Öryrkjar borga fyrir kjarasamninga og tugir milljarða settir í borgarlínu
Í fyrsta sinn Sigurður Ingi Jóhanns­son tók við lyklunum í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu tæpri viku áður en hann kynnti fyrstu fjár­mála­á­ætlun sína. Hún átti að koma fram fyrir síð­ustu mán­að­ar­mót en hefur ítrekað frest­ast. Mynd: Golli

Öryrkjar borga fyrir kjarasamninga og tugir milljarða settir í borgarlínu

Rík­is­sjóður verður rek­inn í halla í næstum ára­tug sam­fleytt áður en við­snún­ingur næst. Til að fjár­magna tug­millj­arða króna útgjöld vegna Grinda­víkur og kjara­samn­inga á meðal ann­ars að fresta greiðslum til örorku­líf­eyr­is­kerf­is­ins, selja eignir fyrir tugi millj­arða króna og lækka fram­lög í vara­sjóð. Fram­kvæmdum sem áður hefur verið frestað er frestað á ný en pen­ingar settir í nýja þjóð­ar­höll og tugir millj­arða króna verða til­tækir í borg­ar­línu og tengd verk­efni. Vaxta­byrðin á rík­is­sjóði verður þó þung. Á næsta ári mun hann borga 121 millj­arð króna í slíka.

Yfir 100 milljarða halli út 2027

Það verður halli á rekstri rík­is­sjóðs næstu árin. Reiknað er með að hann verði 49 millj­arðar króna í ár og svo bæt­ist við 55 millj­arða króna halli á næstu þremur árum á eftir, eða út árið 2027. Ríkið mun fyrst afla meiri tekna en sem nemur útgjöldum sínum á árinu 2028 en þá er búist við að rekstur rík­is­sjóðs verði jákvæður um þrjá millj­arða króna. Á síð­asta ári fjár­mála­á­ætl­unar, árinu 2029, á svo að verða mynd­ar­legur 20 millj­arða króna afgangur af rekstr­inum. 

Þessi staða bæt­ist ofan á það að halli hefur verið á rík­is­sjóði frá árinu 2019, þegar WOW air fór á haus­inn, og út síð­asta ár. Samkvæmt áætl­un­inni mun því verða sam­felldur halla­rekstur á rík­is­sjóði í níu ár í röð. Taka verður inn í þá mynd að í milli­tíð­inni geis­aði kór­ónu­veiru­far­aldur og jarð­hrær­ingar urðu á Reykja­nesi. Allt þetta kost­aði skild­ing­inn. Hallinn hefur hlaupið …

Kjósa
34
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GGG
    Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifaði
    Eiga öryrkjar borga fyrir kjarasamninga?
    Skammastu þín Sigurður Ingi Jóhannsson!
    Hvar eru harðorð mótmæli verkalýðsfélaganna núna?
    Erum við „breiðu bökin“? VIÐ beygðu og brotnu hlekkirnir sem eigum vart til hnífs og skeiðar, VIÐ sem mörg hver búum við sárafátækt, VIÐ sem erum búin að slíta okkur út í erfiðisvinnu langt fyrir aldur fram........

    Ég gladdist þegar Sólveig Anna og Ragnar Þór fóru að hafa hátt og rugga bátnum, loksins var komið fólk sem var tilbúið að berjast fyrir okkur láglaunafólkið, rífa verkalýðsbaráttunna í gang eftir margra ára stöðnun.

    En hvar eruð þið núna þegar við veikustu hlekkirnir þörfnumst ykkar?

    Öryrkjar auglýsi eftir harðorðum mótmælum!
    https://www.visir.is/g/20242560365d/oryrkjar-auglysi-eftir-hardordum-motmaelum-
    0
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Ég hef þungar áhyggjur af stöðu öryrkja, fátækasta fólki landsins. Þau hafa búið við vaxandi neyð frá hruni. Fjöldi rannsókna hafa sýnt að öryrkjar búa við sárafátækt. Það er lúarlegt að stjórnvöld ætli nú að fresta kjarabótum til öryrkja og nota það fé sem þeim hefur verið lofað til að greiða fyrir skuldbindingar ríkisstjórnarinnar gagnvart vinnumarkaðnum. Af hverju er ekki settur á hvalrekaskattur? Af hverju er ekki sótt fé í ofurhagnað bankanna? Hverskonar gunguháttur er þetta eiginlega að ætla öryrkjum fátækasta fólki landsins að vera breiðu bökin sem borga brúsann? Eruð þið sátt við þetta?
    0
  • Örn Ægir Reynisson skrifaði
    Bruðla vel með skattfé moka vel í fyrirtæki sem greiða eigendum sýnum feitan arð, selja svo verðmætustu eignirnar upp í skuldirnar og koma þeim í réttar hendur í landi tækifærana. Aðferðafræði líkt og að eyðileggja samgöngur í borginni til að þvinga fólk til að ferðast með strætó sem er svo ekki fræðilegur möguleiki nema með margfallt meiri tíma. En alltaf sömu labbakútarnir að láta öryrkja borga fyrir kjarasamninga
    0
  • HÓ
    Helga Óskarsdóttir skrifaði
    Það þarf að fylgjast vel með þessum skattalagabreytingum sem fyrirhugaðar eru. Ég spái að meðallaun verði fyrir hækkunum.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjármálaáætlun 2025-2029

Fjármálaráð segir nýja fjármálaáætlun reiða sig um of á búhnykki og óútfærðar útgjaldalækkanir
FréttirFjármálaáætlun 2025-2029

Fjár­mála­ráð segir nýja fjár­mála­á­ætlun reiða sig um of á búhnykki og óút­færðar útgjalda­lækk­anir

Lítið má út af bregða til þess að mark­mið rík­is­stjórn­ar­innar í rík­is­fjár­málum nái fram að ganga. Í nýlegri álits­gerð sem Fjár­mála­ráð lagði fyrir þingið er ný fjár­mála­á­ætlun gagn­rýnd fyrir ógagn­sæi og fyrir að reiða sig um of á óút­færðar lausnir til þess að lækka útgjöld og auka tekjur rík­is­ins.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn spáir talsvert meiri hallarekstri en nýr fjármálaráðherra
StjórnmálFjármálaáætlun 2025-2029

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn spáir tals­vert meiri halla­rekstri en nýr fjár­mála­ráð­herra

Sigurður Ingi Jóhanns­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, lagði fram nýja fjár­mála­á­ætlun fyrr í vik­unni þar sem gert er ráð fyrir um 53 millj­arða króna halla á rekstri hins opin­bera árið 2025. Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn birti í gær skýrslu þar sem lagt er mat á stöðu rík­is­fjár­mála fjöl­margra ríkja heims. Þar er gert ráð fyrir að halla­rekstur rík­is­sjóðs muni verða um 91 millj­arðar króna árið 2025. Spá sjóðs­ins er einnig tals­vert svart­sýnni en áætlun fjár­mála­ráð­herra til lengri tíma.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár