Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út
Hjón Baldur Þór­halls­son og Felix Bergsson hafa fylgst að helm­ing ævinnar, í 28 ár. Nú eru þeir sam­ferða í kosn­inga­bar­áttu um bar­átt­una um Bessa­staði. Það kom aldrei til greina að Felix færi fram. „Ég held að hann sé bara miklu betri í þessu en ég,“ segir Felix. Mynd: Golli

Eina leiðin til að halda lífinu áfram var að koma út

Baldur Þór­halls­son bældi niður eigin kyn­hneigð frá barns­aldri og fannst hann ekki geta verið hann sjálfur. Fyrir 28 árum tók hann ákvörðun um að koma út úr skápnum, það var ekki annað í boði ef hann ætl­aði að halda áfram með lífið. Nú stefna þeir Felix Bergsson á Bessa­staði. „Við eigum 28 ára ást­ríkt sam­band að baki og höfum ekk­ert að fela,“ segir Felix.

Baldur Þór­halls­son, for­seta­fram­bjóð­andi og pró­fessor í stjórn­mála­fræði við Háskóla Íslands, fann fyrir létti þegar hann til­kynnti fram­boð sitt til for­seta Íslands í síð­ustu viku. „Við ætlum að svara kall­inu hátt og skýrt og taka slag­inn,“ til­kynnti Baldur á fram­boðs­fundi í Bæj­ar­bíói á alþjóð­legum degi ham­ingj­unnar. 

Baldur og eig­in­maður hans, Felix Bergsson, taka á móti blaða­konu á heim­ili þeirra á Starhaga við Ægisíðu á björtum en köldum degi skömmu fyrir dymbil­viku. Baldur lýsir sjálfum sér sem feimnum sveita­strák, hann ólst upp á bænum Ægisíðu á bökkum Ytri-Rangár og gerð­ist sauð­fjár­bóndi 13 ára gam­all þegar afi hans gat ekki sinnt skepn­unum vegna veik­inda. „Ég var langt á undan Felix að vera Eurovision-aðdá­andi. Ég man eftir því að þegar ég fór til vina minna á Hellu var ég að hlaupa í hléinu á Eurovision til að athuga hvort ein­hver kind væri búin að bera. Maður lærði svo mikið á þessu, að þurfa …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Ingibjörg Ottesen skrifaði
    Kynhneigð skiptir engu máli fyrir aðra en mann sjálfan. Sorglegt að lifa í þannig þjóðfélagi að geta ekki verið maður sjálfur. Við erum sem betur fer komin lengra en svo. Fordómar segja meir um þá sem dæma en þá sem eru dæmdir.

    Ég vona að Baldur og Felix verði næstu húsbændur á Bessastöðum. Ekki vegna kynhneigðar þeirra, heldur vegna hæfni þeirra í að bæta hvorn annan upp og vera sem einn maður. Við fáum tvo fyrir einn♥️
    Ekki misskilja mig. Vigdís Finnbogadóttir hafði allt til að bera, glæsileg,djúpvitur, skemmtileg, já meira en handfylli af hæfileikum♥️
    ÁFRAM Baldur og Felix!
    7
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Forsetakosningar 2024

InnlentForsetakosningar 2024

Arnar Þór skuldar starfs­mönnum for­seta­fram­boðs­ins laun: „Ég vil fá skýr­ingar á því hvað þetta var“

Arnar Þór Jónsson, hæsta­rétt­ar­lög­maður og stofn­andi Lýð­ræð­is­flokks­ins hefur enn ekki greitt laun nokk­urra aðila sem störf­uðu við for­seta­fram­boð hans á þessu ári. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs skuldar Arnar Þór Jónsson laun nokk­urra ein­stak­linga sem unnu við for­seta­fram­boð hans fyrr á árinu. Um er að ræða umtals­verðar upp­hæðir sam­kvæmt heim­ild­unum en Arnar Þór segir í sam­tali við Mannlíf eiga aðeins eftir að...
InnlentForsetakosningar 2024

Ástþór þög­ull um fjár­mögnun á fram­boði Ásdísar: „Ég er lang­flott­asti for­set­inn“

Ástþór Magn­ús­son, sexfaldur fram­bjóð­andi til for­seta Íslands, vill ekki upp­lýsa strax hvort hann muni fjár­magna vænt­an­leg for­seta­fram­boð Ásdísar Ránar Gunn­ars­dóttur en hún lýsti því yfir kosn­inga­vöku sinni fyrr á þessu ári. „Ég er offisjalí búin að taka að mér frið­ar­málin, þannig að þið megið búast við mér á 4-8 ára fresti næstu 30 árin,“ sagði for­seta­fram­bjóð­and­inn og fyr­ir­sætan einnig. „Ég...

Mest lesið undanfarið ár