Halla Hrund áfram með forystu

Fylgi þriggja efstu fram­bjóð­enda til for­seta hef­ur minnk­að, mis­mik­ið þó, sam­kvæmt kosn­inga­spá Heim­ild­ar­inn­ar og dr. Bald­urs Héð­ins­son­ar. Halla Hrund Loga­dótt­ir leið­ir líkt og í síð­ustu spám en for­skot henn­ar á Katrínu Jak­obs­dótt­ur hef­ur minnk­að um 2,4% á milli spáa.

Halla Hrund áfram með forystu
Fjögur efstu Halla Hrund, Baldur, Katrín og Jón Gnarr. Þau hafa haldið forystu í skoðanakönnunum og kosningaspá Heimildarinnar í töluverðan tíma en fylgi þeirra er þó á hreyfingu enda enn þrjár vikur til kosninga. Mynd: Golli

Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri nýtur mest fylgis til embættis forseta Íslands eða 27,8% í nýjustu kosningaspá Heimildarinnar og dr. Baldurs Héðinssonar. Fylgi hennar hefur minnkað um 3 prósent frá síðustu spá sem birt var sl. fimmtudag. Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, er með næstmest fylgi, 24,4 prósent, en hafði 25,1% í síðustu spá. 

Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðiprófessor fylgir þar á eftir með 19,5% en var með 20,2 prósent á fimmtudag. Jón Gnarr, fyrrverandi borgarstjóri og leikari, er samkvæmt spánni með 11,8 prósenta fylgi og hefur því bætt lítillega við sig frá síðustu spá, sá eini af þeim fjórum frambjóðendum sem leitt hafa í spánni síðustu daga.

Töluverða breytingu má sjá á fylgi Höllu Tómasdóttur athafnakonu sem bætir við sig 2,3 prósentum frá síðustu spá, er nú með 7,1% en var með 4,9% í spánni sem birt var á fimmtudag. Arnar Þór Jónsson lögfræðingur bætir við sig heilu prósenti, fer úr 3,9 prósentum í 4,9.

Í dag eru þrjár vikur til kosninga til forseta Íslands.

Hvað er kosningaspáin?

Kosningaspá Heimildarinnar er unnin í samstarfi við dr. Baldur Héðinsson. Hann hefur keyrt kosningaspálíkan sem hann smíðaði fyrir fyrirrennara Heimildarinnar í öllum kosningum sem fram hafa farið á Íslandi síðastliðinn áratug, og mun gera það í aðdraganda forsetakosninganna einnig.

Líkanið miðar að því að setja upplýsingar sem skoðanakannanir veita í samhengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­inga. Nið­ur­stöður spálík­ans­ins eru svo birtar reglu­lega í Heimildinni, jafnt á prenti og vef, í aðdrag­anda kosn­inga.

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Katrín niðurstaða flestra í Kosningaprófi Heimildarinnar
FréttirForsetakosningar 2024

Katrín nið­ur­staða flestra í Kosn­inga­prófi Heim­ild­ar­inn­ar

Katrín Jak­obs­dótt­ir lenti oft­ast í fyrsta sæti hjá þeim sem þreyttu Kosn­inga­próf Heim­ild­ar­inn­ar fyr­ir for­seta­kosn­ing­arn­ar 2024. Um fjórð­ung­ur þátt­tak­enda var oft­ast sam­mála fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herr­an­um. Yf­ir 8.000 tóku próf­ið en svör bár­ust ekki frá Vikt­ori Trausta­syni eða Ást­þóri Magnús­syni.

Mest lesið

Ljóðskáld í súlufitness og kynlífsþjónustu á netinu
1
Innlent

Ljóð­skáld í súlu­fit­n­ess og kyn­lífs­þjón­ustu á net­inu

Bryn­hild­ur María Ragn­ars­dótt­ir er í meist­ara­námi, hef­ur skrif­að ljóð og fyrsta skáld­sag­an er í vinnslu. Á und­an­förn­um ár­um hef­ur hún einnig starf­að sem súlu­dans­ari og veitt kyn­lífs­þjón­ustu á net­inu. Þótt hún verði vör við for­dóma sumra hef­ur þetta veitt henni auk­ið sjálfs­traust. „Loks­ins var ég með regl­ur og stjórn yf­ir sjálfri mér.“
Krefjast þess að Ísrael sleppi tveimur úr Gasa-flotanum
6
Erlent

Krefjast þess að Ísra­el sleppi tveim­ur úr Gasa-flot­an­um

Mann­rétt­inda­skrif­stofa Sam­ein­uðu þjóð­anna krefst þess að Spán­verj­an­um Saif Abu Kes­hek og Bras­il­íu­mann­in­um Thiago Avila, sem hald­ið er í fang­elsi í Ashkelon, verði taf­ar­laust sleppt úr haldi. Þeir voru með­al tuga að­gerða­sinna í skipa­flota á leið til Gasa sem ísra­elsk­ar her­sveit­ir stöðv­uðu á al­þjóð­legu haf­svæði und­an strönd­um Grikk­lands á fimmtu­dag.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
1
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár