Fjármálaráð segir nýja fjármálaáætlun reiða sig um of á búhnykki og óútfærðar útgjaldalækkanir

Lítið má út af bregða til þess að mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar í rík­is­fjár­málum nái fram að ganga. Í nýlegri álits­gerð sem Fjár­mála­ráð lagði fyrir þingið er ný fjár­mála­á­ætlun gagn­rýnd fyrir ógagn­sæi og fyrir að reiða sig um of á óút­færðar lausnir til þess að lækka útgjöld og auka tekjur rík­is­ins.

Fjármálaráð segir nýja fjármálaáætlun reiða sig um of á búhnykki og óútfærðar útgjaldalækkanir
Fjár­mála­ráð segir ýmis áform nýrrar fjár­mála­á­ætl­unar vera of óskýr og reiða sig um of á ótil­greinda eign­ar­sölu Mynd: Golli

Lítið má út af bregða til þess að mark­mið nýrrar fjár­mála­á­ætl­unar sem Sigurður Ingi Jóhanns­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra kynnti fyrir Alþingi fyrir skömmu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri álits­gerð Fjár­mála­ráðs sem leggur mat á efna­hags­legar for­sendur nýrrar fjár­mála­á­ætl­unar fyrir árin 2025 til 2029. 

Þrátt fyrir að Fjár­mála­ráð telji að ýmis­legt hafi áunn­ist varð­andi und­ir­bún­ing og fram­setn­ingu áætl­ana um opin­ber fjár­mál, finna skýrslu­höf­undar að ýmsu í áætl­un­inni eins og hún birt­ist í núver­andi mynd. 

Til að mynda telur Fjár­mála­ráð að ríkið ætti frekar að  gera ráð fyrir óvæntum áföllum í áætl­ana­gerð sinni. Í ljósi þess sem undan hefur gengið telja höf­undar „óvænt áföll vera reglu en ekki und­an­tekn­ingu í íslensku hag­kerfi.“ 

En þess ber að geta að allt frá gjald­þroti WOW air árið 2019 hefur verið halli á rík­is­sjóði og gert er ráð fyrir …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Fyrirsögnin ætti að vera: Fjármálaráð gefur hagstjórninni falleinkunn! Sú er nákvæmlega niðurstaða álits Fjármálaráðs.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjármálaáætlun 2025-2029

Öryrkjar borga fyrir kjarasamninga og tugir milljarða settir í borgarlínu
GreiningFjármálaáætlun 2025-2029

Öryrkjar borga fyrir kjara­samn­inga og tugir millj­arða settir í borg­ar­línu

Rík­is­sjóður verður rek­inn í halla í næstum ára­tug sam­fleytt áður en við­snún­ingur næst. Til að fjár­magna tug­millj­arða króna útgjöld vegna Grinda­víkur og kjara­samn­inga á meðal ann­ars að fresta greiðslum til örorku­líf­eyr­is­kerf­is­ins, selja eignir fyrir tugi millj­arða króna og lækka fram­lög í vara­sjóð. Fram­kvæmdum sem áður hefur verið frestað er frestað á ný en pen­ingar settir í nýja þjóð­ar­höll og tugir millj­arða króna verða til­tækir í borg­ar­línu og tengd verk­efni. Vaxta­byrðin á rík­is­sjóði verður þó þung. Á næsta ári mun hann borga 121 millj­arð króna í slíka.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir talsvert meiri hallarekstri en nýr fjármálaráðherra
StjórnmálFjármálaáætlun 2025-2029

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn spáir tals­vert meiri halla­rekstri en nýr fjár­mála­ráð­herra

Sigurður Ingi Jóhanns­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram nýja fjár­mála­á­ætlun fyrr í vik­unni þar sem gert er ráð fyrir um 53 millj­arða króna halla á rekstri hins opin­bera árið 2025. Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn birti í gær skýrslu þar sem lagt er mat á stöðu rík­is­fjár­mála fjöl­margra ríkja heims. Þar er gert ráð fyrir að halla­rekstur rík­is­sjóðs muni verða um 91 millj­arðar króna árið 2025. Spá sjóðs­ins er einnig tals­vert svart­sýnni en áætlun fjár­mála­ráð­herra til lengri tíma.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár