Kom aldrei til greina að Felix færi fram

Felix Bergsson, eig­in­maður Baldurs Þór­halls­sonar for­seta­fram­bjóð­anda, segir að það hafi aldrei verið inni í mynd­inni að hann byði sig fram til for­seta. Gunnar Helgason, stofn­andi stuðn­ings­hóps fyrir Baldur, skor­aði upp­haf­lega á Felix að bjóða sig fram.

Kom aldrei til greina að Felix færi fram
For­seta­kjör Felix Bergsson hefur sagt það alveg frá byrjun að það sé ekki mögu­leiki að hann bjóði sig fram til for­seta. „Mögu­leik­inn er hinn, að Baldur fari fram í for­set­ann og ég sé honum við hlið og styðji hann í þeim verkum. Ég held að hann sé bara miklu betri í þessu en ég“ segir Felix. Mynd: Golli

Baldur og Felix – vinnum saman er slag­orð for­seta­fram­bjóð­and­ans Baldurs Þór­halls­sonar, pró­fess­ors í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands. Þó Baldur sé að bjóða sig fram til for­seta er eig­in­maður hans, Felix Bergsson, stór hluti af fram­boð­inu. „Ef við förum í þetta, þá hendum við okkur í það þús­und pró­sent,“ sagði Baldur í sam­tali við Heim­ild­ina í byrjun mars, skömmu eftir að Gunnar Helgason, vinur hjón­anna og sam­starfs­maður Felix til 30 ára, stofn­aði stuðn­ings­síðu á Facebook: Baldur og Felix - alla leið.  

Baldur lagði áherslu á „við“. Í ítar­legu við­tali í páska­blaði Heim­ild­ar­innar fara Baldur og Felix yfir aðdrag­and­ann að fram­boð­inu, sem var til­kynnt 20. mars síð­ast­lið­inn, á alþjóð­legum degi ham­ingj­unnar. Þar kemur fram að fyrsta áskor­unin um fram­boð kom á nýárs­dag, dag­inn sem Guðni Th. Jóhann­es­son til­kynnti í ávarpi að hann ætl­aði ekki að sækj­ast eftir því að gegna emb­ætt­inu áfram. Felix á afmæli á nýárs­dag og bauð góðum gestum heim, þar á meðal Gunna, þar sem hann skor­aði á Felix að bjóða sig fram. Felix og Baldur litu hvor á annan. „Ég held að ég hafi nú alltaf verið með það á hreinu að ég hafði ekki áhuga sjálfur á að verða for­seti en ég hafði hins vegar mikla trú á að Baldur gæti gert það ef ein­hver stemn­ing skap­að­ist fyrir því og svo bara skap­að­ist sú stemn­ing.“ 

Samkvæmt könnun sem Valgeir Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri TBWA/Norway, betur þekktur sem Valli sport, lét fram­kvæma áður en Baldur til­kynnti fram­boð eru Íslend­ingar jákvæð­ari gag­vart því að Baldur verði næsti for­seti en bæði Halla Tóm­as­dóttir, fyrr­ver­andi for­seta­fram­bjóð­andi, og Ólafur Jóhann Ólafsson rit­höf­undur. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Baldur er orð­aður við Bessa­staði, það sama var upp á ten­ingnum árið 2016 þegar Guðni Th. Jóhann­es­son var kjör­inn í fyrsta sinn. „Þá vís­uðum við þessu algjör­lega frá okkur, við vorum bara á öðrum stað í líf­inu,“ segir Baldur. En nú er hann til­bú­inn, ekki síst vegna breytts lands­lags í alþjóða­sam­fé­lag­inu sem hefur meðal ann­ars birst í bakslagi í lýð­ræði, mann­rétt­inda­málum og bar­áttu hinsegin fólks. 

Möguleikinn er hinn

En Gunni skor­aði á Felix. Aðspurður segir Felix að það hafi aldrei komið til greina að hann færi fram. „Þú hefur samt fengið fullt af hvatn­ingu,“ skýtur Baldur inn í og Felix sendir honum ákveðið augna­ráð. „Ég hef alveg sagt það frá byrjun að það er ekki mögu­leiki. Mögu­leik­inn er hinn, að Baldur fari fram í for­set­ann og ég sé honum við hlið og styðji hann í þeim verkum. Ég held að hann sé bara miklu betri í þessu en ég. Hann þekkir emb­ættið miklu betur og er búinn að mennta sig og kann þetta svo vel. Ég held að ég verði miklu betri sem maki for­seta.“

„Ég held að hann sé bara miklu betri í þessu en ég.“
Felix,
um Baldur

Felix segir það spenn­andi til­hugsun að vera maki for­seta. „Ég sé fyrir mér að vera full­trúi íslenskrar menn­ingar og tala fyrir þeim málum sem við höfum sett á odd­inn og brennum fyrir. Ég er mjög til í að taka þátt í að vinna að hag barna og fjöl­skyldna almennt, líka þeirra sem minna mega sín í sam­fé­lag­inu. Svo brennum við fyrir mann­rétt­inda­mál­unum og það hefur ekk­ert breyst síðan við kynnt­umst árið 1996.“ 

Samkvæmt nýrri könnun Prósents þar sem spurt er um þá sem hafa gefið kost á sér í emb­ætti for­seta Íslands nýtur Baldur stuðn­ing 56 pró­sent þeirra sem taka afstöðu. Séu þeir taldir með sem ekki vita hvern þeir vilja styðja, mælist Baldur með stuðn­ing 37 pró­sent allra. Halla Tóm­as­dóttir, sem einnig bauð sig fram árið 2016, er næst vin­sæl­asti fram­bjóð­and­inn sam­kvæmt könn­un­inni. Alls segj­ast 23 pró­sent þeirra sem taka afstöðu með ein­hverjum fram­bjóð­anda styðja Höllu í emb­ættið. Arnar Þór Jónsson, fyrr­ver­andi dóm­ari og vara­þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, nýtur stuðn­ings 8 pró­sent. Ásdís Rán Gunn­ars­dóttir, sem ekki hefur gefið end­an­lega út um fram­boð þó hún safni með­mælum fólks, nýtur 5 pró­senta stuðn­ings þeirra sem velja sér fram­bjóð­anda.

Ástþór Magn­ús­son, sem hefur reglu­lega reynt fyrir sér í for­seta­fram­boði og er þjóð­inni vel kunnur, nýtir stuðn­ings 3 pró­senta aðspurðra. Þær Agniezka Solowska og Sigríður Hrund Pét­urs­dóttir njóta hvor stuðn­ings 1 pró­sents aðspurðra. 

Aðrir ná ekki upp fyrir eina pró­sentið. Fram­boðs­frestur rennur út 26. apríl og 2. maí mun lands­kjör­stjórn aug­lýsa hver verða í fram­boði.  

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • APA
    Axel Pétur Axelsson skrifaði
    wow . . . ný grein á korters fresti . . . er heimildin bara eitthvað prump rit ? . .
    -3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár