Hér er besta leiðin til að hlaupa

Áður en venju­legt kyrr­setu­fólk nútím­ans leggur upp í hlaup er gott að vita að hverju þarf að huga til að tryggja jákvæðu áhriifn og forð­ast að álagið leiði til meiðsla. Gauti Grét­ars­son sjúkra­þjálf­ari veitir ráð um leið­ina að far­sælum hlaupum, meðal ann­ars að stoppa og virða fyrir sér fugl­ana.

Hér er besta leiðin til að hlaupa
Sál­fræði­legir kostir nátt­úru­hlaupa Hlaup úti í nátt­úru hafa þann kost að vera fjöl­breytt­ari og veita tengsl við nátt­úr­una sem skortir í dag­legu lífi flestra. Hér er hlaupið nærri Land­manna­laugum. Mynd: Shutterstock

Hlaup eru góð þjálfun, svo sem fyrir hjarta, blóð­rás, úthald og öndun. Einnig eru þau góð fyrir stoð­kerfið og vöðvana. Gauti Grét­ars­son sjúkra­þjálf­ari segir að það sem hins vegar skorti í hlaupa­þjálfun er að gera aðrar æfingar til þess að vega upp á móti hvað hlaupin eru ein­hæf.

„Hlaupin eru í raun ein­hæf þar sem þú ert bara að taka skrefið frá vinstri yfir á hægri og hægri yfir á vinstri. Það vantar því mikið upp á að þjálfa önnur kerfi eins og sam­hæf­ingu og stjórnun á alls konar hreyf­ingum öðrum,“ segir Gauti.

Hann bendir á að heil­inn þarfn­ist líka þjálf­unar. „Við vitum að vinstra heila­hvel stjórnar hægri hlið lík­am­ans og hægra heila­hvelið þeirri vinstri. Þess vegna er mik­il­vægt að gera æfingar til þess að þjálfa bæði heila­hvelin og einnig að tengja saman þessi heila­hvel með ýmsum færnisæf­ingum. Einnig þarf að þjálfa skiln­ing­ar­vitin eins og augu sem eru …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hlaupablaðið 2024

ViðtalHlaupablaðið 2024

„Ótrúlega fal­leg fram­tíð­ar­sýn“ að hlaupa með pabba sínum á níræð­is­aldri

Rannveig Hafberg hélt að hún gæti aldrei byrjað að hlaupa. Hún létt­ist um 38 kíló á einu og hálfu ári með breyttu matar­æði og hleypur vænt­an­lega sitt tíunda ofur­mara­þon á Lauga­veg­inum í sumar. Eysteinn Hafberg, faðir hennar, byrj­aði að hlaupa um sjö­tugt eftir hjarta­á­fall. Hann er orð­inn fræg fyr­ir­mynd í íslenska hlaupa­heim­inum. Móðir hennar er líka byrjuð að hlaupa. Og barna­börnin.
ViðtalHlaupablaðið 2024

Hvað ger­ist í hug­anum þegar við hreyfum okkur?

„Mögnuð“ breyt­ing verður á hug­anum þegar við hreyfum okkur. Hreyfing virkar eins og þung­lynd­is­lyf á þau sem glíma við vægt eða miðl­ungs þung­lyndi. Endorfín, sem fást við hlaup, hafa áhrif á túlkun til­finn­inga, deyfa sárs­auka og valda sælu­til­finn­ingu. Steinn B. Gunn­ars­son íþrótta- og lýð­heilsu­fræð­ingur veitir inn­sýn í áhrifin og ráð til að fá hug­ann til að halda sig við hreyf­ing­una.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár