Hlaupavefur í 28 ár

Á þessu ári verður hlaup.is vef­ur­inn 28 ára, en fyrsta útgáfa af hlaup.is vefnum birt­ist 13. ágúst 1996. Vefurinn byrj­aði smátt en hefur síðan vaxið hægt og síg­andi og verið fyrst og fremst áhuga­mál umsjón­ar­manns, Torfa H. Leifs­sonar.

Hlaupavefur í 28 ár

Hlaupa­blaðið fylgir Heim­ild­inni sem kom út í dag og er í sam­starfi við Hlaup.is. Hug­myndin með hlaup.is var að vera mið­stöð upp­lýs­inga og fróð­leiks fyrir alla þá sem stunda hlaup að ein­hverju marki, sér til heilsu­bótar, ánægju og/eða sem keppn­is­fólk. 

Þrjár útgáfur af hlaup.is hafa litið dags­ljósið og sú síð­asta sem er í gangi núna var sett í loftið í ágúst 2020.

Á hlaup.is er hlaupa­dag­skráin birt í heild sinni ásamt úrslitum úr öllum hlaupum á Íslandi. Til stendur að setja inn úrslit í hlaupum frá árinu 1986, en þeirri vinnu er ólokið. Einnig eru birtir tímar Íslend­inga sem fara í hlaup erlendis. Með skrán­ingu á úrslitum verður til svo­kall­aður Ársbesti listi, en á honum eru bestu tímar árs­ins í 5 km, 10 km, hálfu mara­þoni og mara­þoni listaðir upp í karla- og kvenna­flokki. 

Hlaup.is tekur myndir í fjöl­mörgum hlaupum og birtir þær á vefnum. Hlauparar geta þar skoðað og keypt myndir af sér í hinum ýmsu hlaupum.

Hægt er að kom­ast inn á Mínar síður hlaup.is með raf­rænum skil­ríkjum. Þar er hægt að sjá lista yfir öll úrslit við­kom­andi hlaupara og allar myndir sem hann hefur merkt sem sínar myndir. Þannig bygg­ist upp safn úrslita og mynda af hlaupara sem hann getur nálg­ast á ein­faldan hátt.

Í Hlaupa­dag­skrá hlaup.is og 2XU er ítar­legar lýs­ingar á öllum hlaupum og þar geta hlauparar skráð sig í hin ýmsu hlaup.

Hlaup.is flytur líka fréttir af hlaup­at­burðum og hlaup­urum og tekur við­töl við hina ýmsu hlaupara til birt­ingar. Mikið magn af fróð­leik hefur safn­ast upp á vefnum sem hægt er að skoða, lesa og hlusta á.

Viltu fá aðhald, leið­sögn og síð­ast en ekki síst félags­skap? Hægt er að finna lista yfir alla hlaupa­hópa á land­inu á hlaup.is.

Allir hlauparar sem taka þátt í hlaupum á Íslandi eiga þess kost að gefa hlaup­unum ein­kunnir á hlaup.is og koma þannig ábend­ingum til hlaup­hald­ara um hvað megi betur fara í hlaup­unum.

Á hverju ári fer fram val á Lang­hlaupara árs­ins ásamt vali á Götu­hlaupi og Utan­vega­hlaupi árs­ins. Í vali á hlaupum árs­ins geta hlauparar gefið ein­staka þáttum ein­kunn og myndað þannig end­an­lega ein­kunna­gjöf fyrir við­kom­andi hlaup.

Hlaup.is hefur um 15 ára skeið haldið tveggja kvölda nám­skeið með einum verk­legum tíma fyrir hlaupara, þar sem farið er yfir alla þætti þjálf­unar og hvað þarf til að verða betri hlaup­ari og ná meiri árangri í hlaupum. Fáðu nán­ari upp­lýs­ingar á hlaup.is um nám­skeiðin. Hlaup.is er líka með styttri fyr­ir­lestra og kynn­ingar fyrir fyr­ir­tæki.

Hlaup.is vef­ur­inn er í stöðugri þróun. Fjöldi skemmti­legra við­bóta fyrir hinn almenna hlaupara er í bígerð og til að styðja við frek­ari þróun á vefnum getur þú gerst styrkt­ar­að­ili hlaup.is, sjá nánar styrkt­ar­síðu á hlaup.is.

Bak­hjarlar hlaup.is eru Útilíf og Fætur toga. 
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaupablaðið 2024

„Ótrúlega falleg framtíðarsýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræðisaldri
ViðtalHlaupablaðið 2024

„Ótrúlega fal­leg fram­tíð­ar­sýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræð­is­aldri

Rannveig Hafberg hélt að hún gæti aldrei byrjað að hlaupa. Hún létt­ist um 38 kíló á einu og hálfu ári með breyttu matar­æði og hleypur vænt­an­lega sitt tíunda ofur­mara­þon á Lauga­veg­inum í sumar. Eysteinn Hafberg, faðir hennar, byrj­aði að hlaupa um sjö­tugt eftir hjarta­á­fall. Hann er orð­inn fræg fyr­ir­mynd í íslenska hlaupa­heim­inum. Móðir hennar er líka byrjuð að hlaupa. Og barna­börnin.
Hvað gerist í huganum þegar við hreyfum okkur?
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­anum þegar við hreyfum okkur?

„Mögnuð“ breyt­ing verður á hug­anum þegar við hreyfum okkur. Hreyfing virkar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlkun til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ingur veitir inn­sýn í áhrifin og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár