviði lofts­lags­mála og hringrás­ar­hag­kerf­is­ins hjá Umhverf­is­stofnun, um bar­átt­una gegn lofts­lags­vánni. Mynd: Þórdís Björt/Umhverfisstofnun

Lofts­lagsvá er risa­vaxið verk­efni á heims­vísu og eitt mest krefj­andi verk­efni mann­kyns. En hvað getum við gert til að bregð­ast við lofts­lags­vánni og hver erum „við“? Auði H. Ing­ólfs­dóttur, alþjóða­stjórn­mála­fræð­ingi og sviðs­stjóra á sviði lofts­lags­mála og hringrás­ar­hag­kerf­is­ins hjá Umhverf­is­stofnun, finnst spenn­andi að svara stórum spurn­ingum sem engin skýr svör eru við.  

„Það sem gerir þetta svo erfitt er að þetta er sam­eig­in­legt verk­efni. Það getur eng­inn einn leyst það,“ segir Auður. Þannig verður til freistni­vandi. „Hvað er ég að fara að breyta matar­æð­inu mínu eða ferða­lögum þegar við erum með stór­iðj­una sem er að gera miklu, miklu meira? Það gerir þetta erfitt og þýðir að við þurfum að vinna með sam­taka­mátt, að ná sátt um það að þetta sé sam­eig­in­legt verk­efni,“ segir Auður. 

Ísland getur verið fyrirmynd

„Við“ geta verið ein­stak­lingar, stjórn­endur fyr­ir­tækja eða stjórn­mála­menn. „Við höfum mis­mikil tæki­færi til að hafa áhrif eftir því hvar við erum stödd í sam­fé­lag­inu sem ein­stak­lingar,“ segir Auður. „Við“ getur líka verið pínu­litla Ísland í sam­fé­lagi þjóð­anna. Heild­ar­losun Íslands eru 0,02 pró­sent af heild­ar­losun heims­ins. „Við erum pínu­lítil. Jafnvel þó við hættum allri losun er vand­inn enn til staðar. En við getum verið fyr­ir­mynd að því leyt­inu til að við erum full­valda ríki en það er allt í smærri sniðum þannig að það getur verið auð­veld­ara að gera umbreyt­ingu og sýna að það er hægt.“ 

„Ég held að kraft­ur­inn og töfr­arnir liggi í sam­taka­mætt­inum.“

Án sam­taka­máttar er bar­áttan við lofts­lags­vána töpuð að sögn Auðar. „Ég held að kraft­ur­inn og töfr­arnir liggi í sam­taka­mætt­inum af því að þetta er þannig við­fangs­efni, það er ekki hægt að leysa það öðru­vísi. En við verðum að vera heið­ar­leg gagn­vart því að þetta er erfitt verk­efni.“

Öll getum við byrjað hjá sjálfum okkur og nefnir Auður sam­göngur og matar­æði sem dæmi um aðgerðir sem fólk geti gripið til að minnka per­sónu­legt kolefn­is­spor. Þá mælir hún með að byrja á að breyta ein­hverju sem hefur fleiri en einni ávinn­ing. „Ekki fá sam­visku­bit yfir öllu sem þú ert ekki að gera. Er eitt­hvað eitt sem ég get gert sem er bæði gott fyrir kolefn­is­sporið og jafn­vel líka heils­una eða budd­una?“

Sam­visku­bit er ekki góður drif­kraftur í bar­átt­unni gegn lofts­lags­vánni. „Gerum þetta af vænt­um­þykju, bæði í garð okkar sjálfra og umhverf­is­ins. Ekki með rosa­legt sam­visku­bit í far­angrinum. Klöppum okkur á bakið fyrir það sem við gerum frekar en að skamma okkur fyrir það sem við treystum okkur ekki til að gera alveg strax.“

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár